Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar
Myndin teng­ist Bak­sýn­is­spegl­inum ekki beint. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Það var aðeins vika í útskrift hjá nokkrum íslenskum flug­verkja­nemum í Tulsa, Banda­ríkj­unum í mars 1989 og félag­arnir ákváðu að fara út á lífið. Einn þeirra átti hins vegar eftir að enda hel­særður á sjúkra­húsi áður en kvöldið hófst.

Skóla­fé­lag­arnir voru fimm saman í sendi­ferða­bíl og voru að skála. Það fór hins vegar í taug­arnar á eig­anda bíls­ins, sem var einn af skóla­fé­lög­unum. Líkaði honum það svo illa að hann ákvað að draga einn þeirra út úr bílnum og mis­þyrma honum. Barði hann kunn­ingja sinn svo illa að hann lá með­vit­und­ar­laus eftir á göt­unni. Aðrir í bílnum átt­uðu sig í fyrstu ekki á alvar­leika máls­ins og héltu ferð sinni áfram eftir að árás­armað­ur­inn var aftur kom­inn upp í bíl­inn. Stuttu síðar átt­uðu þeir sig þó á stöðunnu og stukku út út bílnum og gáðu að félaga sínum. Árás­armað­ur­inn og öku­maður bíls­ins óku hins vegar á ball og skeyttu engu um hinn særða.

Þegar menn­irnir komu að blóð­ugum félaga sínum, náðu þeir að draga hann í nær­liggj­andi verslun þar sem hringt var á sjúkra­bíl. Sögðu lækn­arnir sem tóku á móti honum að ef hann hefði legið í hálf­tíma lengur, hefði honum blætt út. Svo illa nef­brot­inn var hann að hann þurfti að gang­ast undir aðgerð. Í frétt sem DV skrif­aði um málið, kemur fram að mað­ur­inn þyrði ekki að kæra ofbeld­is­segg­inn, af ótta við frek­ari árásir. Ekki veit Mannlíf um mála­lok í þessu máli en ef les­endur eru með upp­lýs­ingar má alveg senda línu.

Hér má lesa frétt DV um málið:

Vika í útskrift flug­virkja í Tulsa í Banda­ríkj­unum:



Íslenskum flug­virkja­nema mis­þyrmt

-af landa sínum, sér lík­lega af próf­skír­teini og 200 þús­undum í læknis­kostnað

„Eigandi sendi­ferða­bíls­ins snar­að­ist út, svipti renni­hurð­inni upp og dró þann sem sat næst hurð­inni út á götu. Þar fékk sá hné­högg í kvið­inn og þar sem hann var nokkuð við skál, tölu­vert minni og létt­ari, var lítið mál að fella hann. Árás­armað­ur­inn lét sér þetta ekki nægja heldur spark­aði hann marg­sinnis í höfuð hins. Að því búnu fór hann upp í bíl­inn á ný og sagði bíl­stjór­anum að keyra áfram. Þeir sem sátu aftur í átt­uðu sig ekki strax á því sem gerst hafði en á næsta rauða ljósi, nokkru frá, fóru þeir út úr bílnum og að hinum slas­aða sem lá í blóði sínu á göt­unni. Var honum draslað með­vit­und­ar­lausum að sjoppu þar sem náð­ist í lög­reglu og sjúkra­bíl. Að sögn lækn­anna hefði mað­ur­inn ekki þurft að liggja nema í tæpan hálf­tíma á göt­unni til að blæða út,“ sagði við­mæl­andi DV í Tulsa við blaðið í gær. Hann vildi ekki láta nafns síns getið. Því sem lýst er hér að ofan átti sér stað meðal íslenskra flug­virkja­nema í Tulsa, Oklahoma, í Banda­ríkj­unum á föstu­dags­kvöld. Þeir voru fimm saman í sendi­ferða­bíl og voru eitt­hvað að skála. Eiganda bíls­ins, sem sat í far­þega­sæt­inu frammi í, mis­lík­aði það og bað kunn­ingja sína hætta. Þeir sinntu því ekki og ákvað eig­and­inn því að sýna að honum væri alvara með fyrr­greindum hætti. Á eftir fóru bíl­stjór­inn og eig­andi bíls­ins á ball.

Illa far­inn

„Það versta í þessu máli er að þeir eiga báðir að útskrif­ast á fimmtu­dag­inn í næstu viku en mjög tví­sýnt um hvort sá er var bar­inn nái því. Hann hefur verið alveg miður sín auk þess sem stór­sér á honum. Hann er illa nefn­brot­inn, með skurð í and­liti og svo bólg­inn að hann sá ekk­ert með öðru aug­anu fyrstu dag­ana. Hann hefur misst úr skól­anum og verður að vinna það upp fyrir fimmtu­dag­inn þegar allt verður að vera á hreinu. Hann á að fara til sér­fræð­ings í vik­unni þar sem gera verður aðgerð á nef­inu sem er illa skakkt. Þá missir hann enn meira úr skól­anum. Það er ólykt af þessu.“ Að sögn við­mæl­anda DV nemur sjúkra­hús- og læknis­kostn­aður þegar yfir þús­und dölum og mun lík­leg­ast ná 3-4 þús­und dölum, 150-200 þús­und krónum, eftir sér­fræð­ings­heim­sókn og aðgerð á nef­inu. Allt er í óvissu hvort árás­armað­ur­inn borgi þennan kostnað. En hefur hann verið kærður?

Þorir ekki að kæra

„Maðurinn þorir satt að segja ekki að kæra af ótta við að árás­armað­ur­inn komi aftur í heim­sókn. Sá er þekktur fyrir allt annað en prúð­mennsku. Hefur hann oft gengið í skrokk á mönnum og verið fullur. Var hann til að mynda settur í að hreinsa veg­kanta á þjóð­veg­inum til að bæta fyrir eitt­hvert ódæðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni