Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segir sumarið farið frá Tenerife: „Ekki veit ég hvaða Íslendingar tóku kuldann með sér“

Segir sumarið farið frá Tenerife: „Ekki veit ég hvaða Íslendingar tóku kuldann með sér“
Anna Krist­jáns­dóttir.

Anna Krist­jáns­dóttir segir að sum­arið sé farið í Paradís, ekki sé þar meira en 22 gráður.

Eins og alþjóð veit orðið, skrifar Anna Krist­jáns­dóttir laun­fyndnar dag­bók­ar­færslur frá Tenerife og birtir á Facebook, en þangað flutti hún fyrir nokkrum árum. Hina spænsku eyju kallar hún Paradís og er nokkuð tíð­rætt um veð­ur­farið enda les­enda­hóp­ur­inn íslenskur og því áhuga­samur um slíkt.

Í færsl­unni segir Anna að sum­arið sé farið, þrátt fyrir að hafa haldið því fram fyrir nokkrum dögum að það væri komið til Para­dísar. Í gær segir hún að hit­inn hafi rétt slefað upp í 22 gráð­urnar. Þá tal­aði hún einnig um vinnu verka­manna við að koma upp nýju sól­tjaldi eftir að hið fyrra hafði fokið í vetur og um Eric nokkurn sem dreymir um að strauja hár hennar.

Sjón er sögu rík­ari:

„Dagur 1331 – Sumarið er farið.

Sumarið er farið, það fraus í hylnum.Um dag­inn hélt ég því fram að sum­arið væri komið, enda kom gott Calima og hit­inn rauk upp í 34°C sem er mjög óvenju­legt fyrir Tenerife, en nú er öldin önnur. Hitinn rétt marði 22°C í gær og fór niður í 15°C í nótt með ein­hverri rign­ingu. Ekki veit ég hvaða Íslend­ingar tóku kuld­ann með sér suður á bóg­inn, en ein­hverjir gerðu það. Ég fór í svo mikla fýlu að ég er ákveðin í að taka ekki ein­ustu gráðu af hita með mér til Íslands þegar ég fer þangað í vor. En það stefnir samt í sum­aryl eftir páska.Að þessu frá­töldu, þá mætti maður frá sól­tjalda­fyr­ir­tæk­inu til mín til að áætla kostnað við upp­setn­ingu þess eftir að það fauk í vetur og braut stykki úr þak­k­ant­inum. Eftir að Sean hafði steypt í þak­k­ant­inn að nýju, ákvað ég að láta steypuna þorna vel áður en ég pant­aði upp­setn­ing­una að nýju eftir við­gerð á þak­k­ant­inum og pant­aði til­boð í verkið í fyrra­dag. Þegar ég heyrði verðið á upp­setn­ing­unni gat ég ekki annað en farið að hlæja, enda hafði ég búist við allt að þús­und evru reikn­ing (eig­andi íbúð­ar­innar borgar). Áætlað verð reynd­ist innan við þriðj­ungur af minni áætlun og þegar haft er í huga hve starf­menn þessa fyr­ir­tækis eru góðir og nákvæmir, líka hvað tíma­setn­ingu snertir, þá eiga þeir skilið auka­bónus fyrir verkið. (Ég skal borga bón­us­inn).Ég við­ur­kenni alveg að ég hefði alveg getað sagt mark­isur, en hrein­tungu­stefnan bannar mér slíkt. Það er margoft búið að skamma mig fyrir að nota komp­lex fyrir svona fjöl­býli eins og er hér þar sem eru um 200 íbúðir í sjö hlutum fjöl­býl­is­ins auk nokk­urra bara og veit­inga­húsa, einnar versl­unar og einnar hár­greiðslu­stofu þar sem hún Roberta mín rak áður en hún veikt­ist. Ég bíð þess enn að hún mæti aftur til starfa og geri hárið mitt eins og áður, en Eric frændi minn frá Írlandi á stof­unni í næsta húsi er ein­stak­lega áhuga­samur um að strauja á mér hárið og ég er ekki sátt við slíkt.Svo mörg voru þau orð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar