Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fimm barna móðir myrt á vinsælli gönguleið: „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt“

Kærustuparið
Kærustuparið Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lögreglan í Maryland, sem rannsakar morðið á fimm barna móðurinni Rachel Morin, sem fannst látin á sunnu­daginn á vinsælli gönguleið, sagði Fox News Digital að hún hefði verið myrt og biðlaði til almennings sem gætu vitað eitthvað um málið, að stíga fram.

„Þetta var ekki slys eða sjálfsvíg. Þetta er illvirki af hálfu annars,“ sagði Jeff Gahler lögreglu­stjóri.

Morin, sem var 37 ára, fór af heimili sínu klukkan 18:30 á laugar­daginn til að fara í göngutúr á Ma and Pa göngu­leiðinni í Bel Air, Maryland, um það bil 48 kílómetra frá Baltimore.

„Hún lifði mjög virku lífi,“ sagði lögreglu­stjórinn. „Það var ekkert óvenjulegt við það að hún færi út í göngu.“

Þegar hin fimm barna móðir kom ekki aftur úr göngunni hringdi kærasti hennar, Richard Tobin í lögregluna klukkan 23:30 og tilkynnti um hvarf hennar.

Stuttu eftir 01:00 fann manneskja lík Morin sem lá við hlið stígsins. Ekki vildi Gahler gefa upp nákvæma hvar hún fannst en sagði að það hafi verið í þéttu skóglendi, öðru hvoru megin við göngu­leiðina, þar sem áður fyrr lágu lestar­teinar. Sagði Gahler að rann­sakendur viti ekki enn hvort Morin hafi verið drepin af handahófi eða hvort hún hafi verið fyrirfram valið skotmark.

Bætti hann við að hún hafi gengið þessa slóð reglulega, sem part af æfingar­rútínu. „Þetta gæti hafa verið einhver sem vissi af rútínu hennar og vissi hvar hún yrði um þetta leyti eða þetta gæti verið einhver ókunnugur.“

Morðið hefur vakið mikinn óhug í hinum rólega bæ, sem telur aðeins 10.000 íbúa. „Við erum sýsla þar sem mjög lítið er um glæpi,“ sagði Gahler lögreglu­stjóri en heimili hans stendur við göngu­leiðina. „Samfélag okkar er réttilega mjög áhyggju­fullt.“

Lögreglan fann bifreið Morin á Williams-stræti, við upphaf göngu­leiðarinnar en bifreiðin hefur verið tekin í vörslu lögreglunnar til frekari rann­sóknar.

„Við höfum engin myndskeið frá bíla­stæðinu frá kvöldinu sem morðið var framið,“ sagði Gahler. Lögreglu­stjórinn bað almenning að vera ekki með vanga­veltur á netinu og hvatti þá sem gætu verið með upplýsingar um málið að hringja í lögregluna í stað þess að skrifa á samfélags­miðla. „Við minnum samfélag okkar á að ef þú heldur að þú hafir séð eitthvað, sem gæti tengst málinu, að þá viljum við tala við þig.“

Yfirvöld bíða niður­stöðu krufningar.

Nýr kærasti Morin rauf þögnina á sunnu­daginn á Facebook eftir að netspekingar höfðu velt fyrir sér hvort hann gæti tengst morðinu. „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt, leyfið fjöl­skyldunni og mér að syrgja. Já ég á slæma fortíð en ég hef líka verið edrú í 15 mánuði og hef breyst sem manneskja. Gerið það,“ skrifaði Tobin.

Tobin, sem er 27 ára, hefur áður verið hand­tekinn fyrir skemmdar­verk, líkams­árás, fyrir að brjóta nálgunar­bann og fleiri kæra, samkvæmt dómsskrám Maryland. Lögreglan hefur hvort nefnt hann sem aðila grunaðan um morðið né sakað hann um eitthvað refsivert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku