Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hópur íbúa vill að sveitarfélögin slíti viðskiptum við Rapyd: „Erum hæstánægð með þessi viðbrögð“

Hópur íbúa vill að sveitarfélögin slíti viðskiptum við Rapyd: „Erum hæstánægð með þessi viðbrögð“
Akureyri – Mynd: Wikipedia

Hópur íbúa í 20 sveit­ar­fé­lögum á Íslandi kallar eftir því að sveit­ar­fé­lögin á Íslandi slíti við­skiptum við greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Rapyd, meðal ann­ars vegna opin­bers stuðn­ings Alþjóð­legs for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins við stríðs­rekstur Ísraels á Gaza. Strax hafa fjögur sveit­ar­fé­lög brugð­ist við.

Full­trúar hóps­ins öfl­uðu upp­lýs­inga um færslu­þjón­ustu hjá öllum sveit­ar­fé­lögum á Íslandi á vor­mán­uðum 2024. Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum eru að minnsta kosti 27 sveit­ar­fé­lög á Íslandi í við­skiptum við Rapyd, sem þýðir að þegar íbúar greiða fyrir þjón­ustu í sínu nær­sam­fé­lagi með greiðslu­korti, svo sem aðgang að sund­laugum eða bóka­safnskort, renna gjöld til Rapyd. Fjár­sýslan fyrir hönd rík­is­ins er með samn­ing við Rapyd um færslu­þjón­ustu hjá A-hluta stofn­unum rík­is­ins. Sveit­ar­fé­lögin eru ekki A-hluta stofn­anir og eru því ekki bundin þeim samn­ingi. Þeim er því frjálst að skipta við annað greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæki en Rapyd.

Rapyd Europe starfar á Íslandi en er ísra­elskt fyr­ir­tæki eftir kaup Rapyd á Valitor árið 2022. Alþjóð­legur for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Arik Shtilman, hefur opin­ber­lega lýst yfir stuðn­ingi við stríðs­rekstur Ísraels og fyr­ir­tækið hefur tekið beinan þátt í stríðs­rekstr­inum með tækni­legum úrlausnum.

Í grein sem hóp­ur­inn birti á Vísi færa höf­undar rök fyrir því að sveit­ar­fé­lögin á Íslandi ættu alls ekki að stunda við­skipti við Rapyd. Fyrir því eru bæði sterk laga­leg og sið­ferð­is­leg rök.

Hér má sjá rök hóps­ins:

„Landrán Ísraels í Palest­ínu er ský­laust brot á alþjóða­lögum líkt og úrskurður Alþjóða­dóm­stóls­ins frá því í júlí stað­festir. Rapyd starfar í land­töku­byggðum Ísraels á Vest­ur­bakk­anum og er því þátt­tak­andi í brotum á alþjóða­lögum og hagn­ast á ólög­legu her­námi og land­töku Ísraels. Opin­berir aðilar líkt og sveit­ar­fé­lögin geta ekki verið í við­skipta­sam­bandi við slíkt fyr­ir­tæki. Það stríðir bæði gegn laga­legri og sið­ferð­is­legri skyldu íslenska rík­is­ins, opin­berri stefnu rík­is­ins sem og mann­rétt­inda­stefnu sveit­ar­fé­lag­anna. Stjórn­völd víðs­vegar um Evrópu hafa opin­ber­lega varað evr­ópsk fyr­ir­tæki við að eiga við­skipti á hernumdu svæð­unum í Palest­ínu enda gætu slík við­skipti varðað með­sekt í brotum á alþjóða­lögum. Þær við­var­anir eiga líka við á Íslandi. Höfundar grein­ar­innar kalla eftir því að sveit­ar­fé­lög á Íslandi íhugi stöðu sína hvað þetta varðar og slíti við­skipta­sam­bandi sínu við Rapyd.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum grein­ar­höf­unda eru eft­ir­far­andi 27 sveit­ar­fé­lög í við­skiptum við Rapyd:

  • Akur­eyr­ar­bær
  • Blá­skóga­byggð
  • Bol­ung­ar­vík­ur­kaup­staður
  • Dalvík
  • Eyja­fjarð­ar­sveit
  • Fjarða­byggð
  • Garðabær
  • Grímsnes- og Grafn­ings­hreppur
  • Grund­ar­fjarð­ar­bær
  • Hafn­ar­fjarð­ar­bær
  • Hruna­manna­hreppur
  • Húna­byggð
  • Hvera­gerð­is­bær
  • Hörg­ár­sveit
  • Ísa­fjarð­ar­bær
  • Kald­rana­nes­hreppur
  • Kópa­vogur
  • Múlaþing
  • Norð­ur­þing
  • Rangár­þing ytra
  • Sel­tjarn­ar­nes­bær
  • Skaga­fjörður
  • Skaga­strönd
  • Skeiða- og Gnúp­verja­hreppur
  • Stranda­byggð
  • Suð­ur­nesja­bær
  • Vest­manna­eyja­bær

Fjögur sveit­ar­fé­lög brugð­ust strax við

Mannlíf heyrði í Hrönn G. Gunn­ars­dóttur, fyrir hönd hóps­ins og spurði hana út í við­brögðin við kröfu þeirra.

„Við höfum fengið við­brögð nú þegar frá fjórum sveit­ar­fé­lögum. Við fengum það stað­fest að Þing­eyj­ar­sveit er búin að skipta og full­trúi frá Suð­ur­nesjabæ hafði sam­band við okkar mann­eskju þar og til­kynnti að Suð­ur­nesja­bær væri hættur við­skiptum við Rapyd. Eins var haft sam­band við okkar mann­eskju í Bol­ung­ar­vík, en þar á að taka málið á dag­skrá sveit­ar­stjórnar fljót­lega. Við heyrðum síðan frá tveimur bæj­ar­full­trúum í Garðabæ sem eru búnir að óska eftir því að þetta verði tekið á dag­skrá í bæj­ar­stjórn þar. Einnig vitum við að þetta mál hefur verið til umræðu innan bæj­ar­stjórnar á Akureyri.“

Segir Hrönn hóp­inn vera mjög ánægð með við­brögðin.

„Við erum hæstá­nægð með þessi við­brögð. Framundan hjá okkur núna er að setja okkur aftur í sam­band við þessi sveit­ar­fé­lög og hvetja þau til að skoða þessi mál hjá sér. Mörg þeirra eru með það litla veltu að þau ættu að geta skipt án þess að fara í útboð. Við munum síðan beina sjónum sér­stak­lega að stærri sveit­ar­fé­lög­unum, s.s. Hafn­ar­fjarð­arbæ og Akur­eyr­arbæ. Þar eru málin ef til vill aðeins flókn­ari en hjá minni sveit­ar­fé­lög­unum.“

Að lokum vill Hrönn taka eft­ir­far­andi fram:

„Mig langar að nefna það að á bak­við þessa grein er ótrú­lega margt fólk sem stendur mjög stað­fast með þessum mál­stað og ber þetta mál áfram í sinni heima­byggð.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við