Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hvað varð um hinn 19 ára Michael Leduc? – Ætlaði að ferðast um Ísland en hvarf á Hvolsvelli

Hvað varð um hinn 19 ára Michael Leduc? – Ætlaði að ferðast um Ísland en hvarf á Hvolsvelli
Michael Leduc Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hinn 19 ára Frakki, Michael Leduc, kom til Íslands í sept­em­ber byrjun árið 1997 og ætl­aði sér að ferð­ast um landið í rútu, 20.000 krónur í gjald­eyri. Þann 6. sept­em­ber steig hann úr rútu við Hvols­völl en virt­ist svo hverfa af yfir­borði jarðar.

Hinn ungi ferða­maður, sem búsettur var í París, hafði keypt sér rútu­miða sem gerði honum kleyft að ferð­ast um Ísland frá 3. til 16. sept­em­ber en þann sjötta sept­em­ber sást hann fara úr rút­unni við Hvolfs­völl en talið var að hann hefði ætlað sér að vaða yfir Mark­ar­fljót til að kom­ast í Þórsmörk. Þrátt fyrir gríð­ar­mikla leit sem meðal ann­ars fól í sér notkun svifnökkva, en þetta var fyrir tíma flygilda (e. dro­nes), fannst hvorki tangur né tetur af Leduc. Að minnsta kosti ekki fyrr en hálfu ári síðar.

Tíminn Akureyri fjall­aði um hvarf Leduc á sínum tíma:

Lýst eftir Frakka

Leitin að Michael Leduc, 19 ára gömlum frönskum ferða­manni, hafði enn engan árangur borið í gær­kvöld. Síðast var vitað um ferðir hans með áætl­un­ar­bíl frá Reykja­vík til Hvolsvallar 6. sept­em­ber sl. Þar fór hann úr bílnum og er ekk­ert vitað um ferðir hans eftir það. Michael Leduc er með dökkt stutt hár, 1.82 cm á hæð, grann­vax­inn og gæti verið klæddur í rauða úlpu og brúna göngu­skó. Hann er með grá­grænan bak­poka og dökk­grænt tjald.

Dag­blaðið Vísir sagði frá þeirri miklu leit sem ráð­ist var í til að finna hinn unga Frakka en leitað var í og við Mark­ar­fljót:

Franski ferða­mað­ur­inn: Leitað í og við Mark­ar­fljót

Slysa­varna­sveit­irnar Dag­renn­ing Hvols­velli og Björg á Eyr­ar­bakka hófu leit að franska ferða­mann­inum Michael Leduc eftir hádegi í gær. Leitin hafði engan árangur borið þegar blaðið fór í prentun. Leit­ar­svæðið er tak­markað við Mark­ar­fljót og bakka þess. Svifnökkvi var not­aður við leit­ina gær en hann má nota bæði á láði og legi. Að sögn Jóns Her­manns­sonar, svæð­is­stjóra slysa­varna­sveit­anna, höfðu engar vís­bend­ingar fund­ist þegar DV ræddi við hann. Var gert ráð fyrir að leitað yrði fram í myrkur gær­kvöld. í gær hafði því ekk­ert spurst til franska ferða­manns­ins frá því að hann yfir­gaf rút­una á Hvols­velli 6. sept­em­ber sl., utan að öku­maður einn telur sig hafa séð hann standa úti veg­kanti um 2-300 metra frá Hvols­velli þann sama dag. Hafi hann verið að reyna að stöðva bíla sem voru aust­ur­leið. Í nótt ætl­uðu hjálp­ar­sveit­ar­menn úr Hafn­ar­firði að vera með spor­hund á svæð­inu en það þótti ekki lík­legt til árang­urs í gær þar sem umferð var mikil. Í morgun ætl­uðu allar björg­un­ar­sveitir í Rang­ár­valla­sýslu að hefja leit. Var fyr­ir­hugað að auka umfang leit­ar­innar veru­lega og nota m.a. þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar ef veður og aðstæður leyfðu. Þá var fyr­ir­hugað að nota svo­kall­aða víða­vangs leit­ar­hunda við leit­ina.

Dag­blaðið Vísir sagði frá því að þrátt fyrir að maður teldi sig hafa tekið Leduc upp í bíl sinn þann 9. sept­em­ber á Fáskrúðs­firði og hafa ekið honum á Reyð­ar­fjörð, taldi yfir­lög­reglu­þjónn­inn Jónas Hallsson ólík­legt að hann hefði farið austur.

Franski ferða­mað­ur­inn: Ólíklegt að hann hafi farið austur

„Það sem margir sem telja sig hafa séð Michael Leduc, meira að segja í rútu­bfl frá Akureyri. En hann var á tíma­miða og sá miði hefur ekki verið not­aður nema austur á Hvols­völl. Þá hefur hann ekk­ert notað visa-kortið sitt, nema til úttektar á 20.000 krónum í gjald­eyri. Þetta segir okkur að það sé ólík­legt að hann hafi farið austur á land,“ sagði Jónas Hallsson yfir­lög­reglu­þjónn um franska ferða­mann­inn Michael Leduc sem leitað hefur verið að und­an­förnu. Jónas sagði nokkuð ljóst að Frakkinn hefði ætlað sér að skoða Land­manna­laugar, Þórsmörk, Skafta­fell og Mývatn. Þegar Þórs­merk­ur­kortið sé skoðað geti ókunn­ugir hæg­lega villst á þessum slóðum og talið eðli­leg­ast að fara Fljóts­hlíð­ina. Sá sem fari þá leiö komi síðan að Mark­ar­fljóti sem sé hættu­legt yfir­ferðar. Eins og fram kom í DV í gær telur Jóhann Pétur Hall­dórs­son að hann hafi tekið ferða­mann­inn upp í bíl sinn 9. sept. sl. á Fáskrúðs­firði. Hann kveðst hafa ekið mann­inum á Reyð­ar­fjörð síð­degis þann dag. Hefði honum helst skilist að mað­ur­inn væri á leið til Norð­fjarðar, því hann hefði spurt um ferðir áætl­un­ar­bíls þangað. Aðspurður kvaðst mað­ur­inn hafa komið austur dag­inn áður (þ.e. mánu­dag­inn 8. sept.) Að sögn Jónasar Halls­sonar verður leitað á fjörum í ósum Mark­ar­fljóts þegar-veður leyfir.

Þann 1. októ­ber 1997 sagði Morg­un­blaðið frá því að leit­inni yrði lík­leg­ast hætt en ekk­ert hafði þá spurst til Leduc frá 6. sept­em­ber. Enn þann dag­inn í dag hafa lík­ams­leifar hins unga ferða­langs ekki fund­ist.

Leitinni lík­lega hætt

LEIT að Michael Leduc, 19 ára Frakka sem ekk­ert hefur spurst til frá 6. sept­em­ber, verður að lík­indum hætt í dag. Frakkinn átti rútu­miða, sem hann gat notað til að ferð­ast um landið frá 3. til 16. sept­em­ber, en nýtti aðeins ferð­ina til Hvolsvallar. Leit­ar­menn hafa miðað við að hann hafi gengið inn Fljóts­hlíð og ætlað að vaða Mark­ar­fljót til að kom­ast í Þórsmörk. Jónas Hallsson, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn í Reykja­vík, sagði að fólk víða um land teldi sig hafa séð Michael Leduc, en ekki hefði verið hægt að stað­festa þær frá­sagnir. Í dag, mið­viku­dag, yrði farið enn á ný yfir öll gögn máls­ins, en að því loknu yrði leit lík­lega hætt.

Unnusta Frakkans skrif­aði fal­lega kveðju til hans sem birt­ist í Lesbók Morg­un­blaðs­ins í nóv­em­ber 1997, í þýð­ingu Ásdísar Magn­ús­dóttur:

MARIANNE PIDOUX TIL MICHAELS Ásdís Magn­ús­dóttir þýddi

Blíði vinur, Fyrst tókst þú þér ferð á hendur, fyrst leið þín virð­ist ekki liggja til baka, lærir buguð sál mín tón­stiga hinnar sönnu þján­ingar. Þetta litla þrá­láta stef, sem minn­ing­arnar búa til, segir mér, segir mér aftur og segir mér enn aftur að við lifum ekki lengur undir sama himni. Í sein­asta skipti legg ég höfuð mitt í kjöltu þér, ég and­varpa djúpt og í draumi gef ég þér sein­ustu ráðin, ferð þín er svo löng. Allt hér minnir á ham­ingju okkar og á hverjum morgni gæli ég við bros þitt, alltaf eins, bros þitt rólegt og kalt eins og strendur íslands. Höf­und­ur­inn er unnusta unga Frakkans, Michael Leduc, sem hvarf á Íslandi í sept­em­ber.

Það var svo hálfu ári síðar, 28. apríl 1998, að lík fannst á Krossáraurum neðan við Bása í Þórsmörk. Var þar um hinn unga Michael Leduc að ræða.

Þórsmörk Lík­fundur við Krossá

LÍK fannst á Krossáraurum neðan við Bása í Þórsmörk í gær. Að sögn lög­regl­unnar á Hvols­velii er talið lík­legt að þar sé kom­inn fram Frakkinn, sem leitað var að í haust. Um pásk­ana fannst bak­poki við ána, sem gat átt við lýs­ingu á bak­poka Frakkans en pok­inn var tómur. Um helg­ina leit­aði lög­reglan á Hvols­velli ásamt björg­un­ar­sveit­inni á Hvols­velli við ána og fannst þá svefn­poki og tjald. Það var svo í gær að þyrla var fengin til að fljúga yfir svæðið og þá fannst líkið á Kross­sáraurum í upp­þorn­uðum far­vegi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni