Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sigmundur Ernir: ,,Það er verið að afkynja tungumálið á methraða”

Sigmundur Ernir: ,,Það er verið að afkynja tungumálið á methraða”
Sig­mundur Ernir Mynd: YouTube-skjáskot

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, rit­stjóri og fjöl­miðla­maður segir rangt að breyta íslenskri tungu án umræðu. Sig­mundur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar  segir rét­trún­að­inn kom­inn of langt þegar fólk þori ekki lengur að tjá sig af ótta við að vera kallað slæmar mann­eskjur:

„Það þarf að taka umræð­una, þó að það geti verið við­kvæmt. Það er til dæmis orðin lenska í dag að afkynja tungu­málið. Í fréttum RÚV má ekki lengur segja margir séu komnir saman, heldur verður að nota orðið mörg í staðin. Mörg hver? Af hverju má ekki nota margir eða margar? Það er verið að afkynja tungu­málið hratt og ég er á því að fjöl­miðlar verði að standa í lapp­irnar og gjalda var­hug við því að tungu­málið sé ekki gelt á met­hraða. Menn eru með kurt­eisum hætti að færa sig í þá átt að kynin séu fleiri en tvö, en ég er ekk­ert endi­lega á því að við eigum að fara í þá átt. Það eru reglur í íslensku sem við eigum að fara eftir. Ef regl­urnar eiga bara að fara út um glugg­ann verðum við að taka alvöru umræðu um það. Það getur ekki verið þannig að maður sé bara karl­remba og vond mann­eskja ef maður vill ræða hluti. Ég á ekki að þurfa að skamm­ast mín fyrir að segja margir Íslend­ingar en ekki „mörg Íslend­ingar“,“ segir Sig­mundur og heldur áfram:

„Við höfum dæmi um það að múgsefjun hafi farið of langt á Íslandi og það er mik­il­vægt að spyrna við fótum en ekki bara vera vitur eftir á. Til dæmis í bæði hrun­inu árið 2008 og heims­far­aldr­inum varð til ákveðin múgsefjun sem var ekki góð. Hæsti­réttur missti sig til dæmis í hrun­inu og fór langt út fyrir verk­svið sitt, bara út af stemmn­ing­unni í sam­fé­lag­inu.“

Sig­mundur segir rétt að leggja niður aug­lýs­inga­deild RÚV. Hann telur rangt að rík­is­stofnun sé með sölu­deild á sterum sem reyni að sópa til sín tekjum sem ann­ars færu til einka­rek­inna miðla:

„Staða einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi er mjög bág­borin og fer sífellt versn­andi. Ætli það séu ekki um 15 dag­blöð sem hafa lagt upp laupana á und­an­förnum ára­tugum og þá eru ótaldir hér­aðsmiðl­arnir. Hluti af þessu hefur auð­vitað með RÚV að gera. Ég er ekki endi­lega á því að það eigi að taka Rík­is­út­varpið af aug­lýs­inga­mark­aði, en það á að leggja aug­lýs­inga­deild­ina niður og hafa þess í stað bara aug­lýs­inga­mót­töku. Þannig myndi þessi aggressíva sölu­mennska leggj­ast af. Það er ekki réttur bragur af rík­is­stofnun að hafa sölu­deild á sterum og fara um landið eins og senu­þjófur. Rík­is­út­varpið er á fjár­lögum og auka­fjár­lögum og þess vegna getur ríkið ekki hagað sér með þeim hætti að sópa til sín eins miklum aug­lýs­inga­tekjum og hugs­ast getur,“ segir Sig­mundur Ernir og heldur áfram:

„RÚV á að sinna sínu hlut­verki, en ekki seil­ast sífellt lengra í að sópa til sín fleiri hlut­verkum. Þjóð­leik­húsið er ekki í því að reka veit­inga­staði upp eftir allri Hverf­is­göt­unni. Hlutverk þess er að sýna góð leik­verk. Það er nógu erfitt fyrir einka­miðl­ana að keppa við erlenda miðla og kröfu um að allt eigi að vera ókeypis án þess að fram­ganga RÚV komi þar ofan á. Það eru sífellt færri sem gera blaða­mennsku að ævi­starfi og það er hætta á því að fag­mennska þynn­ist út. Krafan er sú að koma út sem mestu efni á sem hraðastan hátt með fáu fólki. Það hlýtur að hafa áhrif á gæðin.“

Sig­mundur sem hefur unnið við fjöl­miðla í ára­tugi segir allt gjör­breytt í lands­lagi fjöl­miðla með til­komu snjall­síma og sam­fé­lags­miðla. Það sem hann ótt­ast mest er að allt verði leyfi­legt í fjöl­miðlun nútím­ans:

„Ég ótt­ast að með þeirri þróun sem er í gangi muni fjöl­miðlun verða órit­stýrð­ari og mis­kunn­ar­laus­ari. Við höfum um langt skeið haft rit­stýrða fjöl­miðla sem fylgja ákveðnum verk­lags­reglum, þar sem mörgu er ekki hleypt í gegn. Þó að auð­vitað hafi oft verið gerð mis­tök hefur þessum fjöl­miðlum verið stýrt af kunn­áttu­fólki sem hefur reynslu og menntun í því sem það er að gera. En núna getur nán­ast hver sem er birt hvað sem er og það býr til mun mis­kunn­ar­laus­ari umræðu. Ég ótt­ast þá þróun að með órit­stýrðri fjöl­miðlun verði ein­fald­ara að ráð­ast bara á hvern sem er með sím­ann að vopni.“

Sig­mundur segir eðli­legt að fjöl­miðlar og fjöl­miðla­fólk sé gagn­rýnt og þannig eigi það að vera. En hins vegar megi líka stundum ræða um það sem vel er gert í fjöl­miðlum og þátt þeirra í að breyta sam­fé­lag­inu til hins betra:

„Það gleym­ist oft í umræðu um fjöl­miðla að ræða þátt þeirra í því sem hefur batnað í sam­fé­lag­inu. Sam­fé­lagið okkar var gríð­ar­lega eins­leitt og mikið af hlutum átti bara að stinga ofan í skúffu og ekki ræða þá. Þegar ég var strákur á Akureyri var kall­inn bara full­komin fyr­ir­vinna og konan æðis­leg hús­móðir og ásýndin út á við var að allt væri mjög eins­leitt. Það átti ekki að vera til neinn hommi eða lesbía, það var eng­inn þung­lyndur, ekk­ert sjálfs­víg hafði verið framið og það var engin fylli­bytta til. Þegar Dag­blaðið var stofnað byrj­aði alvöru blaða­mennska á Íslandi og við byrj­uðum að afhjúpa sam­fé­lagið og sýna það eins og það var í raun og veru. Fram að því hafði meira og minna allt verið þaggað niður. Ég verð alltaf stoltur af því að hafa tekið þátt í að breyta þessarri þróun og byrja að opna á hluti sem sann­ar­lega þurfti að ræða.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Sigmund og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti