Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Dularfullt myndband af ráðherra aftur til tals: „Þeir báðu mig að eyða því“

Dularfullt myndband af ráðherra aftur til tals: „Þeir báðu mig að eyða því“
Ásmundur og Ámundi

„Sagan af því þegar Ísland fékk NÆSTUM að heyra upp­töku af því þegar Ásmundur Einar mennta- og barna­mála­ráð­herra kom upp um sinn innri per­vert.“ Svo hljóðar byrjun á færslu sem frænka Ámunda Sig­urðs­sonar en þar segir hún frænda sinn og Ásmund Einar Daðason hafa haft uppi „óheflað kyn­ferð­is­legt tal“ um banda­ríska körfu­bolta­konu er þeir sóttu hana á Kefla­vík­ur­flug­völl en hún var þá nýráðin til Skalla­gríms. Málið hefur áður komið upp en meint mynd­bandið virð­ist horfið.

Færslan

Sandra Sjafnar, syst­ur­dóttir Ámunda Sig­urðs­sonar, fyrrum for­manns meist­ara­flokks­ráðs kvenna hjá Skalla­grími, skrif­aði eld­fima færslu á Facebook í fyrra­dag þar sem hún segir þá Ámunda og Ásmund Einar Daðason, núver­andi barna­mála­ráð­herra og fyrr­ver­andi for­manns kvenna­ráðs Skalla­gríms, hafa birst á mynd­bandi banda­rískrar körfu­bolta­konu þar sem töl­uðu saman á íslensku og töl­uðu kyn­ferð­is­lega um leik­mann­inn sem var í aft­ur­sæt­inu. Körfu­bolta­konan, sem lék með Skalla­grími tíma­bilið 2016-2017, ku hafa verið að taka upp mynd­band af nátt­úr­unni á Reykja­nes­inu og náð fyrir slysni tali þeirra Ámunda og Ásmundar. „Atvika­lýs­ing sem mér og fleirum barst í skila­boðum á sam­fé­lags­miðlum árið 2015 hljóm­aði þannig, að Ásmundur og Ámundi hefðu sótt unga banda­ríska körfu­bolta­konu á Kefla­vik­ur­flug­völl árið 2015 og setið með henni í bíl sem keyrði þau í Borg­ar­nes,“ skrif­aði Sandra í færsl­unni og hélt áfram: „Körfu­bolta­konan unga var að vonum spennt fyrir íslensku umhverfi í bíl­ferð­inni og tók upp mynd­band af lands­lag­inu á Ipadinn sinn. Hún skildi auð­vitað ekki orð í íslensku, sem Ásmundur og Ámundi nýttu sér til þess að tala and­styggi­lega og kyn­ferð­is­lega um hana á leið­inni, en sú orð­ræða náð­ist fyrir til­viljun á stutta upp­töku hennar á meðan hún dáð­ist að lands­lag­inu. Þeir heyrð­ust meðal ann­ars ræða um húð­lit hennar og töl­uðu óheflað um kyn­ferð­is­legar og jafn­vel ofbeld­is­fullar lang­anir sínar í því sam­hengi til hennar og hlógu.“

Sandra sagði í færsl­unni að körfu­bolta­konan hafi sent upp­tök­una á liðs­fé­laga sína á sam­fé­lags­miðlum, án þess að vita um sam­talið sem hún náði á mynd­band. „Upptakan fór þó í ein­hverja dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum en ekki þannig að margir hafi náð að vista upp­tök­una. Ég er ein af þeim sem sá upp­tök­una en vistaði hana ekki. Rétt­lætis- og sið­ferð­is­kennd minni var ger­sam­lega mis­boðið og árið 2018, þegar hegðun Ámunda gagn­vart þjálf­ara Skalla­gríms var til umfjöll­unar í fjöl­miðlum, átti ég sam­skipti við blaða­mann DV um að koma inni­haldi upp­tök­unnar í umfjöllun. DV birti þá frétt um upp­tök­una og til­kynnti að nán­ari umfjöllun um hana væri vænt­an­leg. Stuttu síðar hvarf sú frétt af vefnum eins og margir muna og aldrei fékkst nein skýr­ing á því hvers vegna ekki varð af umfjöll­un­inni.“

Skjá­skotið

Útskýring Kristjóns Kormáks

Mannlíf ræddi við Kristjón Kormák Guð­jóns­son, þáver­andi rit­stjóra DV og spurði hann út í hvarf frétt­ar­innar af mynd­skeið­inu. Vildi Kristjón Kormákur meina að um mis­tök blaða­manns­ins hefði verið að ræða. Stað­festi Kristjón að hann hefði unnið að frétt um mynd­band þar sem kyn­ferð­is­legt tal heyr­ist um dökka körfuknatt­leiks­konu Skalla­gríms, milli Ámunda og Ásmundar, en Ámundi hafi verið sá sem tal­aði mest á þeim nótum. „Samkvæmt okkar heim­ildum var Ámundi sá sem hafði sig mest í frammi með sóða­kjaft­inn en Ásmundur hafi ekki stoppað hann en sagt já og nei og slíkt,“ sagði Kristjón í sam­tali við Mannlíf að vinnu­skjal um frétt­ina hefði óvart farið á frétta­vef­inn. Varðandi frétt­ina um málið sagði Kristjón að hann hefði verið að vinna að frétt um mynd­bandið, eftir að hafa talað við fjöldi manns sem sagð­ist hafa séð það, á laug­ar­degi með öðrum blaða­manni. „Það sem ger­ist er að ég tel mig vera kom­inn á sporið og er að vinna í þessu með öðrum blaða­manni á laug­ar­degi og ég bið annan blaða­mann, sem var á helg­ar­vakt, en þá var ég að hringja og tala við fólk um málið. Ég bað hann að taka saman punkta um málið og setja það í skjal. Blaða­maður minn gerir þau mis­tök að hann fer inn á kerfið okkar og þar skrifar hann langa fyr­ir­sögn, með fullt nafn Ásmundar Einars en við birtum aldrei fullt nafn í fyr­ir­sögn. Og við settum aldrei í loftið frétt bara með DV lógóinu.“ Sagði Kristjón að vinnu­skjalið hefði farið í loftið í eina eða tvær sek­úndur en að það hefði verið nóg því félagi hans hefði sent honum skjá­skot af fyr­ir­sögn­inni skömmu síðar. Sagðist Kristjón hafa verið algjör­lega miður sín yfir mis­tök­unum enda hafi þetta verið eitt­hvað sem hann var ekki búinn að fá algjör­lega stað­fest og gat ekki full­yrt um að hefði í raun gerst. Kristjón sagð­ist hafa beðið eftir því að vera kall­aður á teppið hjá Karli Garð­ars­syni, fram­kvæmd­ar­stjóra DV á þeim tíma og Fram­sókn­ar­manni en allt kom fyrir ekki, ekk­ert heyrð­ist frá honum vegna mis­tak­anna. Þá hringdi að sögn rit­stjór­ans, Ásmundur Einar ekki heldur í hann vegna máls­ins líkt og hann bjóst við.

Málið vakti nokkra athygli á sínum tíma.

Staðfesting körfuboltakonunnar

Mannlíf ræddi við körfuknatt­leiks­kon­una, Tavelyn James (þá Tillman) og fékk stað­fest frá henni að hún hefði verið beðin um að eyða mynd­bandi sem hún tók í bíl þegar þeir Ásmundur Einar og Ámundi sóttu hana á Kefla­vík­ur­flug­völl. „Þeir buðu mér aldrei pen­ing til að eyða mynd­band­inu. Þeir báðu mig að eyða því og ég gerði það ekki en þá bað ein dóttir hans mig að eyða því og sagði að þeir hefðu verið að tala um póli­tík.“ Sagðist hún aldrei hafa fengið aðra útskýr­ingu á því sem þeir höfðu verið að ræða í mynd­band­inu.

Tavelyn James (þá Tillman)

Sjá einnig: Körfu­bolta­konan lýsir heim­sókn eftir tap­leik gegn Keflavík: „Little black nig­ger bitch“

Svör Ásmundar og Ámunda

Aðspurður sagði Ásmundur Einar Daðason að um „gamla sögu“ væri um að ræða. „Þetta er mjög gömul saga sem ég kann­ast bara ekki við og varð ein­hvern veg­inn til sem kjafta­saga,“ svar­aði Ásmundur en þegar blaða­maður tjáði honum að Tavelyn hefði stað­fest að hún hafi verið beðin um að eyða mynd­band­inu svar­aði hann: „Já, ég kann­ast ekki við að hafa beðið um neitt slíkt. Þannig að þetta er bara mjög gömul saga sem ég kann­ast ekki við og vísa frá mér.“

Ámundi svar­aði á sama hátt um færslu frænku sinnar: „Hún er lasin stelpu­greyið. Ég bara skil ekki hvað er að henni. Ég bara kann­ast ekk­ert við þetta vinur minn, ég hef svarað fyrir þetta áður en ég kann­ast bara ekk­ert við þetta. Þetta er bara eitt­hvað kjaftæði.“ Þegar Ámundi var sagt að Tavely hefði stað­fest að hafa verið beðin um að eyða mynd­skeiði svar­aði hann: „Það er ekki okkar, það er ekki frá mér að minnsta kosti. Ég kann­ast ekk­ert við það. Ég skil bara ekki hvað fólk getur verið ómerki­legt. Þú getur bara skoðað færsl­una hjá henni [Söndru Sjafnar] og séð að það eru allir ómögu­legir nema hún. Ég er hissa hvað þið eruð dug­legir að hlusta á þetta.“

Hér er bútur úr færslu Söndru:

„Ásmundur Einar núver­andi barna­mála­ráð­herra var for­maður kvenna­ráðs hjá Skalla­grími árin 2015-2017. Atvika­lýs­ing sem mér og fleirum barst í skila­boðum á sam­fé­lags­miðlum árið 2015 hljóm­aði þannig, að Ásmundur og Ámundi hefðu sótt unga banda­ríska körfu­bolta­konu á Kefla­vik­ur­flug­völl árið 2015 og setið með henni í bíl sem keyrði þau í Borg­ar­nes. Körfu­bolta­konan unga var að vonum spennt fyrir íslensku umhverfi í bíl­ferð­inni og tók upp mynd­band af lands­lag­inu á Ipadinn sinn. Hún skildi auð­vitað ekki orð í íslensku, sem Ásmundur og Ámundi nýttu sér til þess að tala and­styggi­lega og kyn­ferð­is­lega um hana á leið­inni, en sú orð­ræða náð­ist fyrir til­viljun á stutta upp­töku hennar á meðan hún dáð­ist að lands­lag­inu. Þeir heyrð­ust meðal ann­ars ræða um húð­lit hennar og töl­uðu óheflað um kyn­ferð­is­legar og jafn­vel ofbeld­is­fullar lang­anir sínar í því sam­hengi til hennar og hlógu. Unga konan sendi upp­tök­una á liðs­fé­laga sína á sam­fé­lags­miðlum, grun­laus um kyn­ferð­is­legar og grófar athuga­semdir um hana, upp­runa og útlit, í tali mann­anna í bak­grunni. En þau sem sáu upp­tök­una skildu auð­vitað íslensku og heyrðu munn­söfnuð mann­anna sem þau báru kennsl á sem Ámunda og Ásmund Einar, í bak­grunni. Upp­tök­unni var eytt af sam­fé­lags­miðli ungu kon­unnar fljót­lega eftir að hún var birt, um leið og stelpan var komin á leið­ar­enda í Borg­ar­nes.

Það kann að vekja undrun eða efa­semdir að allar stelp­urnar í körfu­bolt­anum hafi kosið að þegja yfir því sem þær heyrðu á upp­tök­unni í öll þessi ár, vit­andi að sjálfur ráð­herra vel­ferðar og barna­verndar á Íslandi tal­aði svona um unga konu. Það að allar dætur hans Ámunda voru í körfu­boltalið­inu hjá Skalla­grími á þessum tíma gæti þó útskýrt þögn þeirra að ein­hverju leyti, en þó gæti vel verið að fleira liggi þar að baki. Í þessu sam­hengi kemur það ef til vill ekki neinum á óvart að ein af dætrum Ámunda var ráðin í ábyrgð­ar­stöðu innan ráðu­neytis Ásmundar árið 2021. Ég skal ekki segja hvort hún hafi verið sú hæf­asta í hlut­verkið, en sam­kvæmt mínum heim­ildum var það einmitt umrædd dóttir Ámunda sem fékk banda­rísku körfu­bolta­kon­una til að eyða upp­tök­unni af sam­fé­lags­miðlum þegar hún kom í Borg­ar­nes á sínum tíma.Upptakan fór þó í ein­hverja dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum en ekki þannig að margir hafi náð að vista upp­tök­una. Ég er ein af þeim sem sá upp­tök­una en vistaði hana ekki. Rétt­lætis- og sið­ferð­is­kennd minni var ger­sam­lega mis­boðið og árið 2018, þegar hegðun Ámunda gagn­vart þjálf­ara Skalla­gríms var til umfjöll­unar í fjöl­miðlum, átti ég sam­skipti við blaða­mann DV um að koma inni­haldi upp­tök­unnar í umfjöllun. DV birti þá frétt um upp­tök­una og til­kynnti að nán­ari umfjöllun um hana væri vænt­an­leg. Stuttu síðar hvarf sú frétt af vefnum eins og margir muna og aldrei fékkst nein skýr­ing á því hvers vegna ekki varð af umfjöll­un­inni.

Eftir að syst­urnar þrjár, frænkur Ásmundar Einars Daða­sonar, upp­lýstu um vafa­sama hegðun og for­tíð hans í hlað­varp­inu Lömbin þagna ekki, gróf ég upp sam­skipti mín við umræddan blaða­mann. Ég finn mig knúna til að birta þessi sam­skipti þó ekki væri nema til þess að renna stoðum undir þann grun systr­anna þriggja um að Ásmundur kunni að nýta sér valda­stöðu sína með óeðli­legum hætti. Ég lít þannig á að almenn­ingur eigi heimt­ingu á að vita þetta um ráð­herra mennta – og barna­mála á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum