Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Átta ára piltur bjargaði lífi unglingspilts sem varð undir möl: ,,Ég varð auðvitað hræddur“

Átta ára piltur bjargaði lífi unglingspilts sem varð undir möl: ,,Ég varð auðvitað hræddur“
Hreiðar og Pétur við sílóið. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Átta ára drengur frá Húsavík fór út að hjóla einn eft­ir­mið­dag en datt ekki í hug að áður en um langt væri liðið, væri hann orð­inn hetja sem bjarg­aði lífi ung­lings­pilts.

Í októ­ber­byrjun 1975 var hinn 16 ára Pétur Ármann Jónsson að klára vinnu sína við mal­ar­nám við Húsavík. Var hann að moka möl úr sílói eftir að færi­band sem átti að flytja möl­ina bil­aði, en sam­starfs­menn hans voru allir farnir heim. Ákvað pilt­ur­inn að kíkja í sílóið til að athuga hvort mölin væri ekki að fara að klár­ast. Ekki vildi betur til en að steinn féll á höfuð Péturs og vank­að­ist hann við höggið. Mal­ar­bing­ur­inn hrundi síðan yfir hann og grófst hann í möl­ina upp að höku. Hóf hann að öskra af öllum lífs­ins og sál­ar­kröftum enda ótt­að­ist hann um líf sitt, þar sem vinnu­fé­lag­arnir voru allir farnir heim.

Hinn átta ára Hreiðar Hreið­ars­son átti fyrir ein­skæra til­viljun leið fram­hjá vinnu­svæði Péturs á hjóli sínu og heyrði óp ung­lings­ins. Dreif dreng­ur­inn sig sem hrað­ast heim og sagði föður sínum frá því sem hann hefði heyrt. Var faðir hans ekki lengi að koma Pétri til bjargar sem kippti sig lítið upp við atvikið, enda hafði ýmsa fjör­una sopið á sinni stuttu ævi.

Hér má lesa frétt Dag­blaðs­ins um hetju­dáð Hreiðars litla:

8 ára Húsa­vík­ur­strákur bjarg­aði manns­lífi!

„Varð auð­vitað hrœddur og hjólaði heim…“

segir Hreiðar Hreið­ars­son sem heyrði óp 16 óra pilts er grófst undir möl

Átta ára drengur, Hreiðar Hreið­ars­son, sonur hjón­anna Öldu Guð­munds­dóttur og Hreiðars Sig­ur­jóns­sonar á Húsavík, varð hetja dags­ins sl. þriðju­dag er hann lét for­eldra sína vita um hróp sem honum bár­ust frá mal­ar­námi við Húsavík. Þar lá Pétur Ármann Jónsson fast­klemmdur undir möl í sílói og var orð­inn heldur vondauf­urum að hjálp bær­ist. Nánari til­drög voru þau að færi­band, sem flutti möl frá sílói því er Pétur vinnur við, hafði bilað og var hann að moka möl­inni úr siló­inu. Fór hann inn í það til þess að sjá hvort ekki væri að minnka í því. Féll þá steinn í höfuð hans og hálf­rot­að­ist Pétur við það. Hrundi síðan mal­ar­bing­ur­inn yfir hann, þar sem hann lá í síló­inu, og grófst hann í möl­inni upp að höku en fæturnir, sem stóðu út úr síló­inu, voru lausir. ,,Ég var bara að hjóla þarna af til­viljun þegar ég heyrði sker­andi óp,” sagði Hreiðar í við­tali við Dagbl. í gær. ,,Ég varð auð­vitað hræddur og hjólaði heim eins fljótt og ég gat og sagði pabba hvað ég hefði heyrt. Þeir fóru svo upp­eftir og fundu Pétur undir möl­inni.” „Und­ar­leg­ast fannst mér hvað þeir komu fljótt,” sagði Pétur Ármann sem er 16 ára. ,,Ég heyrði að ein­hver var á ferð­inni nálægt síló­inu og öskr­aði eins og ég gat, enda taldi ég að þetta væri síð­asta vonin til bjargar, þar eð allir, sem vinna hér, voru farnir heim og höfðu ekki heyrt í mér.” Pétur var furðu hress þrátt fyrir þessa óhugn­an­legu upp­lifun enda sagð­ist hann vera ýmsu vanur. Hefði hann lent í slæmu bílslysi í sumar en sloppið ómeiddur og eitt sinn hefði hann dottið af bygg­ing­ar­upp­slætti niður á járn­grindur. Þá hefði munað veru­lega litlu. Pétur hlaut ekki nein slæm meiðsli, er hruflaður í and­liti og mar­inn á baki.

Hreiðar og Pétur við sílóið.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni