Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

The Crown-leikkonan Haydn Gwynne er látin

The Crown-leikkonan Haydn Gwynne er látin
Blessuð sé minn­ing hennar Mynd: Trausti Hafsteinsson

Breska leik­konan Haydn Gwynne er látin, 66 ára að aldri.

Leik­konan breska, Haydn Gwynne, sem hvað þekkt­ust er fyrir að leika með­lim kon­ungs­fjöl­skyld­unnar bresku, bæði í grín­þátt­unum The Windsors og drama­þátt­unum The Crown, er látin, 66 ára að aldri.

Í yfir­lýs­ingu frá aðstand­endum hennar segir: „Með mikla sorg í hjarta deilum við því með ykkur, að stjarna leik­sviðs­ins og skjás­ins, Haydn Gwynne lést á spít­ala í dag, eftir stutta bar­áttu við krabba­mein. Hún var umkringd ást­kærum sonum sínum, nánum fjöl­skyldu­með­limum og vinum, á dán­ar­stund­inni.“

„Við viljum þakka heil­brigð­is­starfs­fólkinnu á Royal Marsden og Brompton spít­al­anna fyrir ynd­is­lega ummönnun síð­ustu vikur.“

Gwynne neydd­ist til þess í sept­em­ber að hætta í West End leik­sýn­ing­unni Stephen Sondheim´s Old Friends, vegna „per­sónu­legra aðstæðna sem bar skjótt að“.

Leik­fer­ill Gwynne hófst er hún var á miðjum þrí­tugs­aldri, eftir að hún hafði lært félags­fræði við Háskól­ann í Nott­ing­ham en hún hafði einnig starfað sem ensku­kenn­ari í Róm.

Fyrsta stóra hlut­verkið fékk hún árið 1990, er hún lék Alex Pates í bresku grín­þátt­unum Drop the Dead Donkey. Á tíunda ára­tugnum lék Gwynne í fjöldi sjón­varps­þátta en hlut­verk hennar voru fjöl­breytt en hún lék meðal ann­ars í barna­þátt­unum Time Riders og drama­þátt­unum Peak Practice og Mersey­beat.

Margir muna best eftir Gwynne fyrir hlut­verk hennar á leik­sviðum, sér­stak­lega fyrir hlut­verk hennar í West End og Broadway-söng­leiknum Billy Elliot. Þar lék hún Mrs Wilkinson, kenn­ara hins unga dans­ara. Árið 2006 hlaut hún til­nefn­ingu Olivier verð­laun­anna fyrir hlut­verk hennar í Lund­úna­upp­setn­ingu söng­leiks­ins.

Þá sló hún einnig í gegn fyrr á árinu í The Great British Bake-Off-söng­leiknum þar sem hún lék dóm­ara bak­ara­keppn­innar, Pam Lee. Gwynne hafði upp­haf­lega verið for­vitin að leika í leik­riti byggða á bök­un­ar­keppni í sjón­varpi en hún sagði í við­tali við The Independent að hún hafi svo orðið yfir sig hrif­inn yfir því hversu flólið leik­ritið væri og djúpt.

„Það er skemmti­legt og fyndið, en það snertir mann líka, þannig að ég held að áhorf­endur fái hell­ing út úr því,“ útskýrði hún. „Hjart­næmt, getur verið væmið orð, en ég held að fág­unin og gæði hand­rits­ins og text­anna, muni koma fólki á óvart.“

Aukreitis er Gwynne vel þekkt fyrir túlkun hennar á Kamillu Bret­lands­drottn­ingu í grín­þátt­unum The Windsors. Þá lék hún einnig lafði Súsanna Hussey, í fimmtu seríu The Crown þátt­anna.

Gwynne tjáði sig um kynnum sínum af Karli III, rétt fyrir krýn­ingu hans. Sagðist hún hafa hitta þau hjónin oft og að hún hafi alltaf verið „mjög hrifin“ af hrein­skilni þeirra.

„Ég hef hitt Karl margoft því hann er nokkuð áhuga­samur um leik­hús,“ útskýrði leik­konan. „Ég hitti Kamillu einnig fyrir mörgum árum á kon­ung­legri frum­sýn­ingu kvik­myndar sem ég lék fyrir löngu síðan. Ég hef ekki hitt þau nýlega. Það hefur til­hneig­ingu til að vera þannig að fólk sé ekki mjög áhuga­samt um að ég hitti það lengur, vegna þess að fjöl­miðla­fólk heldur að pressan gæti truflað.“

Haydn Gwynne lætur eftir sig föru­naut sinn, Jason Phipps og syni þeirra tvo, Orlando og Harry.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar