Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mótmæla brottvísun 11 ára drengs með alvarlega vöðvarýrnun: „Mál upp á líf og dauða fyrir Yazan“

Mótmæla brottvísun 11 ára drengs með alvarlega vöðvarýrnun: „Mál upp á líf og dauða fyrir Yazan“
Alþing­is­húsið. Mynd: Sikeri

Boðað hefur verið til mót­mæla vegna fyr­ir­hug­aðrar brott­vís­unar 11 ára drengs, sem greindur er með alvar­lega vöðva­rýrnun. Dreng­ur­inn er á flótta frá Palest­ínu.

Samtökin No Borders og fólkið sem stóð fyrir Sam­stöðu­tjald­inu á Aust­ur­velli í byrjun árs standa fyrir mót­mælum á sunnu­dag klukkan 15:00 á Aust­ur­velli. Fyr­ir­huguð er brott­vísun hins 11 ára gamla Yazan, sem er hér á landi á flótta frá hryll­ingnum á Gaza. Yazan er greindur með Duchenne vöðva­rýrnun, sem er einn alvar­leg­asti arf­gengi sjúk­dóm­ur­inn af þess­ari gerð.

Í lýs­ingu á mót­mæla­við­burð­inum á Facebook segir eftir far­andi:

„Þrátt fyrir yfir­gnæf­andi lækn­is­fræði­leg gögn sem sýna fram á alvar­leika sjúk­dóms Yazan og hversu lífs­hættu­leg brott­vísun getur verið honum, þá hefur Kæru­nefnd útlend­inga­mála vísað máli Yazan frá og end­an­lega neitað honum um vernd á Íslandi.

Til stendur að brott­vísa Yazan og fjöl­skyldu í júlí. Viljum við sem sam­fé­lag vera ábyrg fyrir því að stytta líf 11 ára drengs?!Mætum öll! Brott­vís­anir eru ofbeldi!“ Þá er þar einnig frek­ari lýs­ing á Yazan:„BROTTVÍSUN ÓGNAR LÍFI YAZAN:Yazan er 11 ára drengur sem er greindur með Duchenne vöðva­rýrnun, en Duchenne er einn alvar­leg­asti arf­gengi vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­ur­inn. Sjúk­dóm­ur­inn er hrörn­un­ar­sjúk­dómur þar sem allir megin vöðvar lík­am­ans smám saman rýrna, þar á meðal hjarta- og önd­un­ar­vöðvar. Lífslíkur þeirra með sjúk­dóm­inn eru veru­lega skertar en án þjón­ustu er með­al­aldur í kringum 19 ár. Sjúk­dóm­ur­inn krefst stöðugrar umönn­unar og er aðgangur að sér­hæfðri lækn­is­þjón­ustu nauð­syn­legur til að lengja lífslíkur sem mest.Með því að vera brott­vísað til Spánar, lands sem fjöl­skyldan hefur aldrei dvalið í, gæti orðið hlé á þjón­ustu í allt að 18 mán­uði. „18 mán­uðir án með­ferðar munu valda óaft­ur­kræfum skaða sem mun veru­lega minnka lífs­gæði drengs­ins og stytta líf hans,“ segir helsti sér­fræð­ingur Íslands í Duchenne. Þar að auki gerir hvert ein­asta áfall geri sjúk­dóm­inn verri og slíkur skaði er kom­inn til að vera, en sjúk­dóm­ur­inn gengur ekki til baka.Yazan og for­eldrar hans flúðu heim­ili sitt í Palest­ínu í leit að skjóli og öryggi á Íslandi fyrir ári síðan. Frá komu þeirra hafa þau orðið hluti af sam­fé­lagi okkar og lagt sitt af mörkum þrátt fyrir að standa frammi fyrir fjöl­mörgum hindr­unum. Áður en Yazan kom til Íslands hafði hann ekki aðgang að almenni­legri lækn­is­þjón­ustu né fékk að taka þátt í skóla- og frí­stunda­starfi.

Að veita honum vernd hér­lendis er ekki aðeins aðkallandi mann­úð­ar­skylda heldur einnig mál upp á líf og dauða fyrir Yazan. Stuðn­ings­kerfin og lækn­is­hjálpin sem er í boði á Íslandi er lífs­nauð­syn­leg fyrir Yazan og hans heilsu. Með því að rífa Yazan upp úr núver­andi umhverfi sínu og taka af honum við­eig­andi lækn­is­að­stoð og stuðn­ing, er ekki ein­ungis verið að svipta hann þeim stöð­ug­leika sem hann nauð­syn­lega þarf til að lifa bæri­legu lífi heldur er verið að ógna lífi hans og dæma hann til óþarfa þján­inga og erf­ið­leika.

Duchenne sam­tökin, Lands­sam­tökin Þroska­hjálp, Einstök börn, ÖBÍ rétt­inda­sam­tök, Réttur barna á flótta og Tabú hafa einnig for­dæmt áform stjórn­valda um að brott­vísa Yazan og fjöl­skyldu hans. Viljum við í alvöru vera ábyrg fyrir því að stytta líf 11 ára drengs, sem er nú þegar veru­lega stytt?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við