Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Mikael Máni gefur út þriðju plötu sína – Strætisvagnar áhrifavaldar í tónlistarsköpuninni

Mikael Máni gefur út þriðju plötu sína – Strætisvagnar áhrifavaldar í tónlistarsköpuninni
Mikael Máni

Smekk­leysa gefur út þriðju plötu gít­ar­leik­ar­ans Mikaels Mána, INNERMOST, 18. nóv­em­ber næst­kom­andi á geisla­disk og merktum vínyl í tak­mörk­uðu upp­lagi (001-100). 

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Smekk­leysu er INNERMOST konsept-plata, hug­leið­ing um æsk­una og áhrif tón­listar. Lögin eru samin um tán­ingsár Mikaels, hlut­ina sem mót­uðu hann og gerðu þetta tíma­bil að mik­il­vægum stökk­palli út í full­orð­ins­árin. Í tón­smíða­ferl­inu og í útsetn­ingum kaf­aði Mikael í tón­list­ina sem hann hlust­aði mest á á þeim árum, oft­ast á löngum stræt­ó­ferðum á leið í og úr skóla í strætó 3. Til þess að end­ur­spegla það hélt bandið örtón­leika í gömlum stræt­is­vagni sem teknir voru upp á mynd­band, þar voru spiluð tvö lög plöt­unnar, en annað lagið heitir Bus Song (Strætólagið).

INNERMOST var tekin upp með kvin­tett Mikaels í júní 2022, eins og áður sagði semur Mikael tón­list­ina að und­an­skildu einu töku­lagi eftir Syk­ur­mol­ana, Birthday (Ammæli). Auk Mikaels eru í hljóm­sveit­inni Magnús Trygva­son Eliassen á trommur, Henrik Linder á bassagítar, Lilja María Ásmunds­dóttir á píanó og metala­fón og Tómas Jónsson á hljóm­borð. Strengja­kvar­tett skip­aður Unu Svein­bjarn­ar­dóttur, Yasney Rojano Cruz, Guðrúnu Hrund Harð­ar­dóttur og Júlíu Mogensen spilar auk þess inn á 3 lög á plöt­unni. Um upp­töku­stjórn sá Hilmar Jensson, Albert Finn­boga­son hljóð­maður og með-upp­töku­stjórn og Hoffe Stanow  hljóð­jöfnun.

Útgágu­dag­inn 18. nóv­em­ber verður hald­inn sér­stakur við­burður í Smekk­leysu Plötubúð, Hverf­is­götu 32, kl.17-19. Mikael Máni og Hilmar Jensson gít­ar­leik­ari, sem sá um upp­töku­stjórn á plöt­unni, munu leika lög af plöt­unni ásamt eldra efni í nýjum útsetn­ingum. Hilmar kenndi Mikael fyrir 10 árum síðan, þegar hann var í FÍH og var gam­all gítar Hilmars í mörg ár aðal­gítar Mikaels. Mikael ákvað að biðja Hilmar að stjórna upp­tökum á plöt­unni eftir að hann dreymdi draum þar sem hann og Hilmar voru saman við upp­tökur í stúd­íói. Eftir að hann vakn­aði fannst honum þetta vera áhuga­verður draumur,  þar sem hann vissi að Hilmar hafði aldrei séð um upp­töku­stjórn nema á plötum sem hann spil­aði líka sjálfur inn á. Það varð úr að Mikael tal­aði við Hilmar sem var til í slag­inn.  

Útgáfu­tón­leikar verða síðan haldnir sunnu­dag­inn 7. jan­úar, kl. 17:00 í Hann­es­ar­holti með hljóm­sveit Mikaels sem spil­aði inn á plöt­una.

Mikael Máni gaf út sína fyrstu breið­skífu Bobby árið 2018, konsept-plötu um líf umdeilda skák­meist­ar­ans Bobby Fischer, þar sem Skúli Sverr­is­son og Magnús Trygva­son Eliassen leika með honum. Platan fékk mikla athygli jafnt inn­an­lands sem erlendis og hefur lögum plöt­unnar verið streymt meira en 1.300.000 sinnum. Önnur plata hans, Nostal­gia Machine þró­aði hljóð­heim Mikaels enn frekar, en hún var tekin upp með einum virtasta upt­töku­stjóra í jazz-tón­list­inni í dag, Matt Pierson: Matt hefur unnið með Pat Metheny, Brad Mehldau og vinnur nú með Samara Joy. Platan fékk við­ur­kenn­ingu frá Cerys Matthews, var valin jazz plata árs­ins hjá Morg­un­blað­inu og var til­nefnd til Kraumsverð­laun­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar