Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Anna rifjar upp Ásmundarsmyglið 1967: „Hvar menn voru dæmdir í tiltölulega stutta fangelsisvist“

Anna rifjar upp Ásmundarsmyglið 1967: „Hvar menn voru dæmdir í tiltölulega stutta fangelsisvist“

Anna Krist­jáns­dóttir er að und­ir­búa Íslands­heim­sókn frá Tenerife eins og lesa má í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu hennar á Facebook. Þar rifjar hún einnig upp Ásmund­arsmyglið árið 1967.

Eins og alþjóð veit hefur Anna haldið úti dag­bók síðan hún flutti til Tenerife fyrir nokkrum árum. Færsl­urnar eru þekktar fyrir húmor og kald­hæðni. Nýjasta færslan er tví­skipt. Í fyrri hlut­anum segir hún frá sam­skiptum sínum við systur sína sem hún segir að sé ágæt en þurfi að læra mann­leg sam­skipti. Í seinni hlut­anum rifjar hún upp Ásmund­arsmyglið svo­kall­aða frá árinu 1967 sem á þeim tíma var eitt stærsta smygl Íslands­sög­unnar.

Færsluna má lesa hér:

„Dagur 1359 – Dagur í Paradís.

Ég átti góðan dag í Paradís i gær. Ónefnd kona frá Vest­manna­eyjum dvelur hér og reyndi að njóta lífs­ins á sund­laug­ar­bakk­anum á milli þess sem hún hvíldi sig í her­berg­inu hennar Kristrúnar frænku minnar. Við fórum samt saman í Mercadona og í Sketchers. Svo var flat­baka etin á Rimini áður en við héldum á Búkkann. Semsagt, flottur dagur í Paradís. Ég reyndi samt ekk­ert við hana enda er hún lofuð auk þess sem ég á vin­konu á suð­rænum slóðum, en ekki orð um það meir.Ég var reið Lilju systur þegar hún vildi ekki skila mér ferða­tösk­unni minni fyrr en síðar, en ég þarf að nota tösk­una á laug­ar­dag þegar ég held norður á bóg­inn. Þegar mér tókst loks­ins að ná sam­bandi við Lilju lét ég hana heyra það. Ég ætl­aði svo sann­ar­lega ekki að gera eins og hún og byrja að pakka hálf­tíma fyrir flug­tak frá Tenerife og heimt­aði mína tösku. Þegar ég kom heim af Búkkanum um kvöldið beið taskan mín á hús­barnum, en henni hafði verið skilað þangað úr því ég var ekki heima. Lilja systir er ágæt samt, en þarf að læra á klukku og síma og umfram allt á mann­leg sam­skipti.—–Um dag­inn var ítar­leg grein í Morg­un­blað­inu um Ásmund­arsmyglið árið 1967, að mörgu leyti góð grein sem varp­aði aðeins ljósi á málið, en ég sá hvergi í grein­inni end­an­legar nið­ur­stöður máls­ins eftir að dómur hafði fallið í Hæsta­rétti haustið 1968 hvar menn voru dæmdir í til­tölu­lega stutta fang­els­is­vist og bát­ur­inn gerður upp­tækur til rík­is­sjóðs, enda var það í anda lag­anna að ef meg­in­hluti farms var smygl­varn­ingur, bar að gera farið upp­tækt. Dómurinn var einmitt á þá leið. Eigandi báts­ins missti þar með bát­inn til rík­is­sjóðs þótt hann væri alsak­laus og hafði leigt bát­inn til ufsa­veiða, en ekki til sénever­sveiða í Belgíu.Daginn eftir að dómur féll í Hæsta­rétti náð­aði for­seti Íslands eig­and­ann og því hélt hann bátnum, en seldi hann fljót­lega. Í þessu til­felli var nýlega kjör­inn for­seti Íslands Kristján Eldjárn.Mörgum árum síðar vorum við á Bakka­fossi II í höfn í Harbour Grace á Nýfunda­landi og hittum þar fyrir einn fim­menn­ing­anna sem höfðu verið á Ásmundi í umræddri smygl­ferð og sá hafði greini­lega ekk­ert lært og bauðst til að kenna okkur að smygla. Þá hló Ragnar Valdi­mars­son sem leysti af sem skip­stjóri þessa ferð og sagði við við mann­inn: „Ég held að þú getir ekki kennt okkur neitt, þú sem varst tek­inn fyrir stærsta smygl Íslands­sög­unnar“.Best að taka fram að það var smyglað ein­ungis áfengi og tóbaki og hátoll­uðum vörum í sam­keppni við rík­is­sjóð til að bæta upp léleg laun sem löngum voru á skip­unum. Ólögleg fíkni­efni voru aldrei inni í mynd­inni hjá lang­flestum eða nær öllum auk þess sem til­raunir til slíks voru brott­rekstr­ar­sök af skip­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar