Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kárahnjúkavirkjun mótaði æsku Loga Pedró: ,,Eins og að vera sendur í Gúlakið”

Kárahnjúkavirkjun mótaði æsku Loga Pedró: ,,Eins og að vera sendur í Gúlakið”

Logi Pedró Stef­áns­son segir Kára­hnjúka­virkjun hafa mótað æsku sína. Logi, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, var aðeins 13 ára gam­all þegar hann tók þátt í mót­mælum gegn aðbún­aði vinnu­fólks á Kára­hnjúkum, sem lög­reglan tók mjög hart á:

„Kára­hnjúka­virkjun mót­aði í raun ung­lings­árin mín mjög mikið. Pabbi vann sem trún­að­ar­maður starfs­manna þarna fyrir austan, en hann hefur alltaf verið and­ófs­maður á ákveð­inn hátt og farið gegn straumnum. Hann var hand­tek­inn í stúd­enta­mót­mælum bæði í París og á Íslandi. Aðstæður verka­mann­anna voru mjög slæmar á Kara­hnjúkum og það mót­aði mikið mína mynd af þessarri virkjun. Ég fór þarna tvisvar og þetta var bara alls ekki næs. Aðbún­að­ur­inn var mjög slæmur og þetta var á ákveð­inn hátt eins og að vera sendur í Gúlakið. Þetta var bara hættu­legt og það var ekki farið vel með þá sem voru að vinna þarna. Ég man ekki alveg hvað það voru margir sem lét­ust þarna, en það var aug­ljóst að það var ekki í lagi með margt við þessar fram­kvæmdir. Ég var bara þrettán ára þegar ég byrj­aði að taka þátt í því að mót­mæla aðbún­aði verka­manna og var í hópi sem var að skipu­leggja mót­mæli gegn þessu. Þetta var dáldið súr­r­eal­ískt, að mæta á fundi í Kaffi Hljóma­lind og taka batt­er­íið og sim­kortið úr sím­anum af því að það var lík­legt að það væri verið að hlera mann,“ segir Logi og heldur áfram:

„Maður pældi í því hvort þetta væri bara para­noia, en það var alls ekki þannig. Lög­reglu­að­gerðir gegn mót­mæl­endum voru mjög harðar og það var mikið gert til að stoppa þetta í fæð­ingu. Það voru ,,undercover” lög­reglu­menn sem komu sér inn í hóp mót­mæl­enda og áttu í ást­ar­sam­bandi við þá meðal ann­ars til þess að fá upp­lýs­ingar. Það er búið að vera að fletta ofan af þessu á síð­ustu árum og þetta var í raun mjög merki­legt tíma­bil.“

Logi hefur í gegnum tíð­ina rætt um ras­isma sem hann hefur orðið fyrir á Íslandi og hefur fengið mikil við­brögð við því. Hann seg­ist hafa hugsað hlut­ina upp á nýtt eftir að hann hafi eign­ast börn og lyk­il­at­riði sé að fest­ast ekki í svart hvítri umræðu:

„Ég hef mikið pælt í því hvað það er að vera svartur og fyrir mér var það alltaf skýrt og klippt og skorið. Ég leit á mig sem hluta af ákveðnum hóp og ákveð­inni sögu og stærra sam­hengi. Hluti af nýlendu­sög­unni til dæmis. En á síð­ustu árum hef ég hugsað þetta á nýjan hátt. Ekki síst eftir að ég eign­að­ist börn, sem eru ljós­ari en ég á hör­und og geta í raun ákveðið hvort þau séu svört eða hvít. Þetta mengi að vera svartur eða hvítur er í raun til­búið mengi. Við erum með lit­róf af fólki um allan heim og á síð­ustu árum hef ég áttað mig betur og betur á því að ég vil hafna þessarri for­ritun. En að sama skapi vil ég alls ekki gera lítið af upp­lifum fólks um það apð til­heyra ákveðnu mengi og hafa ákveðna sögu. Þessi mengi verða að fjötrum ef við fest­umst of djúpt í þeim,“ segir Logi og heldur áfram:

„Ég held að umræðan um ras­isma á Íslandi sé ekki ein­föld. Í dag snýst þetta ekki endi­lega um útlit. Fólk hefur ekki á móti ein­hverjum sem lítur ein­hvern vegin út, en fólk er oft með for­dóma gagn­vart stöðu fólks eða hóp­inn sem það til­heyrir. Fólk upp­lifir sig ekki rasískt af því að það er ekki með fór­dóma út frá húð­lit, en á sama hátt eru kannski ann­ars konar for­dómar í gangi. Til dæmis hvernig við höfum talað um Pólverja í gegnum tíð­ina og höfum ákveðna hug­mynd um hóp og alhæfum út frá því. Hvort sem það eru flótta­mann, múslimar eða annað. En þetta er ekki ein­föld umræða og það er ekki hægt að ná utan um hana nema fara tals­vert djúpt.“

Í þætt­inum tala Logi og Sölvi um menn­ing­ar­stríðið sem er í gangi í sam­fé­lag­inu, þar sem fólk með and­stæðar skoð­anir er oft gert að óvinum. Logi seg­ist umgang­ast marga sem hann er ósam­mála í mörgu og að honum finn­ist það heil­brigt og gera sér gott:

„Ég á bæði vini sem hafa farið mjög langt til vinstri og líka mjög langt til hægri á síð­ustu árunum, en mér finnst gott að vera innan um fólk sem ég er ekki alltaf sam­mála. Til dæmis Skoð­ana­bræður, þeir eru vinir mínir, en ég er oft ósam­mála því sem þeir segja. Ég er til dæmis mjög ósam­mála mörgu sem Snorri Másson segir um útlend­inga­mál. Hann er mikið að tala um að við verðum að varð­veita íslensk­una, sem ég er alveg sam­mála. En það sem mér finnst stundum vanta í þessa umræðu um inn­flytj­endur er meiri mennska og að við missum aldrei sjónar á því að verið erum að tala um fólk. Fólk sem á margan hátt heldur sam­fé­lag­inu okkar gang­andi. Ef við viljum að þetta fólk tali íslensku þarf ríkið að gera miklu meira og við getum ekki bara öskrað að það sé vanda­mál að þau tali ekki íslensku eins og það sé þeim að kenna. En við Snorri höfum þekkst síðan við vorum ung­lingar og mér þykir mjög vænt um hann sem mann­eskju. Ég þekki fólkið hans og hann er bara vinur minn. Mér finnst heil­brigt að vera í kringum hann og fleira fólk sem ég er oft ósam­mála. Það gerir engum gott að fest­ast í berg­máls­helli þar sem þú ert bara með fólki sem er sam­mála þér í einu og öllu. Skoð­ana­bræð­urnir, Beggi og Snorri eru mjög klárir menn og skemmti­legir og Beggi var til dæmis mað­ur­inn sem kom mér inn á Eckhart Tolle og fleiri hluti sem hafa haft mjög góð áhrif á líf mitt.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Loga og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu