Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hatrið var orðið svo mikið að þegar þau skildu sleit hann einnig sambandi við dóttur sína

Hatrið var orðið svo mikið að þegar þau skildu sleit hann einnig sambandi við dóttur sína

Ég kynnt­ist Ósk þegar dætur okkar urðu góðar vin­konur í leik­skóla. Þótt hún flytti úr hverf­inu héldu dæt­urnar áfram að vilja hitt­ast og smám saman jókst vin­átta okkar mæðr­anna. Þegar stelp­urnar voru orðnar full­orðnar og vin­átta þeirra orðin að kunn­ings­skap, vorum við Ósk enn góðar vin­konur. Hún gat verið dásam­leg en lífið fór ekki mildum höndum um hana og smám saman fyllt­ist hún reiði og hatri út í allt og alla. Með tím­anum varð ég hrædd við hana og þeirri stund fegn­ust þegar hún sleit vin­áttu við mig.

Æska Óskar var ekki auð­veld og þegar við kynnt­umst talað hún hvorki við for­eldra sín né systk­ini. Hún var ekki heldur heppin í ástum. Sambúðin við barns­föð­ur­inn var afar erfið og þau rifust mikið, sagði hún mér. Hatrið var orðið svo mikið þeirra á milli að þegar þau loks skildu sleit hann sam­bandi við dótt­ur­ina líka, treysti sér ekki til að koma nálægt neinu sem tengd­ist Ósk. Föð­ur­fólk dótt­ur­innar hvarf líka en þetta fólk tal­aði mjög illa um Ósk og sagði við alla að þau fengju ekki að umgang­ast stelpuna sem var ekki rétt. Þau höfðu aldrei sýnt barna­barn­inu nokkurn áhuga en það kom betur út fyrir þau gagn­vart umhverf­inu að kenna Ósk um. Auðvitað var erfitt fyrir Ósk að fá aldrei aðstoð með barnið, hún átti í raun ekk­ert bak­land og þurfti að ráða barnapíur í gegnum tíð­ina. Dætur okkar urðu miklar sam­lokur og ég leyfði stelp­unni hennar oft að gista hjá mér sem aðstoð­aði Ósk mikið því hún vann baki brotnu.

Þegar stelp­urnar voru tíu ára kynnt­ist Ósk manni sem hún fór að vera með og þær mæðgur hurfu nán­ast sjónum í tvö eða þrjú ár. Það angr­aði mig ekk­ert, mér hefur alltaf fund­ist rangt að mæla vin­áttu í magni, kýs frekar að mæla hana í gæðum, en dóttir mín sakn­aði vin­konu sinnar.

Ósk skildi við mann­inn og við tókum upp sam­band aftur en þá höfðu dætur okkar vaxið hvor frá annarri og eign­ast nýjar bestu vin­konur. Þeim fannst gaman að hitt­ast en allt var samt breytt.

Rúmu ári seinna eign­að­ist Ósk barn með manni sem hún gift­ist þótt hún hefði oft lýst því yfir að hún ætl­aði aldrei að gifta sig. Það hjóna­band fór líka í hundana eftir nokkur ár. Við tvær vorum samt alltaf í ein­hverju sam­bandi á meðan það stóð.

„… og þær mæðgur hurfu nán­ast sjónum í tvö eða þrjú ár. Það angr­aði mig ekk­ert, mér hefur alltaf fund­ist rangt að mæla vin­áttu í magni, kýs frekar að mæla hana í gæðum, en dóttir mín sakn­aði vin­konu sinnar.“

Drykkfelld en „ósnobbuð“

Ósk breytt­ist heil­mikið á næstu árum og drakk til dæmis mikið. Og þegar hún drakk varð hún svo beisk og fúl, allir voru vondir við hana og hún ætl­aði að hefna sín. Þetta voru fyrr­ver­andi makar, vinir, vinnu­veit­endur … bara allir sem henni fannst hún eiga sök­ótt við og oft þurfti ekki mikið til. Seinni barns­faðir hennar hafði haft af henni helm­ing­inn af öllu sem Ósk hafði átt þegar þau fóru að vera saman en hún hafði ekki viljað styggja hann á sínum tíma með því að láta gera kaup­mála. Hún ætl­aði að gera honum allt til miska.

Ég var þarna orðin svo­lítið hrædd við hana, get verið svo með­virk og finnst erfitt að umgang­ast mis­lynt fólk. Mér þótti vænt um Ósk og er trygg­lynd að eðl­is­fari svo það kom ekki til greina að segja skilið við hana þótt mér lík­aði sífellt verr við hana.

Ég fór bara einu sinni eða tvisvar með henni á djam­mið og svo gat ég ekki hugsað mér það oftar, hún valdi ógeðs­lega bari með „alvöru­fólki“ en ekki snobbuðu pakki eins og ég vildi umgang­ast, að hennar mati. Hún hafði greini­lega lágt sjálfs­mat fyrst hún sam­sam­aði sig dreggjum sam­fé­lags­ins.

Áður fyrr hitt­umst við aðal­lega með dæt­urnar heima hjá hvor annarri. Ég hafði því enga „djamm­reynslu“ af henni og vildi miklu frekar gera eitt­hvað skemmti­legt með mann­inum mínum en að þræða ógeðs­lega bari með henni.

Heilög og betri en aðrir

Svo frels­að­ist Ósk óvænt og gekk í sér­trú­ar­söfnuð sem þykir frekar mein­laus en miðað við margt sem Ósk sagði hrifin, leist mér ekki á blik­una. Þarna grass­er­uðu miklir for­dómar undir niðri. Þarna var Ósk í nokkur ár og reyndi alltaf reglu­lega að fá mig til að koma með sér á sam­komur. Börnin hennar harð­neit­uðu því sem ég veit að henni sárn­aði því hún trúði því ein­læg­lega að með því að frels­ast myndu þau lenda í himna­ríki með henni þegar þau dæju. Annars væri það bara hel­víti.

Einn dag­inn komst hún upp á kant við yfir­menn safn­að­ar­ins, allt sprakk í loft upp og hún yfir­gaf þá í fússi. Eina sem ég fékk að vita var að allir þarna væru fífl … Ósk hélt áfram að vera trúuð en til­eink­aði sér ekk­ert af kær­leiks­boð­skapnum, heldur var bara viss um að hún stæði svo miklu framar öðrum vegna trúar sinnar. Hún „vissi“ líka að guð myndi aðstoða hana við að láta illa fara fyrir óvinum hennar, þeir fengju sjúk­dóma, misstu vinn­una og annað slíkt.

Hún hafði kynnst manni úr söfn­uð­inum og farið að vera með honum. Hún sleit sam­band­inu við hann á sama tíma. Sem betur fer hafði hún alltaf frestað því að gift­ast honum þrátt fyrir mikla hvatn­ingu til þess. En sam­býl­is­mann­inum fyrr­ver­andi tókst að hefna sín því hann hætti að borga af láni sem hún hafði tekið fyrir hann því hann var gjald­þrota. Lánið var nú ekki mjög hátt, hún slapp með skrekk­inn en þarna var kom­inn enn einn til að hata.

Hefndarþorsti

Ósk var ein þeirra sem fór illa út úr banka­hrun­inu. Hún missti vinn­una og lenti í vand­ræðum með að borga af íbúð­inni. Á end­anum var íbúðin boðin upp og nýlegur bíll­inn dreg­inn á brott. Þetta var svo sorg­legt, Ósk var mjög hag­sýn og tók enga áhættu í fjár­málum en þarna var ekki farið í mann­grein­ar­á­lit og ótrú­lega margir töp­uðu öllu sínu af því að þeir treystu bönk­unum.

Ósk gafst upp. Henni fannst ekki taka því að byrja upp á nýtt eina ferð­ina enn, það yrði ein­hver eða eitt­hvað til að hirða allt af henni, þannig hefði það verið og myndi alltaf verða. Hún flutti í leigu­í­búð og fékk atvinnu­leys­is­bætur. Mér fannst mjög erfitt að umgang­ast hana á þessum tíma. Hún var bál­reið út í allt og alla og fannst heim­ur­inn skulda sér svo mikið.

Vissu­lega sótti hún um störf og fékk tvö eða þrjú en hélst ekki lengi í þeim. Hún var farin að drekka enn meira en áður, hvernig svo sem hún fjár­magn­aði það, og þessi kona sem áður hugs­aði vel um útlitið gekk í sömu föt­unum dögum saman, svaf stundum í þeim, grunar mig, og lyktaði eftir því. Hún var lík­lega þung­lynd og hefði þurft hjálp en reiðin var samt alltaf dep­urð­inni yfir­sterk­ari.

Ég reyndi að stappa í hana stál­inu en þorði ekki að segja henni að rífa sig upp og hætta að vera aum­ingi sem mig lang­aði að gera. Ég ótt­að­ist bræði hennar og hefnd­ar­þorsta. Hún kunni vel þá list að koma illu til leiðar og ég hafði heyrt margar sögur hennar. Í einu til­felli hafði henni tek­ist að gera fyrrum sam­starfs­konu lífið mjög leitt með því að siga á hana bæði barna­vernd og lög­reglu án þess að konan hefði nokkuð gert af sér. Jú, hún hafði stungið undan Ósk og átti þetta skilið. Þetta er senni­lega upp­spuni, bull­saga til að hræða mig og aðra frá því að gera nokkuð á hennar hlut.

Undrun og léttir

Þegar Ósk sleit sam­bandi við mig varð ég undr­andi og hafði ekki hug­mynd um hvað ég hafði gert henni. Undir það síð­asta hafði hún kvartað yfir því að ég væri léleg vin­kona. Ég vann mikið og hafði heldur ekki sömu þörf og hún fyrir að spjalla oft og mikið. Við höfðum fyrir löngu þroskast hvor í sína átt­ina og senni­lega fannst henni ég hund­leið­in­leg því ég hugs­aði varla um annað en barna­barnið mitt nýfædda.

Þegar ég hafði ekki heyrt í henni í nokkra daga próf­aði ég að hringja. Hún svar­aði ekki og það var ekki líkt henni. Ég próf­aði dag­inn eftir en ekk­ert svar. Svo sá ég að hún hafði blokkað mig á Facebook og þá vissi ég að við vorum ekki lengur vin­konur. Eftir að hafa orðið hissa í fyrstu og velt fyrir mér hvað ég hefði mögu­lega gert henni fór ég að finna fyrir létti. Það er erfitt að vera í svona sam­skiptum og hafa ekki kjarkinn til að forða sér.

„Hún svar­aði ekki og það var ekki líkt henni. Ég próf­aði dag­inn eftir en ekk­ert svar. Svo sá ég að hún hafði blokkað mig á Facebook og þá vissi ég að við vorum ekki lengur vin­konur.“

Nú eru liðin nokkur ár og ég frétti sjaldan af Ósk. Ég veit þó að hún er enn reið út í allt og alla og slítur stundum sam­bandi við börnin sín í vikur eða mán­uði. Dóttir hennar, æsku­vin­kona dóttur minnar, þorir til dæmis ekki að tala við mig lengur af ótta við að mamma hennar frétti það.

Ég óska gömlu vin­konu minni alls góðs í líf­inu og vona að hún nái sér á strik en ég tel afar ólík­legt að við verðum nokkurn tíma aftur vin­konur. Í raun prísa ég mig sæla fyrir að hafa sloppið sæmi­lega vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar