Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins er engin annar en metal­haus­inn, vegan­inn, fem­inist­inn, sam­göngu­hjól­ar­inn og fað­ir­inn Birkir Fjalar Viðarson. 

Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhuga­maður um rokktón­list og segir hann í við­tal­inu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörð­inni í gegnum hina ýmsu öldu­dali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og hlað­varps­þætti sem heita Stokkið í eld­inn þar sem þung­arokkið er rætt og skil­greint niður í minnstu eindir. 

Birkir er mik­ill eld­móðs­maður og tekur hlut­verk sín og skyldur mjög alvar­lega og kemur það best fram í hlut­verki hans sem faðir þriggja barna. Hann segir það svo mikið verk­efni fyrir sig að mynda þessi nauð­syn­legu tengsl við börnin sín og gefa sig algjör­lega í því ferli. Hann vill meina að allt annað falli á undan tíma og sam­neyti með börn­unum sínum og gerir sér grein fyrir að ef ekki er haldið rétt á spil­inum í þessum málum geti maður sitið uppi með sárt ennið þjak­aður af skömm og sekt­ar­kennd. 

Þetta við­tal breyt­ist fljótt í eins frjáls­legt sam­tal og hugs­ast getur. Gunnar, annar þátt­ar­stjórn­and­inn hafði aldrei hitt Birkir áður og vissu þeir ekk­ert um hvor annan fyrir utan að Birkir segir að honum hafi verið ráð­lagt að fara ekki í við­tal í Þvotta­húsið sökum þess hve mik­ill hat­ari Gunnar væri í garð fem­in­isma og trans­fólks. Gunnari hafði verið lýst fyrir honum sem manni mik­illa og ljótra skoð­ana. Út frá því spannst sam­tal sem er svo hollt að hafa meðal mann­eskja með ólík við­horf til hinna og þess­ara póla sam­fé­lags­ins. 

Í við­tal­inu var svo farið yfir mjög víðan völl og var sem þátt­ar­stjórn­endur og við­mæl­andi hrein­lega gleymdu að bæði hljóð­nemar og mynda­vélar hvíldu á þeim. Guð og trú, draug­sögur, kapital­ismi og fram­tíð manns­ins, geim­verur og heil­agt banda­lag allra sam­fé­laga okkar vetr­ar­brauta var rætt í þaula og ef mynda­vél­arnar hefðu ekki klárað raf­hlöð­urnar hefðu við­talið eflaust dreg­ist langt fram á nótt, svo mik­ill var gals­inn, teng­ingin og rök­ræð­urnar.

Alla þætti Þvotta­húss­ins má nálg­ast á öllum helstu streym­isveitum eins og Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti