Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Setuverkfall hafið í utanríkisráðuneytinu: „Tími aðgerðaleysis er löngu liðinn!“

Setuverkfall hafið í utanríkisráðuneytinu: „Tími aðgerðaleysis er löngu liðinn!“
Setu­verk­fall

Setu­verk­fall stendur yfir í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu þar sem mót­mæl­endur hafa komið sér fyrir í and­dyri ráðu­neyt­is­ins til að mót­mæla aðgerð­ar­leysi íslenskra stjórn­valda hvað varðar þjóð­ar­morðið á Gaza

Hér má sjá yfir­lýs­ingu mót­mæl­enda:

Nú þegar 234 dagar eru liðnir af stig­mögn­uðu þjóð­ar­morði gegn Palest­ínu­fólki sjást engin ummerki um aðgerðir íslenskra yfir­valda. Veik­burða færslur á sam­fé­lags­miðlum og fálm­kennd frétta­við­töl þar sem ráða­menn tönnlast á tveggja ríkja lausn, þar sem ábyrgð varpað á hin kúg­uðu í stað kúgar­anna, eru ófull­nægj­andi við­brögð við þjóð­ar­morði. Íslensk yfir­völd verða að grípa til raun­veru­legra aðgerða gegn ólög­legum árásum Ísraels á Palest­ínu. Með aðgerða­leysi sínu gera yfir­völd almenn­ing sam­sekan í þjóð­ar­morði. Meiri­hluti almenn­ings er á móti þjóð­ar­morð­inu á Gaza og vilja að stjórn­völd beiti sér fyrir taf­ar­lausu vopna­hléi. Sið­ferð­is­legur brestur yfir­valda er algjör.

Þann 13. októ­ber sagði Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, á miðl­inum X: „Alþjóða­lög kveða á um rétt­indi og skyldur. Bæði eru heilög.“ Hvað ber íslenskum yfir­völdum að gera þegar þessi heilögu rétt­indi og skyldur eru virt að vettugi?

Ísland á aðild að Alþjóða­dóm­stólnum og Alþjóða saka­mála­dóm­stólnum, sem báðir hafa úrskurðað um að Ísrael beri að stöðva allar árásir í Palest­ínu, bæði á Gaza og á Vest­ur­bakk­anum, og hleypa taf­ar­laust inn mann­úð­ar­að­stoð í gegnum landa­mærin hjá Rafah. Þá hefur Alþjóð­legi saka­mála­dóm­stóll­inn (ICC) gefið út hand­tökutil­skip­anir á hendur Benjamin Net­anyahu, for­set­is­ráð­herra Ísraels og Yoav Gallant, varn­ar­mála­ráð­herra Ísraels. En hvað gerir Ísrael eftir slík fyr­ir­mæli?

Ísrael hefur ekki ein­ungis hundsað til­skip­anir dóm­stól­anna heldur stór­aukið á árásir í kjöl­far þeirra, nú síð­ast með hrylli­legri loft­árás á tjald­búðir flótta­fólks í Rafah þann 26. maí. Árásin var gerð á svæði sem Ísrael lof­aði að ætti að vera öruggt og voru þar fjöldi sak­lausra borg­ara, barna!, sem brennd voru lif­andi. Enn er ekk­ert lát á árásum Ísraels á Rafah í sjón­máli. Í kjöl­farið sagði utan­rík­is­ráð­herra að íslensk yfirv öld kalli eftir því að skip­anir Alþjóða­dóm­stóls­ins séu virtar og að komið sé á taf­ar­lausu vopna­hléi. Í kvöld­fréttum sama dag nefnir hún ekki eina ein­ustu aðgerð sem íslensk stjórn­völd ætla að ráð­ast í til að þrýsta á um að svo verði, heldur ýjar ein­göngu að því að ákveði Evr­ópu­sam­bandið að grípa til aðgerða gæti verið að Ísland styðji þær.

Ísland tók frum­kvæði árið 2011 með því að verða fyrst vestur-evr­ópskra þjóða til að við­ur­kenna Palest­ínu sem sjálf­stæða þjóð. Íslandi ber skylda til þess að fram­fylgja við­ur­kenn­ingu okkar á Palest­ínu sem full­valda ríki, annað er sýnd­ar­mennska og hræsni. Nýlega við­ur­kenndu Noregur, Írland og Spánn sjálf­stæði Palest­ínu. Það er ekk­ert því til fyr­ir­stöðu, annað en póli­tískur vilji íslensku rík­is­stjórn­ar­innar, að við höfum nú frum­kvæði að sam­starfi við þessar þjóðir og tökum til aðgerða til að knýja á um taf­ar­laust, var­an­legt vopna­hlé á Gaza, enda­lok her­náms Ísraels í Palest­ínu og að réttur palest­ínsks flótta­fólks til að snúa aftur til heim­kynna sinna og eigna sé tryggður, eins og sam­þykkt Sam­ein­uðu þjóð­anna nr. 194 gerir ráð fyrir.

Þar sem íslensk yfir­völd virð­ast ófær um að kort­leggja sjálf slíkar aðgerðir, eru hér dæmi. Við krefj­umst þess að:

  1. Settar verði við­skipta­þving­anir á Ísra­els­ríki.
  2. Ísland slíti stjórn­mála­sam­bandi við Ísra­els­ríki.
  3. Að Ísland styðja mál­sókn Suður-Afríku á hendur Ísra­els­ríkis við Alþjóða­dóm­stól­inn.
  4. Að utan­rík­is­ráð­herra hafi frum­kvæði að sam­tali við Norð­ur­löndin, Írland og Spán um að sam­hæfa aðgerðir.

Til að sýna for­dæmi um stuðn­ing við palest­ínsku þjóð­ina í verki skipu­leggjum við setu­mót­mæli í Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Lífið getur ekki gengið sinn vana­gang á meðan þjóð­ar­morð á sér stað, þegar tugir þús­unda hafa verið myrt og særð með kerf­is­bundnum hætti. Tími aðgerða­leysis er löngu lið­inn! Því munum við trufla eðli­legan gang yfir­valda þar til þau bregð­ast við í sam­ræmi við sið­ferð­is­legar skyldur og laga­legar skuld­bind­ingar gagn­vart palest­ínsku þjóð­inni. Þessi aðgerð er einn liður að því mark­miði.

Lifi frjáls Palest­ína!

Hér má svo sjá mynd­skeið frá mót­mæl­unum: Video (2)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina