Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Páll Rósinkranz handtekinn á Ísafirði árið 1993: „Beið bara eftir því að vera tekinn í rass“

Páll Rósinkranz handtekinn á Ísafirði árið 1993: „Beið bara eftir því að vera tekinn í rass“
Ísa­fjörður – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd: wikipedia

Stór­söngv­ar­inn Páll Rósinkranz lenti í slags­málum á Ísafirði árið 1993.

„Hjá okkur voru engar heima­sætur. Það var eng­inn afbrýði­samur og eng­inn að stinga undan neinum. Það eina sem heima­menn­irnir vildu varað kom­ast í partí,“ sagði Þor­steinn Kragh umboðs­maður Jet Black Joe í við­tali við Pressuna árið 1993. Þor­steinn og Páll Rósinkranz voru hand­teknir eftir slags­mál við Ísa­firð­inga eftir tón­leika. Vakti það athygli fjöl­miðla á þeim tíma að tára­gas var notað við lög­reglu­að­gerð­irnar til að stoppa slags­málin.

„Þetta var sjálfs­vörn, þótt við séum hins vegar ekki alsaklausir. Það er ýmis­legt sem hefði mátt betur fara hjá lög­regl­unni á ísa­firði, þótt Ísfirð­ingar séu upp til hópa ágæt­is­fólk,“ sagði Þor­steinn og að þeir Páll hefðu verið nokkuð slas­aðir eftir átökin.

„Við höfðum ekki í hyggju að halda neitt partí. Það stóð til að fara snemma að sofa á sunnu­dags­kvöldið, því við vorum á heim­leið snemma dag­inn eftir þarsem við áttum að hitta Steve nokkurn Louis, umboðs­mann TKO-fyr­ir­tæk­is­ins, vegna hugs­an­legrar samn­ings­gerðar. Heima­menn­irnir rudd­ust að okkur og sögð­ust vera búnir að dæla í okkur brenni­víni alla helg­ina, sem er ekki rétt. Nú vildu þeir að við héldum partí, en af því við neit­uðum þeim hót­uðu þeir okkur öllu illu. Með herkjum tókst mér þó að koma þeim út,“ sagði umboðs­mað­ur­inn knái. 

„Þrátt fyrir að Guð­mundur Fylk­is­son lög­reglu­maður stæði þarna fyrir utan sáum við hann aldrei gera nokkurn skap­aðan hlut. Hann bara stóð þarna fyrir utan og glotti. Nokkru síðar tekur einn heima­manna upp grjót og hendir í glugg­ann, sem brotnar, og veldur því að trommar­inn skerst á hendi. Í stað þess að hlaupa út og ráð­ast að þeim hringi ég í lög­regl­una, kynni mig og bið um aðstoð. Lög­reglu­mað­ur­inn sem ég tal­aði við segir mér að láta vinn­andi fólk í friði og skellir á. Ég hringi aftur og fer aftur fram á aðstoð og bið um nafn hans. Eftir til­tal segir hann loks til nafns; seg­ist heita Ögmundur Jónsson, fer með sömu rull­una og skellir aftur á mig. Að ég hafi hringt og beðið um aðstoð kemur hins vegar ekki fram í skýrslum lög­regl­unnar. Ögmundur við­ur­kenndi þó fyrir rann­sókn­ar­lög­reglu­mann­inum að ég hefði hringt í sig.“

„Þetta leiddi til þess að við gripum í laus­lega hluti, eins og komið hefur fram, og óðum út. Semsagt vörð­umst hnífi og grjóti með tré að vopni,“ og á ein­hverjum tíma­punkti fékk Þor­steinn grjót­hnull­ung í brjóst­kass­ann.

„Allt verður svart,“ hélt Þor­steinn áfram. „Enda sjö til átta manns í slags­málum: Ég, Páll og Sigurður Már, rót­ari hljóm­sveit­ar­innar, endum í slags­málum við heima­menn­ina, sem voru fjórir — ekki þrír eins og fréttir hermdu —, fjórði mað­ur­inn kom þeim til hjálpar aðeins síðar. Allt í einu heyri ég nafnið mitt kallað og lít upp. Þá er sprautað á mig táragasi. Svo eru kölluð nöfn Páls og Sigurðar Más og líka sprautað á þá táragasi. Táragasi var hins vegar ekki sprautað á heima­menn­ina.“

Eftir þetta leyst­ust slags­málin upp og Þor­steinn og Páll hand­teknir og færðir til yfir­heyrslu. Við yfir­heyrslu var þeim til­kynnt að heima­maður hefði kinn­beins­brotnað og Þor­steinn og Páll yrðu kærðir fyrir það. Þor­steinn sagði að þeir hefðu ekki átt sök að máli og að mað­ur­inn hefði mögu­lega kinn­beins­brotnað við fall. Meðan Þor­steinn var yfir­heyrður var Páll lát­inn sitja í fanga­klefa.

„Þetta var eins og að vera á geð­sjúkra­húsi; ekk­ert nema hvítir veggir. Maður beið bara eftir því að vera tek­inn í rass þarna,“ sagði Páll Rósinkranz um málið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni