Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Litlu stóru mál“ Þórhildar Sunnu – Fylgjandi opnun spilavítis

„Litlu stóru mál“ Þórhildar Sunnu – Fylgjandi opnun spilavítis
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir. Mynd: Facebook

Mannlíf vildi vita meira um stór og mik­il­væg mál­efni sem hafa ekki fengið mikið pláss í umræð­unni hingað til og sendi tíu spurn­ingar á alla for­menn og leið­toga þeirra flokka sem eru í fram­boði og mun Mannlíf birta svör allra þeirra sem svör­uðu. Við nefnum þessi mál­efni „Litlu stóru málin“

Hér fyrir neðan má lesa svör Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­flokks­for­manns Pírata.

1. Vilt þú leyfa aukið frelsi í veðmálastarfsemi á Íslandi og af hverju?

Ég vil fyrst ein­beita mér að því að fara í skaða­minnk­andi aðgerðir gagn­vart því fjár­hættu­spili sem frjáls félaga­sam­tök og háskól­inn hafa tekjur af um þessar mundir og það eru spila­kass­arnir. Þetta er mjög ávana­bind­andi fjár­hættu­spil sem hefur mjög skað­leg áhrif á líf fólks sem á við spilafíkn að stríða og mér finnst það verði að setja all­veru­legar hömlur á þessa starf­semi.

Á hinn bóg­inn er ég ekki andsnúin því að leyfa ein­hvers konar spila­víti á Íslandi þar sem fólk getur spilað póker, rúl­lettu eða þess háttar leiki sam­hliða skaða­minnk­andi aðgerðum eins og spila­korti.

2. Hver er þín afstaða gagnvart réttindabaráttu trans fólks á Íslandi?

Ég stend með trans fólki og rétt­inda­bar­áttu þeirra og við Píratar höfum verið ötult stuðn­ings­fólk trans­fólks bæði á þingi og í sveita­stjórn. Við höfum mælt fyrir frum­vörpum sem styrkja rétt­ar­stöðu þeirra, stutt öll frum­vörp sem það gera og barist fyrir því að rétt­indi þeirra séu virt í hví­vetna.

3. Hvað finnst þér um að ríkið styrki listir og menningu?

Listir og menn­ing eru ótrú­lega mik­il­vægar hverju heil­brigðu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Við styðjum við list list­ar­innar vegna og viljum stór­efla lista- og menn­ing­ar­starfs­semi á Íslandi með fjöl­breyttum aðgerðum. Píratar telja mik­il­vægt að líta á menn­ingu og skap­andi greinar sem eina af und­ir­stöðu­at­vinnu­greinum þjóð­ar­innar, og sem efna­hags­lega og sam­fé­lags­lega fjár­fest­ingu fyrir fram­tíð­ina en ekki sem kostnað líð­andi stundar. Styrkja­kerfin sem sjálf­stætt lista­fólk reiðir sig á í dag þarf að end­ur­hugsa frá grunni. End­ur­skoða þarf styrkja­kerfin með hlið­sjón af öðrum Norð­ur­löndum, til dæmis hvernig Noregur hefur útfært sína lang­tíma­styrki. Auk þess vilja Píratar tryggja nýlið­un­ar­styrki til ungs lista­fólks og standa með lista­manna­launum. Píratar telja að hlúa þurfi að söfnum og safna­starfi sem varð­veita menn­ing­ar­arf og miðla sögu þjóð­ar­innar til að gera þeim kleift að miðla safn­kosti sínum með staf­rænum hætti til að stuðla að auknu aðgengi almenn­ings. Píratar vilja koma Vís­inda­safni á lagg­irnar og auka fé í sjóðum, svo sem í Forn­minja­sjóði og Safna­sjóði, til þess að auka rann­sóknir á menn­ing­ar­arf­inum. Slíkt styrkt­arfé er einnig grunn­skil­yrði fyrir menntun nýrra starf­krafta og styðja við inn­lent hug­vit.

4. Ert þú fylgj­andi því að Ísland verði gert að einu kjör­dæmi í Alþing­is­kosn­ingum og af hverju?

Já. Vegna þess að Ísland er lítið land með mjög ójafnt atkvæða­vægi. Ein­faldasta leiðin til að jafna atkvæða­vægið er að gera landið að einu kjör­dæmi. Á móti ætti að stór­efla tekju­stofna sveita­fé­lag­ana, vald­efla þau og gera íbúum kleift að hafa miklu meiri áhrif á sitt nærum­hverfi. Píratar tala fyrir því að hluti af virð­is­auka­skatti verði eftir í því sveita­fé­lagi þar sem salan eða þjón­ustan fór fram og sömu­leiðis að hluti fjár­magnstekju­skatts verði eftir í heima­byggð til þess að gera sveita­fé­lögum kleift að hlúa að fjöl­breytt­ari verk­efnum og atvinnu­starf­semi. Píratar vilja koma meiri völdum til sveita­fé­lag­anna varð­andi þætti eins og sam­göngu­á­ætlun, byggð­ar­stefnu og sjálf­bærri ferða­mála- og iðn­að­ar­stefnu svo dæmi séu nefnd.

5. Hversu mikilvæga telur þú kristni vera í íslensku samfélagi í dag?

Kristin trú er mik­il­væg fyrir stóran hóp í sam­fé­lag­inu, sér í lagi þann hóp sem aðhyllist kristna trú. Píratar styðja trú­frelsi og vilja fara í aðskilnað ríkis og kirkju til þess að gera öllum trú- og lífs­skoð­unum jafn hátt undir höfði gagn­vart hinu opin­bera. Við erum andsnúin inn­heimtu sókn­ar­gjalda af hálfu hins opin­bera og viljum að trú og lífs­skoð­un­ar­fé­lög inn­heimti sín félaga­gjöld sjálf til þess að standa vörð um frið­helgi einka­lífs borg­ar­anna. Inn­heimta hins opin­bera á sókn­ar­gjöldum felur í sér að ríkið hefur skrá yfir trú og lífs­skoð­anir allra á Íslandi, Pírötum þykir þetta fyr­ir­komu­lag brjóta á rétt­indum borg­ar­anna til þess að halda sínum trú og lífs­skoð­unum út af fyrir sig.

6. Hvað finnst þér um aðstöðu til íþróttaiðkunar á Íslandi?

Íþrótta­iðkun barna og ung­menna er með bestu for­vörnum sem hægt er að bjóða upp á gagn­vart áfengis og vímu­efna­notkun þess­ara hópa. Píratar vilja styðja vel við íþrótta­iðkun, ekki bara barna og ung­menna heldur almenn­ings alls enda hefur hún mikið lyð­heilsu­legt gildi. Píratar vilja einnig styðja betur við fjöl­breytt æsku­lýðs- og tóm­stunda­starf og vilja ekki sjá mis­munun gagn­vart öðrum frá­bærum tóm­stundum eins og list, menn­ingu, skáta­starfi, spila­mennsku og fjöl­breyttum áhuga­sviðum barna og ung­menna.

7. Hvað finnst þér um fjárhagsstuðning ríkisins við stjórnmálasamtök?

Fjár­hags­stuðn­ingur rík­is­ins við stjórn­mála­sam­tök verður alltaf umdeildur en er nauð­syn­legur í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Skoða mætti hvort ekki væri rétt að hann væri jafn­ari, að koma sér saman um ákveðna grunn upp­hæð sem dugar til þess að reka stjórn­mála­sam­tök og láta nokkurn veg­inn jafnt yfir alla ganga sem ná ákveðnum þrös­k­uldi. Á móti ætti að setja skýr­ari skorður á styrk­veit­ingar fyr­ir­tækja og ein­stak­linga til stjórn­mála­sam­taka.

8. Hvað finnst þér um blóðmerahald?

Píratar eru and­snúnir blóð­mera­haldi.

9. Telur þú að þjóðin eigi að fá að kjósa um inngöngu í ESB og af hverju?

Já. Vegna þess að aðild­ar­ferlið er hafið og það var sett á ís með ólög­legum hætti. Þjóðin ætti að fá að ráða því hvort hún vilji hefja ferlið á nýjan leik og virða ætti nið­ur­stöðu hennar sama hver hún er.

10. Hver er þín afstaða til stjórnarskrá Íslands?

Stjórn­ar­skráin eins og hún er í dag er komin til ára sinna og mörg ákvæði í henni eru úrelt eða er ekki fylgt. Þjóðin kaus um nýja stjórn­ar­skrá fyrir 12 árum síðan og það er stærsta hneykslið í sögu lýð­ræð­is­ins á Íslandi að nið­ur­staðan hafi ekki verið virt af meiri­hluta Alþingis í allan þennan tíma. Píratar vilja nýja stjórn­ar­skrá Íslands á næsta kjör­tíma­bili. Sú stjórn­ar­skrá skal byggja á grund­velli til­lagna Stjórn­laga­ráðs og þeim ábend­ingum sem fram hafa komið síðan þá. Allar við­bætur eða breyt­ingar á fyr­ir­liggj­andi frum­varpi yrðu gerðar í víð­tæku sam­ráði við almenn­ing og sér­fræð­inga, til dæmis með borg­ara­þingi eða öðrum þjóð­fundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti