Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls
Sig­ur­bára VE Mynd: Trausti Hafsteinsson

Föstu­dag­inn 7. mars árið 1981 strand­aði bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249, á Skóg­ar­sandi. Sjö menn voru í áhöfn báts­ins en tókst að bjarga þeim öllum.

Vest­manna­eyja­radíó til­kynnti björg­un­ar­sveit­inni Víkverja frá Vík í Mýrdal klukkan 10:50 föstu­dags­morg­un­inn 7. mars 1981, að Vest­manna­eyja­bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249 hefði strandað á Skóg­ar­sandi. Björg­un­ar­sveitin, sem var þaul­vön álíka björg­unum, var ekki í miklum vand­ræðum með að bjarga öllum sjö áhafn­ar­með­limum báts­ins, þó veður hafi verið ansi slæmt á köflum en bæði rok og sand­bylur tafði björg­un­ina eilítið. Aðstaða á strand­staðnum var afar erfið vegna veð­urs­ins en skip­verjar á Sig­ur­báru náðu að skjóta línu í land en þá var leki kom­inn að skip­inu og því ekki seinna vænna að verða bjargar í land.

Hér má lesa frétt Dag­blaðs­ins um hið fræki­legu björgun:

Sig­ur­bára VE-249 strand­aði á Skóg­ar­sandi

Sjö mönnum bjargað í roki og sand­byl

skip­brots­menn fluttir að Skógum — leki kom­inn að skip­inu, vél óvirk og raf­magn fór af

Vest­manna­eyja­bát­ur­inn Sig­ur­bára VE 249 strand­aði skömmu fyrir hádegið í gær á Skóga­sandi, skammt austan Jökulsár á Sól­heima­sandi. Á bátnum var sjö manna áhöfn og tókst björg­un­ar­sveit­inni Víkverja frá Vík í Mýrdal að bjarga áhöfn­inni í land. Allir voru komnir heilir á húfi í land á fimmta tím­anum í gær. Að sögn Hannesar Hafstein í gær til­kynnti Vest­manna­eyja­radíó Slysa­varna­fé­lag­inu kl. 10.50 í gær að Sig­ur­báran væri strönduð vestan Dyr­hóla­eyjar. Jafn­framt var til­kynnt að úti fyrir væru fjögur skip ásamt varð­skip­inu Tý. Björg­un­ar­sveitin Víkverji í Vík í Mýrdal var þegar ræst út. Sveitin lagði af stað kl. 11.35 og fór veg­hef­ill fyrir, því ófærð var mikil. Ferðin sótt­ist vel og var sveitin komin á strand­stað kl. 13.05. Aðstaða á strand­stað var mjög erfið, mikið rok á norð-austan og varla sást út úr augum vegna sand­roks. Skip­verjar á Sig­ur­báru gátu skotið linu í land, en skipið hafði strandað í grjót­urð, um 200 metra frá landi. Leki var kom­inn að skip­inu, vélin orðin óvirk og raf­magn farið af því. Samband náð­ist við skipið um kl. 13.30. Skömmu eftir að línan náð­ist færð­ist skipið vestar og nær landi. Ákveðið var að koma tog­vírum frá Sig­ur­báru í land og voru þeir settir fastir í veg­hef­il­inn til þess að reyna að halda í við skipið. Mjög braut á skip­inu á þessum stað.

Fyrsti skip­verj­inn náð­ist í land kl. 15.43 og síðan hver af öðrum unz allir voru komnir í land kl. 16.13. Hlé varð þó að gera meðan verstu hryðj­urnar gengu yfir. Þegar allir voru komnir í land voru skip­brots­menn fluttir að Skógum. Að sögn Hannesar Hafstein gekk björg­unin með miklum ágætum, enda björg­un­ar­sveitin Víkverji mjög reynd í björg­unum. sem þessum. Sig­ur­bára VE er stál­skip, 127 lestir að stærð, smíðað á Seyð­is­firði árið 1978.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni