Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pétur læknir kærður fyrir ummæli um eistu íþróttamanna: „Skilst að lögmaður stefnanda sé flúinn“

Pétur læknir kærður fyrir ummæli um eistu íþróttamanna: „Skilst að lögmaður stefnanda sé flúinn“
Akureyri – Mynd: Wikipedia

Pétur Pét­urs­son læknir var kærður af vaxt­ar­rækt­ar­mönnum árið 1991.

Forsaga máls­ins er sú að lækn­ir­inn var í útvarps­þætti til við­tals og ræddi meðal ann­ars um stera­notkun á Íslandi og sagði það vera und­an­tekn­ingu ef karl­menn í vaxt­ar­rækt not­uðu ekki stera. Þá sagði hann einnig að „…eistun í þessum ræflum rýrna og verða ræf­ils­leg.“

Þessi ummæli voru nóg til þess að 35 vaxt­ar­rækt­ar­menn kærðu Pétur fyrir meið­yrði og kröfðu hann um 10,5 millj­ónir. Þá kröfð­ust þeir einnig að hann yrði dæmdur til fang­els­is­vistar.

„Þeir eru 35 sem hafa kært mig og því eru þetta 150 þús­und krónur á hvert eista. Þetta er ekki til ann­ars en að hlæja að því. Það hefur yfir­leitt verið þannig með meið­yrða­mál að það er hlegið að þeim og sá sem kærir tapar alltaf, sið­ferði­lega eða fyrir dómi. Ég tek þessu því með ró. Hins vegar tek ég því ekki með ró að það er í gangi umtals­vert magn af horm­óna­lyfjum sem verið er bein­línis að hvetja ung­linga til að nota. Ég er að vara við þessu því þetta er hættu­legt,“ sagði lækn­ir­inn um málið í sam­tali við DV um málið. 

„Það er alveg sama þótt ein­hverjir beljakar komi í fjöl­miðla og full­yrði að þetta sé tóm lygi. Það er ljóst að þeir hafa hags­muna að gæta í mál­inu og það þarf ekki mikla skyn­semi til að sjá hver lýgur og hver hefur hag af því að ljúga. Ég hef ekki hag af því,“ sagði Pétur. 

Menn­irnir létu þó ekki nægja að kæra Pétur fyrir meið­yrði heldur kærðu þeir hann einnig til siða­nefnd Lækna­fé­lags Íslands. Þar var Pétur áminntur fyrir ummælin.

„Ég fagna því að siða­nefnd hefur tekið þetta erindi til með­ferðar og úrskurðað í því eins og ég hafði vonað að hún myndi gera. Allur orðrómur um læknama­fíu og að læknar standi saman sem einn maður með félaga úr sínum röðum virð­ist ekki eiga við. Þessi sam­tök virð­ast geta litið hlut­laust á málin,“ sagði Ólafur Sig­ur­geirs­son í sam­tali við DV. Pétur var sjálfur mjög sáttur með nið­ur­stöðu máls­ins.

„Ég er mjög ánægður með þessa nið­ur­stöðu. Það er mjög óveru­legt sem ég er áminntur fyrir. Hins vegar er efn­is­lega tekið undir það sem ég hef sagt og ekki dregið í efa að það sé satt. Það eina sem þeir hafa við þetta að athuga er fram­setn­ingin og að ég hafi ekki gætt ýtr­ustu var­kárni með alhæf­ingu minni. Ég veit að til þess að tekið sé eftir því sem sagt er þarf að setja það fram á ákveð­inn hátt. Varn­ar­orð mín hafa fengið umfjöllun og það er það sem skiptir máli. Á meðan ég er ekki áminntur um ósann­sögli eða að hafa legið á liði mínu er ég ánægður,“ sagði Pétur Pét­urs­son.

Máli krafta­karl­anna var hins vegar vísað frá af Hér­aðs­dómi Akur­eyrar.

„Þegar verið er að krefj­ast tveggja ára tukt­hús­vistar verður kröfu­gerðin að vera í sam­ræmi við það sem tíðkast þegar um opin­ber mál er að ræða. Refsi­kröf­unni var því vísað frá,“ sagði Pétur. „Mér skilst að lög­maður stefn­anda sé flú­inn á fjöll og hafi lokað far­sím­anum. Hann hefur ekki veru­lega ánægju af þessu máli. Það var mál­flutn­ingur hér á mánu­dag­inn en hann mætti ekki og sendi lög­fræði­mennt­aðan dreng í stað­inn. Það gerir ekk­ert til fyrir mig að þetta skuli ekki hafa verið tekið fyrir efn­is­lega því land­læknir og siða­nefnd lækna hafa fjallað um málið og sagt að varn­að­ar­orð mín hafi haft við rök að styðj­ast og sú full­yrð­ing mín að mis­notk­unin sé útbreidd. Auk þess hafi ég verið í rétti og borið skylda til að vekja athygli á þeirri vá sem sterar geta haft í för með sér. Þar vann ég sigur því það var efn­is­leg umfjöllun,“ sagði Pétur Pét­urs­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni