Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ívar Orri gjörbreytti lífi sínu: „Áfallið var andleg vakning“

Ívar Orri gjörbreytti lífi sínu: „Áfallið var andleg vakning“
Ívar Orri Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ívar Orri Ómarsson, frum­kvöð­ull og rekstr­ar­maður seg­ist hafa gjör­breytt lífi sínu eftir að hann greind­ist með syk­ur­sýki. Ívar er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar og seg­ist hafa orðið með­vit­aður um ódauð­leika sinn og í kjöl­farið hafi hann ákveðið að vera hann sjálfur, breyta lífs­stílnum og segja alltaf sann­leik­ann:

„Eins klikkað og það hljómar er ég mjög þakk­látur fyrir að hafa greinst með syk­ur­sýki. Það var það sem ég þurfti til þess að breyta lífi mínu. Í raun var þetta and­leg vakn­ing. Áður en ég fékk syk­ur­sýk­ina var ég ekki á leið­inni neitt í líf­inu, hafði ekki trú á sjálfum mér og var fastur í að velta mér upp úr áliti ann­arra. En þarna fékk ég löðr­ung­inn sem þurfti og í kjöl­farið kom gríð­ar­legur kraftur og metn­aður og ég vissi bara að ég ætti að taka ábyrgð á eigin lífi. Eitt af því var að standa algjör­lega með sjálfum mér og segja það sem ég er að hugsa án þess að hiksta. Töl­fræðin segir mér að það sé búið að stytta líf mitt um að minnsta kosti 20 ár. Ég átt­aði mig á því að ég er ekki ódauð­legur og hef tak­mark­aðan tíma á jörð­inni. Ég hef ákveðið að taka slag­inn þegar kemur að því að tala um mat­ar­ræði, heilsu, lyfja­iðn­að­inn og mat­væla­iðn­að­inn. Ég hef fengið á mig alls konar hót­anir og vesen, en þegar maður er búinn að sætta sig við að maður sé að fara að deyja fer ótt­inn og ég held ótrauður áfram,” segir Ívar, sem fer í þætt­inum yfir dag­ana áður en áfallið átti sér stað:

„Þetta byrj­aði á sunnu­degi eftir heila helgi af gríð­ar­legu sukki. Ég var í frá­bæru lík­am­legu formi og var að keppa í bar­daga­í­þróttum, en verð­laun­aði mig oft um helgar með því að sukka. Þennan laug­ar­dag hafði ég borðað stóra Domino´s pizzu, borð­aði mikið magn af blandi í poka, heilan kassa af æði­bitum, drakk sex dósir af red­bull og var líka fullur. Svo vakn­aði ég bara fár­veikur á sunnu­deg­inum og þurfti að kasta upp. Svo þegar leið á dag­inn var ég bara þurr­ari og þurr­ari, alveg sama hvað ég drakk mikið. Það hélt svo bara áfram dag­inn eftir og lag­að­ist ekk­ert, alveg sama hvað ég drakk mikið vatn. Svo gat ég ekki haldið í mér og þurfti að rjúka út úr bílnum á miðri götu til að fara að pissa. Bílarnir í kring flaut­uðu og fólk horfði undr­andi á mig. En ég átti engan val­kost, nema þá bara að pissa í bux­urnar. Svo varð ég bara slapp­ari og slapp­ari og létt­ist og létt­ist. Svo endar þetta með því að sjónin er farin að versna veru­lega og punkt­ur­inn sem ég átta mig á því að það sé eitt­hvað alvar­legt í gangi er þegar ég var nærri búinn að keyra á tvo gang­andi veg­far­endur á innan við tíu mín­útum. Eftir það ákvað ég loks­ins að bíða ekki lengur með að fara til læknis. Ég var svo sendur beint á spít­ala og þar var ég greindur á staðnum með syk­ur­sýki 1.”

Ívar hefur und­an­farið vakið mikla athygli fyrir að gera alls konar til­raunir á sjálfum sér og birta það á sam­fé­lags­miðlum. Hann hefur fengið alls konar við­brögð, bæði jákvæð og nei­kvæð, ekki síst eftir nýj­ustu til­raun­ina, þar sem hann borð­aði bara hráan mat í heilan mánuð:

„Ég vildi prófa að borða bara óeld­aðan mat í heil­an mánuð til að sjá hvort það  myndi hafa áhrif á mig. En svo ákvað ég að gamni að enda þetta á að borða hráan kjúkling og þá fór allt á hlið­ina. Ég ætl­aði nú aldrei að gera það, en ég fékk mikið af skila­boðum þar sem var verið að skora á mig og þá ákvað ég að kýla bara á það. Ég skil alveg að ein­hverjir hafi verið ósáttir með mig, en það er hluti af þessu öllu saman. Ég er í raun vinur allra og hef átt mjög góð sam­töl við fólk sem er ósátt við mig fyrst þegar það sendir mér skila­boð. En ég hef alla­vega fengið athygli út á þetta, sem von­andi verður til þess að beina sjónum að því sem ég er raun­veru­lega að reyna að segja.”

Ívar  rekur nú heilsu­verslun og hefur ákveðið að halda áfram að deila veg­ferð sinni í þeirri von að það fái ein­hverja til að breyta lífi sínu og lífs­stíl:

„Ég hef ákveðið að deila sög­unni minni með fólki og birta mynd­skeið af ferða­lag­inu mínu í þeirri von að það muni mögu­lega hvetja ein­hverja til þess að breytaum lífs­stíl og lifa betra og heilsu­sam­legra lífi. Lífs­stíls­sjúk­dóm­ar eru í sögu­legu há­marki og við verðum að fara að gera breyt­ingar og ég vil vera hluti af þeirri breyt­ingu. Ég þurfti að læra þetta á erf­iða mát­ann, þar sem ég greind­ist með syk­ur­sýki, en með því að hafa tekið líf mitt í gegn lifi ég núna mjög góðu og inni­halds­ríku lífi og er í mjög góðu jafn­vægi flesta daga.”

Ívar, seg­ist sann­færður um að við eigum eftir að sjá mikið af nýjum upp­lýs­ingum þegar fram líður:

„Ég trúi því að mat­ar­venj­ur og lífs­stíll hafi gríð­ar­leg áhrif á heilsu okk­ar og að í raun og veri megi fyr­ir­byggja flesta sjúk­dóma með skyn­sam­leg­um ákvörð­unum og réttu vali á mat­væl­um. Ég er sann­færður um að við séum rétt að byrja að sjá hvað hægt er að gera með réttum lífs­stíl. Auðvitað eru ekki allir sam­mála um hvað er hollur matur, en ég held að við getum alla­vega byrjað á að vera sam­mála um að ofurunn­inn matur er slæmur fyrir alla. Sambland af auka­efnum og sykri er kok­teill sem er ekki góður fyrir neinn og sér­stak­lega finnst mér slæmt að sjá hvernig óhollum mat er otað að börnum. Lækna­vís­ind­in segja að syk­ur­sýki I sé gena­sjúk­dóm­ur og að matar­æði hafi eng­in áhrif. En ég er gang­andi dæmi um að það er ekki alveg rétt. Líf mitt hefur gjör­breyst eftir að ég breytti lífs­stílnum hjá mér. Ég veit að það sem ég er að segja kemur frá minni upp­lifun og trú, en ég er þeirrar skoð­unar að lækna­vís­indin viti ekki allt og að gena­rann­sókn­ir séu í stöðugri þróun. Við vitum að umhverf­is­þættir spila stórt hlut­verk í öllu sem snýr að heilsu og það eru ótrú­legir hlutir að ger­ast hjá fólki sem hefur kosið að taka ábyrgð og breyta lífs­stíl sínum.”

Hægt er að nálg­ast við­talið við Ívar og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti