Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lukkuriddarar mæna á Kristrúnu

Lukkuriddarar mæna á Kristrúnu
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra

Kannanir sem sýna gríð­ar­lega fylg­is­aukn­ingu Sam­fylk­ingar undir stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur þykja vera klár vís­bend­ing um að flokk­ur­inn muni tvö­fald­ast að minnsta kosti í næstu kosn­ingum. Jafn­framt liggur fyrir að ein­ungis helm­ingur núver­andi þing­flokks mun halda áfram. Helga Vala Helga­dóttir hrökkl­að­ist á brott eftir nokkurn nún­ing við ráð­andi for­ystu og sneri aftur í störf sem lög­fræð­ingur. Þá er talið að Oddný Harð­ar­dóttir, leið­togi í Suð­ur­kjör­dæmi, muni hætta. Ólíklegt er talið að Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, leið­togi í Kraganum, haldi áfram. Þá standa eftir þing­menn­irnir Jóhann Páll Jóhanns­son og Logi Ein­ars­son sem báðir eru í innsta valda­hring for­manns­ins.

Það bíður Kristrúnar nú það vnda­sama verk að manna fram­boðs­lista með fólki sem nær að heilla kjós­endur og fylgja eftir með­byrnum. Nokkrir lukku­ridd­arar for­tíðar hafa gefið frá sér óljós merki um að þeir vilji stökkva á sig­ur­vagn Kristrúnar. Þeirra á meðal eru Björgvin G. Sig­urðs­son, sem hefur átt í nokkru klandri síðan hann féll af þingi og er ólík­legur til að hala inn atkvæði. Þá er Guð­mundur Andri Thorsson, fyrr­ver­andi rit­höf­undur, sagður vera með von­ar­glampa í augum. Hann þótti af mörgum vera fremur aðgerða­lít­ill þing­maður og fljótt hefur fennt í spor hans á þingi. Aftur á móti er hann frjór og afkasta­mik­ill rit­höf­undur og ein­hverjir telja hann betur kom­inn í þeim geira áfram.

Talið er að Guð­mundur Árni Stef­áns­son, leið­togi minni­hluta bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar og vara­for­maður Sam­fylk­ingar, sé til­bú­inn að leiða flokk­inn í Kraganum. Þess er að vænta að fram­boð hans legg­ist vel í kjós­endur og gefi flokknum nauð­syn­legan blæ reynslu og póli­tískrar visku. Allt mun þetta ráð­ast af vilja Kristrúnar sem heldur fast um alla þræði í flokknum …

Uppfært: Í upp­haf­legri útgáfu Orðróms­ins var full­yrt er að Oddný Harð­ar­dóttir hefði gefið út að hann ætl­aði að hætta. Það er rang­hermt. Hún er að hugsa sinn gang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Slúður