Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jón Viðar tekur Egil á beinið: „Segir að Kiljan eigi ekki að fjalla um svoleiðis leiðindaskræður“

Jón Viðar tekur Egil á beinið: „Segir að Kiljan eigi ekki að fjalla um svoleiðis leiðindaskræður“

Jón Viðar Jónsson tekur Egil Helgason á beinið í nýrri Facebook-færslu vegna þess að Kilju­stjórn­and­inn neitar að fjalla um spill­ing­ar­bók Björns Þor­láks­sonar.

Sagt var frá því um helg­ina að Egill Helgason neiti að fjalla um bók Björns Þor­láks­sonar, Besti vinur aðals, sem fjallar um spill­ing­una sem við­geng­ist hefur á Íslandi um ára­bil.

Færslan hefst á eft­ir­far­andi hátt: „Samkvæmt frétt DV vill Egill Helgason ekki fjalla um nýja bók Björns Þor­láks­sonar um spill­ing­una i þjóð­fé­lag­inu og hann ætlar ekki heldur að fjalla um hin umdeildu dag­bók­ar­skrif Ólafs Ragnars i Kilju sinni. Hann segir að Kiljan eigi ekki að fjalla um svo­leiðis leið­inda­skræður; það séu bara eðla fag­ur­bók­menntir og jú stundum þjóð­leg fræði sem Agli þykja sam­boðin þætt­inum. Það skiptir hann sem sé engu þó að bók Björns sé harla lik­leg til að vekja for­vitni fjöl­margra sem á þátt hans horfa, bækur af öllu tagi lesa og hafa á þeim skoðun.“

Í næstu orðum sínum segir gagn­rýn­and­inn óvægni, að Egill hafi „drottnað ein­ráður yfir bókaum­fjöllun Rík­is­út­varps­ins“ í fjöldi ára.

„Nú gæti maður skilið að Egill, sem hefur i áraraðir drottnað ein­ráður yfir bókaum­fjöllun Rikis­sjón­varps­ins, þótt efn­is­tök hans hafi oft verið gagn­rýnd og það með réttu, léti sé annt um fag­ur­fræði­legan hrein­leik sins fina þáttar. En þvi miður er málið ekki svo ein­falt. Kiljan hefur svo lengi sem ég man eftir verið kynnt sem þáttur um BÆKUR – og á heima­siðu RÚV stendur skýrum stöfum: „Egill og og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um for­vitni­legar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum.“ Verður það vart skilið á annan veg en þann að bækur af öllu tagi séu gjald­gengar i þessum eina þætti sem RÚV heldur nú úti um list­ræn efni og menn­ing­ar­mál lið­andi stundar.“

Stingur Jón Viðar því næst til nýja klausu sem lýsi Kiljunni betur:

„Það má vel vera að Egill og hans bókelsku félagar (sem hann velur að sjálf­sögðu einn og óstuddur) hafi gleymt þess­ari klausu i önnum dag­anna. En væri þá ekki heið­ar­legra gagn­vart þjóð­inni, sem kostar nú einu sinni Rikis­út­varpið að miklu leyti, að breyta henni eitt­hvað á þessa leið: „Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um bækur sem þátt­ar­stjór­anum þykja af ein­hverjum ástæðum for­vitni­legri en aðrar bækur.“ Það gæfi allt­ént rétt­ari mynd af þætt­inum eins og hann er nú orð­inn sam­kvæmt nýj­ustu stefnu­lýs­ingu Egils.“

Að lokum skýtur Jón Viðar létt á Stefán Eiríks­son útvarps­stjóra:

„Hinn nýend­ur­ráðni útvarps­stjóri myndi kannski taka það til góð­fús­legrar athug­unar. Naumast vill hann að heima­siða RÚV birti vill­andi upp­lýs­ingar um dag­skrána. Og það er jú hann sem stjórnar Útvarp­inu – eða er ekki svo?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar