Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Synir Guðmundar kalla fram jólabarnið í honum: „Maður leyfir sér að gera gott við sig“

Synir Guðmundar kalla fram jólabarnið í honum: „Maður leyfir sér að gera gott við sig“
Guð­mundur Jónsson gaf út frá­bæra jóla­plötu fyrir stuttu – Mynd: Facebook

Jólin eru á handan við hornið og jóla­lög byrjuð að hljóma um land allt en und­an­farin ár hefur verið skortur á góðum nýjum jóla­lögum að mati sumra. Einn besti laga­höf­undur Íslands, Guð­mundur Jónsson, hefur svarað kall­inu með útgáfu á frá­bærri nýrri jóla­plötu sem nefn­ist Jóla­draumur en á þeirri plötu er að finna ný lög og gömul lög í nýjum bún­ing. Framundan eru svo útgáfu­tón­leikar í Salnum Kópavogi, sunnu­dag­inn 10. des­em­ber, þar sem öllu verður tjaldað til og platan frum­flutt ásamt vel­völdum jóla­á­breiðum. Platan er vænt­an­leg á geisla­disk fyrir sönn jóla­börn en hægt er að hlusta á hana á streym­isveitum. Mannlíf heyrði í Guðmundi vegna plöt­unnar.

„Það kemur eig­in­lega tvennt til,“ sagði Guð­mundur þegar hann var spurður af hverju hann tók þá ákvörðun að gera jóla­plötu. „Ég á tvo unga drengi sem gefa mér hvað mest og best í líf­inu og kalla fram jóla­barnið í mér. Annað er að maður er alltaf að remb­ast við að vera skap­andi, prófa sig áfram sem laga­smiður, tikka við boxin og jólatón­list var kannski næst á dag­skrá. Auk þess að ég átti slatta af lögum sem höfðu legið óbætt hjá garði í nokkur ár og mér fannst þau smellpassa í þetta jóla­þel, ásamt því að bæta við nokkrum nýjum ópusum.“

„Verk­efnið kall­ast Jóla­draumur og er undir áhrifum frá jóla­sög­unni frægu Christmas Carol eftir Charles Dickens, jóla­saga með sígildan boð­skap,“ sagði gít­ar­leik­ar­inn góði um inn­blást­ur­inn fyrir plöt­una. “Jóhann Sig­urð­ar­son leik­ari og söngv­ari var mér innan handar frá byrjun og við texta­gerð hjálp­uðu mér, Kristján Hreins­son og Friðrik Sturlu­son, sem jafn­framt spilar með mér á plöt­unni ásamt Eysteini Eysteins­syni, Birgi Þór­is­syni og fl. Lögunum er laus­lega mátað við sög­una og frá­bærir söngv­ara; Íris Lind Veru­dóttir, Edgar Smári, Salka Sól, Þór Breið­fjörð, Margrét Eir og Jóhann, túlka svo hin ýmsu hlut­verk af sinni alkunnu snilld.“

En hvaða lög koma Guðmundi í jóla­skap?

„Yfir­leitt kemst ég í jólafíl­ing er ég heyri gömlu swingjólalögin sungin af „krúnerum“ eins og Bing Crosby, Nat King Cole, Ellu Fitzgerald og fleirum. En svo eru líka nokkur íslensk jóla­lög sem ég fæ sjaldan leið á, þó þau séu spiluð í döðlur, eins og Ef ég nenni, Frið­ar­jól, Þú komst með jólin til mín, Handa þér og fleiri.“

„Ætli það sé ekki þegar ég var að hlusta yfir og raða saman plöt­unni fyrir hljóm­jöfnun,“ sagði Guð­mundur um það augna­blik í ferl­inu sem stendur upp úr að hans mati. „Mér fannst hún bara þræl­virka og halda nokkuð vel vatni miðað við allt og allt, því oftar en ekki er maður búinn að fá nóg á þessum tíma­punkti. En ferlið að þessu sinni var lengra og öðru­vísi en oft áður. Fyrstu lögin komu út árið 2020 og hafði því megnið af lög­unum litið dags­ins ljós sem smá­skífur áður en platan var til­búin í haust, fyrir utan þrjú nýj­ustu,“ en hvernig er jólin hans Guð­mundar?

„Bara ánægju­leg yfir­leitt. Vetra­byrjun fram yfir jól er minn önd­veg­is­tími og vildi ég hvergi ann­ars staðar vera en hér á klak­anum í kulda og trekki. Ég er lítið að stressa mig fyrir jólin og maður leyfir sér að gera gott við sig í mat og drykk, nýtur sam­vista með fjöl­skyld­unni og sér­stak­lega strák­unum mínum.“

„Ekkert sér­stakt,” sagði Sál­ar­mað­ur­inn knái um hvað hann vildi fá í jóla­gjöf. „Nema hinn bráð­nauð­syn­lega Nóa konfekt­kassa sem ég treysti á að fá frá elsta syni mínum – þá mega jólin koma fyrir mér, eins og segir í kvæð­inu góð­kunna.“

Hægt er að hlusta á alla plöt­una hér fyrir neðan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una