Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Göngustígamorðingi laus í Maryland – Önnur kona horfin

Göngustígamorðingi laus í Maryland – Önnur kona horfin

Kennari í Maryland hvarf spor­laust eftir að hafa sést á úti­vista­svæði aðeins nokkrum dögum áður en lík fimm barna móð­ur­innar Rachel Morin fannst á svip­uðum slóðum.

Mariame Toure Sylla, sex­tug, sást síð­ast að kvöldi 29. júní nærri Schrom Hills Park í Greenbelt, sem er um klukku­tíma norður af staðnum þar sem lík Morin fannst.

Mariame Toure Sylla

Til­kynn­ing um hvarf Morin barst lög­reglu 5. ágúst eftir að hún kom ekki heim eftir að hafa farið í göngu í Ma and Pa göngu­leið­ina í Bel Air, sem er í Schrom Hills Park, Maryland. Illa barið lík hennar fannst dag­inn eftir.

Sjá einnig: Fimm barna móðir myrt á vin­sælli göngu­leið: „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt“
Sjá einnig: Vinkona Rachel fann lík hennar í frá­veitu­skurði: „Þetta er svo sví­virði­legt athæfi“

Þrátt fyrir mikil lík­indi með mál­unum tveimur, hefur lög­reglan ekki opin­ber­lega tengt þau saman. Yfirvöld sem rann­saka hvarf Sylla, hafa enn engar vís­bend­ingar um málið, þrátt fyrir meiri­háttar leit að henni, sam­kvæmt lög­reglu­stjór­anum í Greenbelt, Richard Bowers.

Bætti lög­reglu­stjór­inn við að hann hefði „engar upp­lýs­ingar“ um það hvort hvarf hinnar sex­tugu Sylla væri tengt tveimur nýlegum lík­fundum á svæð­inu.

Illa farið lík Morin fannst á vin­sælli göngu­leið á sunnu­dag­inn en engar hand­tökur hafa verið gerðar í mál­inu.

„Við höldum áfram að biðla til almenn­ings um hjálp,“ sagði Bowers í dag. „Því lengur sem hún er týnd … þeim mun meiri áhyggjur höfum við af því að við náum að finna hana heila á húfi.“

Eftir ítar­lega leit með leit­ar­hundum seg­ist lög­reglan ekki trúa því að Sylla sé í nágrenni Schrom Hills Park eða heim­ili hennar, bætti Bowers við.

Samkvæmt WUSA 9, tók Sylla reglu­lega 30 til 45 mín­útna göngut­úra í kringum úti­vista­svæðið, oft­ast rétt fyrir sól­setur.

Sá mögu­leiki að kenn­ar­inn hafi yfir­gefið landið, sam­kvæmt Bowers, hefur að mestu verið úti­lok­aður.

„Við höfum fengið ábend­ingar … eins langt og frá Penn­syl­vaniu … þannig að við vitum að fólk veit af þessu,“ sagði Bowers.

Sylla er umsjón­ar­kenn­ari þriðja bekkjar í Dora Kennedy French Immersion grunn­skól­anum.

Nemendur og aðrir úr sam­fé­lag­inu heiðr­uðu Sylla í til­finn­inga­þrung­inni vöku í síð­ustu viku.

„Hún er með stór­kost­legan per­sónu­leika. Hún er ynd­is­leg mann­eskja, að utan og innan. Hún er algjör sól­ar­geislu … Við elskum hana. Stuðn­ingur og ást mun flæða til hennar því það er mikil þörf fyrir hana í skól­anum,“ sagði Cece Cole, fyrr­ver­andi kenn­ari við Dora Kennedy skól­ann, við WJLA frétta­mið­il­inn. „Við erum algjör­lega nið­ur­brotin yfir hvarfi hennar og vonum að hún finn­ist á lífi og örugg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco