Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lagið Heim til vina slær í gegn: „Er að vona að ég verði svona one hit wonder“

Lagið Heim til vina slær í gegn: „Er að vona að ég verði svona one hit wonder“
Reinhold Ricther Mynd: Pétur Fjeldsted Einarsson

Reinhold Richter gaf út lagið Heim til vina á dög­unum en það samdi hann til heið­urs vinar síns, Ísaks Harð­ar­sonar ljóð­skálds, sem lést árið 2023. Segist hann í sam­tali við Mannlíf vona að lagið verði „one hit wonder“ eða einsmell­ungur eins og það kall­ast á íslensku.

Aðspurður um við­brögðin við lag­inu segir Reinhold þau hafa verið frá­bær:
„Ég fæ alveg rosa­lega góð við­brögð, maður er bara hissa. Ég er búinn að fá svo flott comment í einka­skila­boðum frá fólki sem er mér kunn­ugt en ekki tengt þannig. Maður verður bara klökkur.“

Reinhold og Gunnar Baldur dótt­ur­sonur hans.

Reinhold seg­ist hafa verið að kynna lagið sem ein­hvers­konar minn­ing­ar­lag en það fjalli jafn mikið um vin­átt­una og von­ina:

„Ég hef verið að kynna lagið sem svona minn­ing­ar­lag en þetta var til­búið í nóv­em­ber en þá setti ég það ofan í skúffu. Svo hef ég verið að hlusta á það núna og finnst þetta meira svona lag um vin­áttu, von og fram­tíð­ina. Og ekki veitir af á þessum tímum þar sem allt er ein­hvern­veg­inn svart.“

Reinhold Richter

Lagið samdi Reinhold til heið­urs ljóð­skálds­ins Ísaks Harð­ar­sonar sem lést árið 2023 en þeir voru góðir vinir.

„Við vorum mjög góðir vinir. Ég samdi þetta lag uppi í sum­ar­bú­stað. Við áttum góðar stundir þar en hann vildi nú yfir­leitt ekki gista en kom við og við vorum að fara í svona bílt­úra saman. Og þegar hann dó gerði ég mér grein fyrir því hversu mikið ég hafði misst og fór í sjálfs­vorkun og þannig kvikn­aði þetta. Og svo vildi ég bara heiðra minn­ingu hans,“ sagði Reinhold og bætti við hlæj­andi: „Ég var svo rugl­aður fyrst að ég ætl­aði að semja ljóð en sá svo að það stóðst nátt­úru­lega engan sam­an­burð við það sem hann [Ísak] var að skrifa.“ Þannig að úr varð lagið sem nú hefur verið gefið út.

„One hit wonder“

En er Reinhold reynslu­mik­ill tón­list­ar­maður?

„Nei, bara ekki sko. Ég hef bara gutlað einn á gítar og aldrei sungið eða spilað með öðrum. Og ég hef pikkað gripin upp sjálfur og ég næ alveg að setja saman hljóma og hef búið til fullt af litlum lögum. En ég er ekki mik­ill tón­list­ar­maður sem slíkur.“

Aðspurður hvort hann ætli sér að gefa út fleiri lög svarar Reinhold hlæj­andi: „Nei, ég er að vona að ég verði svona one hit wonder!“

Reinhold segir að það hafi tekið hann um tvö ár að semja lagið. „Ísak deyr í maí 2023 og þetta hefur senni­lega verið í júlí, sem ég byrj­aði. Og svo leiddi eitt af öðru og ég keypti svona uta­n­áliggj­andi hljóð­kort til að geta spilað inn á tölv­una og fékk með því for­rit til að taka upp og fór að leika mér. Ég er búinn að læra meira á tón­list á sein­ustu tveimur árum en á allri ævinni. Það er gaman að þessu, svona á gam­als­aldri.“

Hér má sjá mynd­band við lag Rein­holds:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar