Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Spindrift Theatre 10 ára og á leið á Edinburgh Fringe

Spindrift Theatre 10 ára og á leið á Edinburgh Fringe
Spindrift Theatre fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir. Mynd: Aðsend

Sviðs­lista­hóp­inum Spindrift hefur hlotn­ast sá heiður að vera boðið að flytja verk sitt Them á Edin­burgh Fringe- hátíð­ina í ágúst en hóp­ur­inn fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir.

Sviðs­lista­hóp­ur­inn Spindrift kom saman þegar fjórir stofn­endur hóps­ins, Anna Koro­lainen Crevier, Bergdís Júlía Jóhanns­dóttir, Hen­ri­ette Kristen­sen og Sólveig Eva Magn­ús­dóttir, voru við leik­list­ar­nám í Rose Bruford College í London og mynd­uðu hóp til að æfa náms­efni auka­lega eftir skóla. Með áfram­hald­andi starf­semi hóps­ins eftir útskrift bætt­ust við leikkon­urnar Tinna Þorvalds Önnu­dóttir, Marjo Elina Lahti og Outi Ikonen.

Bergdís Júlía Jóhanns­dóttir, Tinna Þorvalds Önnu­dóttir og Sólveig Eva Magn­ús­dóttir eru hluti af Spindrift Theatre – sviðs­lista­hópi sjö kvenna frá Norð­ur­lönd­unum. Hópurinn fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir og hann er á leið­inni á Edin­borgar Fringe leik­list­ar­há­tíð­ina með verð­launa­sýn­ing­una THEM í ágúst.

Fyrsta verk leik­hóps­ins var Þrí­leikur og sam­an­stóð af þremur útskrift­ar­verkum flytj­enda. Sýningin var sett upp í Frysti­klef­anum í Rifi og Gafl­ara­leik­húsið árið 2013. Þar á eftir kom Carroll: Ber­serkur, sem byggt var á Lísu í Undra­landi eftir Lewis Caroll. Það var sýnt sem verk í vinnslu í Drayton Arms Theatre í London árið 2014, og svo sem immersive leik­hús­sýn­ing í Tjarn­ar­bíói í Reykja­vík árið 2015. Þar fengu áhorf­endur að upp­lifa það að vera Lísa og ráfa um Undra­land sem náði til allra króka og kima leik­húss­ins og þar sem þeir hittu fyrir hina und­ar­leg­ustu íbúa lands­ins.

Næsta verk tók nokkurn tíma í und­ir­bún­ingi og hefur verið sýnt á ýmsum stigum vinn­unnar sem verk í vinnslu og á hverju stigi hefur hóp­ur­inn lært eitt­hvað nýtt. En verkið THEM er byggt á við­tölum sem með­limir hóps­ins tóku við tugi karla á Norð­ur­lönd­unum á öllum aldri um upp­lifun þeirra af karl­mennsku. Samtölin fóru um víðan völl og köf­uðu djúpt. Þau vöktu með við­mæl­endum vanga­veltur um sína eigin til­veru sem karlar í karllægu sam­fé­lagi og hóp­ur­inn fór að taka eftir ákveðnum þemum sem end­ur­tóku sig og vann svo sýn­ing­una út frá þeim.

Einnig hefur hóp­ur­inn sett upp verkið Við dönsum undir ösku­falli enda­lokanna eftir Melissa-Kelly Franklin við Dixon Place í New York og á Reykja­vík Fringe Festival árin 2020 á ensku og 2022 á íslensku, tón­leika­út­gáfu af óper­unni Ástin ein tauga­hrúga, eng­inn dans við Ufsa­klett sem Anna Hall­dórs­dóttir samdi við sam­nefnda ljóða­bók Elísa­betar Jök­uls­dóttur og sem sett var upp í Mengi á Myrkum mús­ík­dögum fyrr á þessu ári, auk þess sem í Finnland hefur sýn­ing byggð á bók Maria Pett­ers­son, Histor­ian jännät nai­set – eða Extra­or­din­ary women of history – gengið frá því í febr­úar. 

Um þessar mundir und­ir­býr hóp­ur­inn ferð á Edin­borgar Fringe hátíð­ina þar sem hann mun sýna verkið THEM hvorki meira né minna en 23 sinnum á einum mán­uði. 

Sýningin hefur nú þegar ferð­ast til London og unnið til verð­launa á hátíðum í Reykja­vík og í Gauta­borg. 

Verkið var sýnt í Tjarn­ar­bíói á liðnu leik­ári og hlaut fyrir vikið Grímutil­nefn­ingu fyrir bestu sviðs­hreyf­ingar árs­ins, en hreyfi­hönn­uður var Unnur Elísabet Gunn­ars­dóttir, sem einnig leik­stýrði sýn­ing­unni. 

Einnig er hóp­ur­inn nú að und­ir­búa nýja sam­setta leik­sýn­ingu um hetju­dáðir kvenna í þjóð­sögum, mann­kyns­sög­unni og hvers­dags­leik­anum, auk þess sem hann und­ir­býr verk­efni fyrir næsta ár í sam­starfi við RÚV og Útvarps­leik­húsið. 

Spindrift vinnur verk sín yfir­leitt með rann­sókn­ar­vinnu og oft í gegnum sam­sköpun. Útgangs­punktur verk­anna er sjálfs­mynd ein­stak­lings­ins í breyttri heims­mynd og ljóð­rænn frá­sagn­ar­máti og kven­lægt sjón­ar­horn er ein­kenn­andi.

Leik­hóp­ur­inn hefur haldið vinnu­stofur sem ein­blína á sjálf leik­ar­ans sem nálgun fyrir leik­tækni og sköpun. Sem kven­leik­hópur leit­ast Spindrift við að upp­götva leiðir að femínískri leik­þjálfun og leik­tækni án hefð­bund­innar hír­ar­kíu/valdapýramída. 

Hópurinn er ekki bara hópur sem býr til lista­verk saman heldur einnig hópur sem snýst um að styðja og næra með­lim­ina og gefa hverri annarri inn­blástur og high five í lífs­ins ólgu­sjó. 

Meðlimir hóps­ins eru búsettir víða um heim en það stoppar þá ekki í því að fagna því afmæl­is­gleði verður haldin í gala­kjól með kampa­vín yfir hafið með hjálp inter­nets­ins.

Heima­síða Spindrift Theatre  

Instagram Spindrift Theatre

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar