Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Birta situr yfir excel-skjölum: „Freistandi eftir langan dag að panta bara pizzu“

Birta situr yfir excel-skjölum: „Freistandi eftir langan dag að panta bara pizzu“
Birta Birg­is­dóttir á það til að laum­ast í pítsu

Birta Birg­is­dóttir er 26 ára frí­stunda­leið­bein­andi en hún hefur unnið á frí­stunda­heim­ili og í félags­mið­stöð und­an­farin sex ár. Birta er alin upp í Hlíðunum en býr núna í Laug­ar­dalnum með Daníel Alvin, unnusta sínum, stjúp­syni og nýfæddum syni. Birta elskar að ferð­ast, syngja og teikna ásamt að kynna sér fata- og hús­gagna­hönnun. Birta er neyt­andi vik­unnar.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Já, ég pæli mjög mikið í því. Sér­stak­lega þegar kemur að stærri hlutum, þá er ég lík­leg til að draga upp Excel skjalið og sitja heil­lengi yfir því. 

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég reyni að vera dug­leg að fara vel yfir ísskáp­inn minn og allan mat áður en ég fer í búð­ina. Þá get ég betur ákveðið hvað á að vera í mat­inn út vik­una miðað við hvað er nú þegar til og þarf þá ekki að kaupa eins mikið. 

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já, ég pældi sér­stak­lega mikið í því þegar ég var ólétt. Ég keypti nán­ast ekk­ert nýtt handa syni mínum. Það sem að ég fékk ekki gef­ins eða lánað frá fjöl­skyldu og vinum keypti ég notað í Barna­lopp­unni, á Bland eða á Facebook Marketplace. Sparaði heilan hell­ing á því.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Eins og ég nefndi áðan þá hef ég það í huga hvað ég á til heima þegar ég kaupi mat. Það hefur breyst mikið hvernig ég kaupi mér föt, ég fer ekki lengur inn í búðir og er bara að leita að ein­hverju flottu. Núna er ég frekar að leita að ákveðnum hlutum sem mig hefur lengi langað í eða virki­lega vantar. Ef að ég rekst síðan á eitt­hvað fal­legt sem ég var ekki að leita að sleppi ég því oft­ast að kaupa það og hugsa að ég komi aftur seinna ef að mig langar ennþá í þetta. Í lang­flestum til­fellum fer ég ekki aftur. Auðvitað hef ég alveg lent í því að fylgja þess­ari reglu minni ekki eftir og keypt eitt­hvað á staðnum en það ger­ist mjög sjaldan. Hvað varðar gjafir þá reyni ég nú bara að vera sniðug og kaupa eitt­hvað sem ég veit að ein­stak­lingnum langar í eða myndi hafa gaman að. Í vina­hópnum mínum þá sleppum við því líka stundum að gefa hvort öðru gjafir og förum frekar saman út að borða eða í leik­hús.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Örugg­lega skyndi­bita, það getur verið freist­andi eftir langan dag að panta bara pizzu frekar en að elda, sér­stak­lega á þriðju­dögum.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já, að sjálf­sögðu en það eru auð­vitað hlutir sem ég gæti gert betur.

Annað sem þú vilt taka fram?

Nei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti