Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Draumaprinsinn Sigmundur

Draumaprinsinn Sigmundur
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.

Miklar vanga­veltur eru um fram­tíð Fram­sókn­ar­flokks­ins eftir tjónið í kosn­ing­unum þegar helstu von­ar­stjörnur flokks­ins, Lilja Alfreðs­dóttir og Ásmundur Einar Daðason, misstu þing­sæti sín en Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður komst naum­lega af í skjóli Höllu Hrundar Loga­dóttur, sem náði kjöri og dró for­mann­inn með sér. Flokk­ur­inn er í þeirri ömur­legu stöðu að vera með for­mann sem leiddi hann í stærsta ósigur flokks­ins í sögu hans.

DV fjallar um þessi mál af nokk­urri léttúð en þó með alvar­legum und­ir­tóni. Þar er reifuð sú hug­mynd að leið fram­sókn­ar­manna til lífs kunni að vera sú að sam­ein­ast Mið­flokknum og gera Sigmund Davíð Gunn­laugs­son að for­manni hins sam­ein­aða flokks. Reyndar telur DV að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eigi einnig erindi í sam­ein­ing­una en það er fjar­lægur mögu­leiki. Möguleg end­ur­koma Sig­mundar Davíðs vekur ein­hverjum fram­sókn­ar­mann­inum hroll en aðrir gleðj­ast yfir mögu­legri end­ur­reisn leið­tog­ans sem á sínum tíma leiddi flokk­inn til mik­illa sigra.

Þessi draumur um sam­ein­ingu undir drauma­prins­inum Sigmundi kann þó að vera fjar­lægur því Sigurður Ingi hefur boðað að hann fari um landið á næst­unni til að reisa flokk sinn úr rúst­unum. Spurn­ingin er þá sú hvort hann hafi stuðn­ing hins almenna fram­sókn­ar­manns til að leysa úr klúðr­inu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Slúður