Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vinkona Rachel fann lík hennar í fráveituskurði: „Þetta er svo svívirðilegt athæfi“

Vinkona Rachel fann lík hennar í fráveituskurði: „Þetta er svo svívirðilegt athæfi“
Kærustuparið Mynd: Trausti Hafsteinsson

Náin vin­kona fimm barna móð­ur­innar Rachel Morin fann lík hennar en það var greini­legt að um ill­virki var að ræða.

Sjá einnig: Fimm barna móðir myrt á vin­sælli göngu­leið: „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt“

Mannlíf sagði frá lík­fundi við fjöl­sótta göngu­leið í Maryland, í gær en rann­sókn stendur yfir. Michael Gabriszeski sagði við fjöl­miðla að hann og dóttir hans, sem var náin vin­kona Rachel, hefðu gengið til liðs við sjálf­boða­liða um helg­ina sem leit­uðu að hinni 37 ára Rachel en hún hafði ekki komið heim eftir kvöld­göngu á þekktri göngu­leið nærri heim­ili hennar. Feðginin fundu lík hennar í frá­rennsl­is­göng við Ma and Pa göngu­stíg­inn í Bel Air, Maryland á sunnu­dag­inn.

„Ég end­ur­tók í sífellu að við yrðum að leita í göng­unum, því ég hafði ein­hverja til­finn­ingu fyrir þeim,“ sagði Michael WMAR-2. „Ég gekk til móts við ein göngin á meðan þau leit­uðu í öðrum göngum, og þar fundu þau hana,“ sagði hann og átti við dóttur sína og vin hennar.

Ástand líks­ins benti sterk­lega til þess að Rachel hefði verið myrt, bætti Gabriszeski við án þess að fara nánar út í það. Sagðist hann vera „ánægður að koma henni heim svo hún geti fengið sinn hvíld­ar­stað.“ Bætti hann við: „Og varð­andi fjöl­skyldu hennar, þau geta loks lokað þeim dyrum, og rann­sóknin getur haldið áfram og von­andi ná þau þeim sem ber ábyrgð á þessu. Ég vona að þeir krefj­ist fyllstu refs­ingar fyrir ger­and­ann.“

Morin sást síð­ast ganga í átt að Ma and Pa göngu­leið­ina um klukkan 18:00 á laug­ar­dag­inn en kær­asti hennar til­kynnti hvarf hennar klukkan 23:30 sama kvöld. Áður en dán­ar­dóm­stjóri hafði fram­kvæmt opin­ber­lega krufn­ingu var greini­legt að um morð var að ræða.

Lög­reglan í Harford-sýslu sagði að á þriðju­dag hefðu næstum því 90 ábend­ingar borist frá almenn­ingi um málið en eng­inn hefur enn opin­ber­lega hlotið stöðu grun­aðra.

Kærasti Morin, hinn 27 ára Richard Tobin neit­aði á mánu­dag­inn að tengj­ast morð­inu en hann hefur áður verið kærður fyrir lík­ams­árás og brot á nálg­un­ar­banni, áður en hann kynnt­ist Rachel.

Bæj­ar­ráðs­konan Jessica Boyle-Tsottles safn­aði tugum fólks frá hinu sam­heldna sam­fé­lagi til að ganga í lest til heið­urs lífi Morin, sam­kvæmt frétt WMAR-2.

„Þetta er svo sví­virði­legt athæfi, þú veist, og það ætti ekki að fara fram hjá neinum. Við þurfum að standa saman, og veistu hvað? Hver veit? Kannski fáum við ábend­ingar og getum aðstoðað við þessa rann­sókn,“ sagði hún við fjöl­mið­il­inn.

„Ef þú varst á Ma and Pa göngu­leið­inni á laug­ar­dag­inn eða nálægt henni og tókst ljós­myndir eða mynd­skeið, þá biðjum við ykkur um að deila þeim með rann­sak­endum,“ sagði lög­reglu­emb­ættið á sam­fé­lags­miðlum.

Andlát Morin er annað áfallið sem fjöl­skylda hennar upp­lifir á stuttum tíma. Aðeins rúm­lega viku fyrir hvarf Rachel dó fjög­urra mán­aða gömul frænka hennar, Lily Beth Morin, vöggu­dauða. „Það er aðeins liðin vika síðan frænka mín Lily Beth dó vöggu­dauða og ég held ég þurfi að búa til aðra GoFundMe til að hjálpa móður minni, Patty Morin, með jarð­ar­far­ar­kostnað,“ skrif­aði systir Rachel, Rebekah Morin, á GoFundMe söfn­un­ar­síðu fjöl­skyld­unnar.

Samkvæmt systur hennar var Rachel ekki með líf­trygg­ingu.

Frétt þessi er unnin upp úr frétt New York Post.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta