Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sigurður var slóttugasti svikahrappur Íslandssögunar – Sveik milljónir af ekkju með Alzheimer

Sigurður var slóttugasti svikahrappur Íslandssögunar – Sveik milljónir af ekkju með Alzheimer
Hótel Borg Mynd: booking.com

„Hann kom til mín og sagð­ist geta hjálpað mér að græða. Ég tók þessu fá­lega en hann var sann­fær­andi og nán­ast dá­leið­andi. Enn eru 5,3 millj­ónir ógreiddar.” Svo mælt­ist einu af tugum fórn­ar­lamba Sigurðar Kára­sonar, eins afkasta­mesta og slóttug­asta svika­hrappi Íslands­sög­unnar.

Slóð Sigurðar er sviðin jörð fjársvika, átaka, deilna og dóma.

Spilakassar, tívolí og krabbameinssjúk börn

Sigurður hóf „feril“ sinn með rekstri spila­kassa við Hlemm í Reykja­vík. Árið 1985 festi hann kaup á Hótel Borg og vakti það mikla athygli. Fjórum árum síðar var hið forn­fræga hótel selt á nauð­ung­ar­upp­boði. Árið 1986 hóf Sigurður Tívólíæv­in­týrið svo­nefnda í Hver­gerði. Mun hann hafa falsað gögn til að lokka að fjár­festa sem allir töp­uðu fé sínu enda var mikið havarí í kringum rekst­ur­inn og varð Tívolíið gjald­þrota árið 1990. Svo fór að Sigurður var dæmdur í fimm mán­aða fang­elsi 1989 fyrir að hafa haldið eftir vörslufé af launum starfs­manna Tívolís­ins svo og Hótel Borgar.

Árið 1997 rakti DV ítar­lega sam­skipti Sigurðs við hjónin Aron Guð­brands­son, þáver­andi for­stjóra Kaup­hall­ar­innar og konu hans, Ásrúnar Ein­ars­dóttir en hann hafði verið heima­gangur hjá þeim hjónum frá unga aldri. Aron lét eftir sig stórfé við lát sitt sem hann arf­leiddi konu sína að, en þau hjónin voru barn­laus. Að henni lát­inni skyldi fénu varið til krabba­meins­sjúkra barna.

Krabba­meins­sjúku börnin sáu aldrei aur af arfi Arons.

Misneyting á ekkju með Alzheimer

Sigurður sótti enn frekar í félags­skap Ásrúnar eftir lát manns hennar og full­yrtu heim­ilda­menn DV, sem vel þekktu til, að á milli 80 og 100 millj­ónir hafi runnið úr dán­ar­bú­inu í alls konar við­skipta­æv­in­týri sem ekk­ert spurð­ist frekar til.

Svo fór að Sigurður var dæmdur í maí 1999 í 20 mán­aða fang­elsi fyrir mis­neyt­ingu með því að fá Ásrúnu til að taka 30 millj­ónir af reikn­ingi sínum og milli­færa yfir á sig. Á þessum tíma var Ásrún orðin háöldruð og þjáð­ist af Alzheimer sjúk­dómnum. Segir í dóm að um sé að ræða stór­fellt trún­að­ar­brot gegn gam­alli konu sem hafi treyst á vin­áttu hans. Það vakti síðan mikla athygli þjóð­ar­innar þegar þáver­andi for­seti, Ólafur Ragnar Grímsson, náð­aði Sigurð fyrir svikin gegn Ásrúnu. Var Ólafur Ragnar harka­lega gagn­rýndur í fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum í kjöl­farið.

Sveik út á annað hundrað milljónir

Árið 2014 komst Sigurður enn og aftur í frétt­irnar þegar hann var sak­aður um að hafa svikið á annað hund­rað millj­ónir króna út úr sextán ein­stak­lingum, en brotin voru framin á árunum 2006 til 2010. Svika­mylla Sigurðar gekk út á það að fá ein­stak­linga til að leggja inn á hann pen­inga, sem hann sagð­ist meðal ann­ars ætla að nýta til gjald­eyr­is­við­skipta og til kaupa á krónu­bréfum. Fólkið átti svo að njóta ávöxt­unar sem yrði til vegna við­skipt­anna við Sigurð. Ekkert varð þó um efndir en Sigurður er tal­inn hafa notað pen­ing­ana til að greiða eldri skuldir og eins til eigin fram­færslu.

Bar fjöldi fórn­ar­lamba Sigurðar honum illa sög­unni við vitna­leiðslur í mál­inu og sögðu sumir sig fleiri millj­ónum fátæk­ari eftir við­kynn­ing­una. Frábað Sigurður aftur á móti allar sakir og lýsti sig sak­lausan af mál­inu.

Einstök tungulipurð og sannfæringarkraftur

Það vekur athygli hversu fljótt Sigurður náði að plata fé úr fólki og virð­ist tungulip­urð hans og sann­fær­inga­kraftur hafa verið með ólík­indum. Hann mun mun hafa verið afar trú­verð­ugur en ýtinn og rök­stutt mál sitt með bréf­um frá lög­mönn­um og banka­stofn­un­um.

Tökum nokkur dæmi: Sigurður vandi komur sína á ákveðna bens­ín­stöð og ving­að­ist við stöðva­stjór­ann sem lét glepjast af fag­ur­ga­l­anum og afhenti Sigurði 4,9 millj­ónir á árunum 2006 til 2008.

Annar fastur við­komu­staður Sigurðar var vín­búð þar sem Sigurður sér­pant­aði vín og sá ávallt sami starfs­maður um pönt­un­ina og tóku þeir reglu­lega tal saman. Svo fór að vín­búða­starfs­mað­ur­inn stóð uppi 5,3 millj­ónum fátæk­ari eftir þriggja ára kynni við Sigurð árið 2009.

Árið 2008 lenti Sig­urður í um­ferðaró­happi sem hann átti eftir að nýta sér til hins ítrasta. Hann hringdi reglu­lega í hinn öku­mann­inum og spurði hlý­lega eftir líðan hans. Fljót­lega barst talið að fjár­fest­inga­tæki­færum og tap­aði öku­mað­ur­inn 3,6 millj­ónum sem Sigurður lof­aði að hann myndi marg­falda með við­skipti með fram­virka gjald­miðla­samn­inga.

Bílinn tók hann aftur á móti á verk­stæði og gaf sig á spjall við eig­and­ann. Sagði eig­andi verk­stæð­is­ins Sigurð hafa komið vel fyrir og virst hafa mikla fjár­mála­þekk­ingu. Endaði verk­stæð­is­eig­and­inn á að tapa 7 millj­ónum.

Plataði prestinn um tíu milljónir

Í frétt Morg­un­blaðs­ins segir af því að þegar dóttir Sigurðar var í ferm­ing­ar­fræðslu hjá séra Erni Bárði Jóns­syni hafi Sigurður byrjað að venja komur sína í kirkj­una. Svofór að þeir ving­uð­ust, snæddu hádeg­is­mat reglu­lega saman og ræddu málin.

Séra Örn sagði Sig­urð hafa beðið um hjálp við að leysa úr gjald­miðla­samn­ingi hjá Seðla­banka Íslands. „Ég hafði enga ástæðu til að van­treysta hon­um. Ég lét hann fá ákveðna upp­hæð og hann seg­ist ætla að borga til baka eft­ir viku. Hann kom með helm­ing­inn en sagð­ist þurfa meiri pen­ing.”

„Hann sór við gröf föður síns“

Örn Bárður greiddi Sig­urði 9,9 millj­ón­ir í 15 færsl­um. Hann sagði Sig­urð hafa spunnið ótrú­leg­ar sög­ur og sýnt mikla leik­fimi við að halda þessu gang­andi. Ég þarf millj­ón eft­ir há­degið og þá ert þetta komið,” sagði Örn að Sig­urður hafi eitt sinn sagt. „Hann sór við gröf föður síns. Þetta er það versta sem ég hef lent í á æv­inni.”

„Hefði helst vilja gleyma þessu máli“

Dögum saman stigu fram vitni fyrir Hér­aðs­dómi og voru sög­urnar keim­líkar. Með ann­ars vitn­aði maður um að hafa látið Sigðurði í té and­virði nýseldrar jarðar sinnar, alls 13 millj­ónir. Þær sá hann aldrei framar. „Maður skamm­ast sín fyr­ir það en ég trúði að þetta myndi skila sér. Ég hefði helst vilja gleyma þessu máli.”

Svo fór að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Sigurð í tveggja og hálfs árs fang­elsi í mars 2014 fyrir svikin og var honum einnig gert að greiða fórn­ar­lömbum skaða­bætur.

Hæsti­réttur stað­festi dóm­inn tveimur árum síðar þó með þeim for­merkjum að efni væri til þyngri refs­ingar, en vegna tafa máls­ins var fyrri dómur stað­festur.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist upp­haf­lega 7. júní 2021 og skrif­aði Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni