Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ólga eftir að leynileg upptökutæki fundust á skrifstofu þjóðleikhússtjóra: „Fullkomlega meinlaust“

Ólga eftir að leynileg upptökutæki fundust á skrifstofu þjóðleikhússtjóra: „Fullkomlega meinlaust“
Upp­töku­tækin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Uppi varð fótur og fit í Þjóð­leik­hús­inu sum­arið 1981 þegar leyni­leg upp­töku­tæki fund­ust á skrif­stofu þjóð­leik­hús­stjóra.

Í Bak­sýn­is­spegli kvöld­ins kíkjum við á áhuga­verða frétt frá árinu 1981 en þá um sum­arið varð mikil ólga hjá starfs­fólki Þjóð­leik­húss­ins eftir að leyni­leg upp­töku­tæki fund­ust á skrif­stofu Sveins Ein­ars­sonar, þáver­andi þjóð­leiks­hús­stjóra.

Sveinn Ein­ars­son

Sveinn hafði farið utan með leik­hóp að sýna upp­færslu á leik­rit­inu Stund­ar­frið í Þýska­landi og Danmörku en bað um að gólf­teppi yrði fjar­lægt á skrif­stofu hans á meðan hann væri úti, og parket lagt þar í stað­inn. Erf­ið­lega gekk að losa skáp sem þurfti að færa við fram­kvæmd­irnar en síðar komu í ljós leiðslur úr földum upp­töku­tækjum sem stað­sett voru bak­við skáp­inn.

Sveinn gerði lítið úr mál­inu og sagði tækin hafa verið þar þegar hann hafi tekið við sem þjóð­leik­hús­stjóri árið 1973 og að hann not­aði tækin ekk­ert. Þegar blaða­maður Vísis spurði hann af hverju hann hefði látið end­ur­nýja tækin, ef hann not­aði þau aldrei, svar­aði Sveinn því til að það hefði verið til öryggis, skyldi hann þurfa á því að halda.

Haldinn var fundur í Þjóð­leik­hús­inu vegna máls­ins en þar virð­ist hafa náðst sáttir enda starf­aði Sveinn sem þjóð­leik­hús­stjóri í tvö ár til við­bótar eftir upp­töku­málið. Seinna sama mánuð skil­aði Sveinn af sér greina­gerð um málið þar sem hann sagð­ist aldrei hafa notað tækin og sé nú búinn að láta fjar­lægja bún­að­inn af skrif­stof­unni.

Hér má sjá umfjöllun Tímans um málið:

FÖLDU UPPTÖKUTÆKIN VALDA MIKILLI ÓLGU

– mikil funda­höld í Þjóð­leik­hús­inu í dag

Mikil ólga er meðal starfs­fólks Þjóð­leik­húss­ins eftir að leyni­leg upp­töku­tæki fund­ust sl. þriðju­dags­morgun á skrif­stofu þjóð­leik­hús­stjóra. Er ljóst aö þjóð­leik­hús­stjóri hefur verið í þeirri aðstöðu að geta tekið upp öll sam­töl og fundi sem átt  hafa sér stað á skrif­stofu hans og kann margt af starfs­fólk­inu því illa. Nýlega fór Sveinn Ein­ars­son þjóð­leik­hús­stjóri utan með leik­hópi frá leik­hús­inu sem sýndi upp­færslu á leik­rit­inu Stund­ar­frið í Þýska­landi og Danmörku. Bað hann um að gólf­teppi sem er á skrif­stofu hans yrði fjar­lægt en parket sett á í þess stað á meðan að hann væri erlendis. Til að koma par­k­et­inu á, þurfti að færa for­láta skáp á skrif­stof­unni til en gekk illa að losa hann. Síðar komu i ljós leiðslur sem lágu bak­við hann. sem smið­irnir sem unnu verkið kunnu ekki skil á. Fylgdu þeir leiðsl­unum og kom þá í ljós fal­inn hljóð­nemi í glugga­köppum yfir glugga. Við enn betri athugun kom i ljós fótrofi svip­aður og not­aður er við ljósa­skipti í bílum, við inn­an­vert skrif­borð þjóð­leik­hús­stjóra sem hægt var að setja upp­töku­tækin á stað með. Seg­ul­bands­tækið var einnig tengt við sím­ann á skrif­stof­unni, þannig að hægt var að taka upp öll sím­töl, sem áttu sér stað í gegnum hann. Síma­hler­unin hefur verið skýrð á þann hátt, að oft komi til ráðn­inga á erlendum skemmti­kröftum eða leik­urum erlendis frá í gegnum síma, þar sem skrif­legir samn­ingar liggi ekki fyrir. Í þeim til­vikum sé gott að hafa upp­tökur af sím­töl­unum, ef mál ger­ast blandin og menn verða ekki ásáttir um hvað var samið. Starfs­menn Þjóð­leik­húss­ins eru nokkuð dúsir við síma upp­tök­urnar en hins vegar skilja þeir ekki þá leynd sem við­höfð var við upp­setn­ingu hljóð­nem­ans á skrif­stofu þjóð­leik­hús­stjóra. Eru menn sár­astir vegna þess mögu­leika sem var á að taka upp per­sónu­leg sam­töl, sem þar áttu sér stað. „Það eru ýmsir starfs­mann­anna að rifja upp nú hvað þeir hafi sagt þarna og maður hefur full­komna ástæðu til að láta sér detta í hug það versta, fyrst þetta var svona”, sagði einn starfs­maður Þjóð­leik­húss­ins í sam­tali við Tímann. „Ég frétti um þetta, og alls konar sögur sem væru í gangi. Mér fannst því rétt að fara þarna niður eftir og kynna mér hvað væri til í þessu”, sagði Haraldur Ólafsson, for­maður þjóð­leik­hús­ráðs í sam­tali við Tímann. „Ég hef ekki rætt þetta við neinn og veit ekki annað en þetta sé allt eðli­legt. En ég veit ekki allt”, sagði Haraldur. Í dag er fundur í þjóð­leik­hús­ráði og má búast viö að upp­töku­tækin verði þar m.a. til umræðu. „Ég vil ekki úttala mig um þetta mál”, sagði Flosi Ólafsson, for­maður Félags leik­ara við Þjóð­leik­húsið í sam­tali við Tímann í gær. Tíminn reyndi að ná sam­bandi við Jóhönnu Norð­fjörð, for­mann starfs­manna­fé­lags starfs­fólks í Þjóð­leik­hús­inu en tókst ekki. Starfs­fólk Þjóð­leik­húss­ins mun ætla að hitt­ast í dag og ræða þetta mál. Á fundi með nokkrum starfs­mönnum Þjóð­leik­húss­ins á mið­viku­dags­morgun kvaddi Sveinn Ein­ars­son sér hljóðs í upp­hafi fundar og kvaðst vona að eng­inn færi að væna hann um að hafa mis­notað upp­töku­tækin.

„Full­kom­lega mein­laust“

— segir Sveinn Ein­ars­son

„Það hafa engin sam­töl verið tekin upp á þessi tæki“, sagði Sveinn Ein­ars­son, þjóð­leik­hús­stjóri, í sam­tali við Tímann, þegar hann var spurður að því til hvers upp­töku­tækin væru notuð, sem fund­ust á skrif­stofu hans. „Það er hægt að tengja þau, þegar maður þarf að hafa sam­band við útlönd, og það er allt og sumt. Síðan er hægt að spila af spólum ef við þurfum á slíku að halda“, sagði Sveinn. … — En nú eru þetta ekki ein­ungis síma­hler­un­ar­tæki? „Það eru einnig til hljóð­nemar inn í her­berg­inu, en þeir hafa ekki verið not­aðir”, sagði Sveinn. — Starfs­menn þurfa þá ekki að ótt­ast, að per­sónu­leg sam­töl þeirra við þig hafi verið tekin upp á seg­ul­band? „Ekki nokkurn skap­aðan hlut. Þetta bara svona grípur um sig. Þetta eru nákvæm­lega eins upp­töku­tæki og eru í annarri hverri skrif­stofu í Reykja­vík.” — Hvað hefur þessi háttur verið hafður á lengi? „Það var svona tæki þegar ég kom í húsið”, sagði Sveinn, „og hefur víst verið alla tíð, að því er mér hefur skilist. Hins vegar lét ég end­ur­nýja þau í vetur. Þau hafa ekki verið notuð í neinum öðrum til­gangi en nauð­syn­legt er, og annað aldrei staðið til. Þannig er þetta full­kom­lega mein­laust, og það sem meira er, þetta hefur ekk­ert verið notað. Fólkið í hús­inu vill helst ekki að það verði gert neitt veöur út af þessu, því þetta er eðli­legur hlutur, og alls ekki neitt frétta­efni”, sagði Sveinn Ein­ars­son, þjóð­leik­hús­stjóri. 

Vísir fjall­aði einnig um málið og gekk svo­lítið hart að þjóð­leik­hús­stjór­anum sem svar­aði fim­lega. Hér er brot úr þeirra umfjöllun:

„Það er eng­inn bún­aður undir teppi á skrif­stofu minni mér vit­an­lega”, svar­aði Sveinn Ein­ars­son Þjóð­leik­hús­stjóri beinni spurn­ingu Vísis um það efni, „en það er hægt að setja í sam­band tæki, skilst mér”, sagði Sveinn

Blaða­maður spurði Svein til hvers hann væri að láta end­ur­nýja búnað, sem aldrei væri not­aður. „Vegna þess að það koma upp dæmi, sem hefðu getað gert það að verkum eftir að farið var að nota simann meira”. En hvers vegna ertu með búnað til að taka upp inni á skrif­stof­unni, ef þú þarft ekki á því að halda? „Hvernig væri ef ég þyrfti á því að halda og segði: við skulum taka þetta sam­tal upp á band?” Er auð­velt að gang­setja upp­töku­tæki þitt án þess að aðrir verði varir við? „Ég kann ekki um það að segja”. Hvar var bún­að­ur­inn til að setja tækið i gang stað­settur? „Nú er ég bara ákaf­lega illa að mér tækni­lega”. En þú vissir hvernig átti að setja þau i gang? „Ég þurfti einu sinni á þvi að halda.varð­andi sam­tal við útlendan mann, það er rétt. Þá fékk ég starfs­mann til þess að ganga frá þvi”. Þú veist þá ekki hvar þessi tæki eru? „Ég veit til dæmis ekki hvar þessi hljóð­nemi var stað­settur, hef ekki hug­mynd um það”. Er upp­setn­ing þess­ara tækja óbreytt frá þvi þú lést end­ur­nýja þau? „Já”. Geturðu fengið starfs­mann til að sýna okkur hvernig þessi bún­aður er og hvernig hann er settur i gang? „Við skulum athuga það”, sagði Sveinn Ein­ars­son Þjóð­leik­hús­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni