Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Grínbandið sem gerbreytti glassúrnum í gimsteina

Grínbandið sem gerbreytti glassúrnum í gimsteina

Í dag eigum við Íslend­ingar þrjár heims­frægar hljóm­sveitir – Of Monsters and Men, Kaleo og Sigur Rós.

Eru á fullu gasi.

(Ef ég er að gleyma ein­hverri hljóm­sveit þá biðst ég fyr­ir­fram afsök­unar á því).

Hvað varðar sóló artista þá er það Björk sem gnæfir yfir öllum og hefur lengi gert. Þá er Leufey Lín alltaf að verða stærra og stærra nafn úti í hinum stóra heimi.

En Björk kom hins vegar úr hljóm­sveit­inni sem ger­breytti íslensku tón­list­ar­lands­lagi – Syk­ur­mol­unum.

Áður en upp­rifjun á ferli Syk­ur­mol­anna hefst, þá er vert að geta þess að margar íslenskar hljóm­sveitir reyndu að „meika“ það í útlöndum, og þá helst í höf­uð­borg rokks­ins og popps­ins, London.

Allar þessar hljóm­sveitir sem reyndu að koma sér á fram­færi erlendis voru þræl­góðar, enda höfum við Íslend­ingar átt alveg ótrú­lega góða hljóð­færa­leik­ara í gegnum tíð­ina sem of langt mál væri að telja upp.

Hins vegar var það þessu hljóm­sveitum að „falli“ að þær reyndu að aðlaga sig að vin­sælum hljóm­sveitum á Bret­landseyjum og voru í raun, sumar hverjar að minnsta kosti, ekk­ert síðri en þær bresku. Málið var hins vegar það að Bret­arnir höfðu lít­inn sem engan áhuga á útlendum hljóm­sveitum sem hljóm­uðu eins og þeirra eigin hljóm­sveitir.

En þessi „sann­leikur“ kom hins vegar ekki í ljós fyrr en árið 1987.

Þá kom fram á sviðið hljóm­sveit sem kall­aði sig Syk­ur­mol­arnir.

Allir með­limir hljóm­sveit­ar­innar komu úr ann­að­hvort pönk­sen­unni eða svo­kall­aðri nýbylgju með skír­skot­anir í rokk.

Syk­ur­mol­arnir voru stofn­aðir sem hálf­gert, eða algert, grín­band, eða ein­hvers­konar hlið­ar­sjálf hljóm­sveit­ar­innar Kukl. Tónlist Kukl var frekar dimm, alvar­leg og djúp, og textar eitt­hvað til að pæla í.

Kuklið vakti athygli fyrir sér­stakan hljóð­heim – stundum þungur og myrkur – og laga­smíðar ein­kennd­ust af pönk­legri til­rauna­mennsku og fram­úr­stefnu­legum söngstíl Bjarkar Guð­munds­dóttur og Einars Arnar Bene­dikts­sonar.

Kuklið reyndi við „meikið“ og gekk bara merki­lega vel; gaf út plötur hjá bresku útgáf­unni Crass og spil­aði tölu­vert mikið í Evrópu og kom meðal ann­ars fram á Hró­arskeldu­há­tíð­inni árið 1985.

Meðlimir Kukl voru blanda sem kom úr hljóm­sveit­unum Tappi Tík­arrass, Purrkur Pillnikk og Þeyr. En áhugi Íslend­inga á hljóm­sveit­inni var við frost­mark – þrátt fyrir að Kuklið hefði öðl­ast nokkrar vin­sældir hér og þar í Evrópu og fóru víða um álf­una og héldu tón­leika, eins og áður hefur komið fram.

Árið 1986 stofn­uðu með­limir Kuklsins hljóm­sveit­ina Syk­ur­mol­ana og litu á bandið sem auka­verk­efni og/eða hlið­ar­sjálf Kuklsins, með mun létt­ari áherslum.

Tónlist Syk­ur­mol­anna var þó aldrei neitt lyftu­popp; samt mun meira gríp­andi en Kuklið og pönk­sveit­irnar sem hljóm­sveit­irnar voru stofn­aðar úr.

Ef áhugi Íslend­inga á hljóm­sveit­inni Kukl var við frost­mark þá var áhug­inn á Syk­ur­mol­unum langt fyrir neðan frost­mark; áhug­inn hér á landi var nán­ast eng­inn, og ein­ungis örfáir „fastakúnnar“ hljóm­sveit­anna Kukl og Syk­ur­mol­anna mættu á tón­leika hér­lendis.

Það átti eftir að breyt­ast árið 1987 þegar tón­list­ar­blöðin Melody Maker og NME (New Musical Express) völdu bæði lagið Birthday sem smá­skífu vik­unnar; þá fóru hjólin að snú­ast og við Íslend­ingar eign­uð­ust loks­ins heims­fræga hljóm­sveit.

Syk­ur­mol­arnir gáfu út þrjár plötur, sem allar nutu mik­illa vin­sælda víða um heim; Life´s To Good kom út árið 1988, Here Today, Tomorrow Next Week! kom út ári síðar og svana­söng­ur­inn Stick Around for Joy leit dags­ins ljós árið 1992. Á þeirri plötu varð lagið Hit mjög vin­sælt víða um heim.

Syk­ur­mol­arnir fóru í tón­leika­ferð með U2, en hættu skömmu eftir tón­leika­ferða­lagið.

En um leið og toppnum var náð hjá Syk­ur­mol­unum hætti hljóm­sveitin störfum og Björk varð ári seinna ein vin­sælasta og virtasta tón­list­ar­kona heims; og sér ekki fyrir end­ann á þeim ferli.

Þegar ég segi að toppnum hafi verið náð árið 1992 með lag­inu Hit, sem var vin­sælasta lag Syk­ur­mol­anna og komst í 17. sæti breska vin­sæld­ar­list­ans, meina ég líka að hljóm­sveit­inni var boðið að hita upp á risa­stóru tón­leika­ferða­lagi hjá vin­sæl­ustu og stærstu hljóm­sveit heims á þessum tíma, U2.

Þáðu Syk­ur­mol­arnir boðið, en eftir að tón­leika­ferða­lag­inu með U2 lauk, þá lauk einnig sögu Syk­ur­mol­anna, sem telst án alls vafa áhrifa­mesta íslenska hljóm­sveit allra tíma; hljóm­sveit sem ruddi braut­ina fyrir margar aðrar íslenskar hljóm­sveitir sem hafa notið vel­gengni Syk­ur­mol­anna ríku­lega.

Manna­breyt­ingar voru ekki miklar hjá Syk­ur­mol­unum og hér má sjá með­limi hljóm­sveit­ar­innar frá árunum 1986 til 1992.

Björk Guð­munds­dóttir – Söngur

Einar Örn Bene­dikts­son – Söngur og trompet

Þór Eldon – Gítar

Bragi Ólafsson – Bassi

Sig­tryggur Bald­urs­son – Trommur

Einar Melax (1986-1988) – Hljóm­borð

Margrét Örn­ólfs­dóttir (1988-1992) – Hljóm­borð og bak­raddir

Friðrik Erlings­son – Gítar (1987-1988)

Ps: Eftir að Syk­ur­mol­arnir hættu árið 1992 hafa þeir einu sinni komið saman opin­ber­lega og haldið tón­leika. Það var árið 2006, í Laug­ar­dals­höll, í til­efni af því að 20 ár voru þá liðin frá því að hljóm­sveitin var stofnuð.

Þeir tón­leikar voru stór­kost­legir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti