Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ellý í Q4U: „Ég er ekki lengur að hlusta á gamla pönktónlist“

Ellý í Q4U: „Ég er ekki lengur að hlusta á gamla pönktónlist“
Elín Hall­dórs­dóttir

„Ég lenti á svo mörgum veggjum. Ég stend alltaf upp og geng á sama vegg­inn þangað til að maður velur á milli; ætlar þú að lifa eða deyja? Það var bara eig­in­lega svo­leiðis hjá mér. Ég var ekk­ert viss hvort ég vildi. Ég var alveg í 40 daga inni á Vogi í afeitrun; yfir­leitt ertu bara í 10 daga þar,“ segir Elín Hall­dórs­dóttir, Ellý, fyrr­ver­andi söng­kona pönk­hljóm­sveit­ar­innar Q4U.

Varstu í öllu sem gafst?

„Já, meira og minna.“

Hvenær varð þessi vakn­ing?

„Hún var alltaf svo sem þegar manni leið ekki vel. En svo um leið og maður gat reddað ein­hverju þá var vakn­ingin farin. Ég vissi að ann­að­hvort myndi ég hætta eða deyja. Ég var orðin svo veik. Ég fann það alveg sjálf. Ég reykti líka lengi og ég hætti ekki fyrr en ég var bók­staf­lega að kafna og þá hætti ég.“

40 dagar á Vogi. Og dugði það?

„Nei. Svo var ég í eft­ir­með­ferð. Þetta var 15 mán­aða með­ferð.“

En það dugði?

„Já. En ég var búin að vera á Víf­ils­stöðum í átta mán­uði áður og það dugði ekki dag­inn.“

Hún féll dag­inn sem hún kláraði með­ferð­ina þar. Fór í partí.

Hún var tekin af mér.

„Ég var orðin 29 ára og búin að missa barnið mitt; ég hefði átt að hætta þegar Erna fædd­ist. Hún var tekin af mér og ég fékk mér lög­fræð­ing og hann hafði enga trú á mér. Eðlilega svona eftir á að hyggja. Þá var allt öðru­vísi. Það var eng­inn stuðn­ingur. Ég hafði engan. Þetta var eins og að berj­ast við vind­inn. Ég var ein, átti ekk­ert, vissi ekk­ert og kunni ekk­ert. Þetta var bara leið­in­leg saga og ljót.“

Ellý segir að fyrstu tvö árin eftir að hún hætti í neyslu hafi verið hræði­leg. „Eftir svona tvö ár byrj­aði smátt og smátt upp­bygg­ing. Það var eins og maður gæti ekk­ert. Maður var svo getu­laus. Þú ert alltaf að gera það sem þér er sagt. Ég lærði að gera það sem mér var sagt, að vera ekk­ert að taka ákvarð­anir sjálf. Ég var svo­leiðis í mörg ár þangað til að ég fann allt í einu að ég gat tekið ákvarð­anir sjálf en ég get það ekki alltaf. Stundum fæ ég svaka góðar hug­myndir sem eru ekki góðar og allir „nei, nei, nei“ og ég sé ekki það sem er verið að vara mig við. Það hefur reynst mér mjög illa.“

Er þetta hvat­vísi?

„Já, við getum kallað það hvat­vísi. Ég er mjög hvat­vís. En ég veit af því.“

Hvað var síð­asta flippið?

„Ég veit það ekki. Ég er samt miklu var­kár­ari. En yfir­leitt hlusta ég núna. Það eru svona 10 ár síðan síð­asta flippið var. Þá keypti ég ónýtt hús.“

Fullt af fólki og mikið djamm

Hvers vegna pönk?

„Ég var þannig stödd and­lega, held ég. Erfitt heima. Ólst þannig upp. Við erf­iðar aðstæður. Þannig að það var ekk­ert skrýtið að maður færi þangað.“

Þannig að hún vildi öskra svo­lítið á sam­fé­lagið.

„Já.“

Hún segir að fyrstu tón­leik­arnir á ferl­inum hafi verið í MH. Hún var þá í hljóm­sveit sem kall­aði sig Nýnas­istur. Seinna fór hún svo í Q4U.

„Ég fór að búa til texta og ég gat aldrei munað text­ana mína þannig að maður þurfti að hafa blað og lesa. Svo vissi maður ekk­ert hvaða lag var hvað þannig að ég vissi ekki hvers vegna ég var með þessa texta. En svo seinna lærði ég það. Ég gleymi text­unum og bara bulla hvort eð er. Og var bara góð í að bulla.“

Hún bjó á tíma­bili ásamt fleirum í húsi við Fischersund. „Þar voru alltaf allir. Þetta var komm­úna eig­in­lega. Fólk svaf þar ef það hafði ekki annan stað. Það var yfir­leitt fullt af fólki þarna og mikið djamm.“

Ellý og Gunnþór Sig­urðs­son, sem var í hljóm­sveit­inni, gengu í hjóna­band. „Við giftum okkur ári áður en við byrj­uðum saman. Svona spari­merkja­gift­ingu. Ég ætl­aði að gift­ast öðrum, honum Þormari. Hann hætti við.“

Þau Gunnþór eign­uð­ust svo dóttur. Og upp úr slitn­aði.

Ég fæ bara klást­ró­fó­bíu.

„Ég þarf bara að vera ein. Ég get ekki átt mann. Ég hef bara rosa­lega gaman af að vera með sjálfri mér held ég. Ég er að vinna. Ég er að horfa á mitt sjón­varp. Ég á fjögur börn. Það hentar mér ekki að vera í sam­búð. Ég fæ bara klást­ró­fó­bíu; þetta er eins og að vera lokuð inni í lyftu. Mér bara leið­ist.“

Vill Ellý ekki lengur karla?

„Nei, alls ekki.“

Barnið þeirra Gunnþórs, Erna, er orðið læknir. Lærði í Slóvakíu og þar bjó Ellý í eitt og hálft ár með henni. „Pönk­ara­barnið mitt.“

Ellý seg­ist halda að hún hafi aldrei fengið greitt fyrir að koma fram með Q4U. „Maður borg­aði alltaf með sér; þess vegna er ég algjör­lega hætt. Ég nenni þessu ekki. Það kostar bara pen­ing. Og til hvers?“

Hún segir að hljóm­sveitin hafi alltaf verið að hita upp fyrir aðra sem fengu pen­ing­ana. „Það var bara saga Q4U. Svo gáfum við út plötu 1983; hún var gefin út í 500 ein­tökum. Hún seld­ist upp og er mjög dýr; hún er nefni­lega ófá­an­leg. Það var ekki út af því að við værum svo vin­sæl; við vissum það ekki fyrr en 30 árum seinna að þetta hafi kom­ist á ein­hverja lista í Svíþjóð. Þetta var fyrir tölvu­tím­ann. Þannig að við erum költ ein­hvers staðar úti í heimi.“

þegar maður var orð­inn svona fullur eins og ég var alltaf þá lyft­ist það eitt­hvað upp.

Ellý þótti oft vera heldur fáklædd. Hvað með það að hún gekk eitt sinn niður Lauga­veg­inn? „Ég var alltaf að sauma föt. Ég saum­aði mér pils úr veski mömmu. Það var svo hart leðrið í því og þegar maður var orð­inn svona fullur eins og ég var alltaf þá lyft­ist það eitt­hvað upp; ég var í neta­sokka­buxum. Sagan var fyrst þannig að ég hafi verið nakin með veski. En ég var aldrei með veski. En veskið var komið upp í mitti þannig að ég hef senni­lega verið á rass­inum. Í net­sokka­buxum. Svo skipti þetta engu máli fyrir mig og mér gat ekki verið meira sama.“

Missti allt í hruninu

Börnin eru fjögur og barna­börnin eru líka fjögur. Var aldrei erfitt að ala börnin upp ein? „Jú, það var ógeðs­lega erfitt og ég myndi aldrei segja neinum að þetta sé ekk­ert mál. Þetta var mjög erfitt.“

Fátækt?

„Nei, ég vann mikið,“ segir Ellý sem seg­ist á tíma­bili hafa verið í fjórum störfum. Og svo byggði hún ein­býl­is­hús. Var það ekki bug­andi með börnin? „Jú, þetta voru erfið börn. Þau voru öll erfið en ég á mjög flott börn. Þau vita nákvæm­lega hvað þau vilja.“

Jú, hún er hvat­vís og keypti sér lóð.

Börnin voru ung og öll á svip­uðum aldri og hvert öðru svona ofvirk og alls konar. Þannig að þetta var geð­veiki. En ég komst í gegnum þetta en þetta var ógeðs­lega erfitt.“

Var hún að nagl­hreinsa sjálf? „Jú, ég ætl­aði að gera mikið meira sjálf en ein­fald­lega kunni það ekki en í dag er ég orðin ansi góð. Ég á allar græjur.“

Og húsið reis.

„Húsið reis en svo seldi ég það og keypti annað því miður 2007. Rétt fyrir hrun. Það fór hrika­lega illa; við skulum ekki ræða það einu sinni. Ég hef aldrei verið mikil pen­inga­kona.“

Í gamla daga var maður bara á bísanum og ég átti stundum ekki fyrir mat og bara svalt.

Hún missti allt í hrun­inu. „Allt. Peningar og ég eigum ekki sam­leið og ég hef kom­ist ágæt­lega af. Í gamla daga var maður bara á bísanum og ég átti stundum ekki fyrir mat og bara svalt; en ég hef alltaf getað gefið börn­unum mínum alla­vega að éta en kannski ekki átt fyrir 66 gráður úlpu og var ekki alltaf sú vin­sælasta að geta ekki keypt hjól þegar allir áttu hjól. En ég marði þetta ein­hvern veg­inn. Og þau höfðu það held ég fínt og eru bara vel sett í dag,“ segir fjög­urra barna móð­irin en yngsta barnið er 22 ára.“

Lærir alltaf af mistökunum

Jú, lífið er alls konar – eins og mál­verk sem hægt er að breyta að vild á strig­anum. Dökkir litir. Ljósir litir. Litir í öllum regn­bog­ans litum og meira en það. Striginn og lit­irnir heill­uðu og segir Ellý að hún hafi verið 15 ára þegar hún byrj­aði að mála. „Ég var að selja myndir í Aust­ur­stræti. Boli og alls konar. Lifði á því. Og svo var ég í Bæj­ar­út­gerð­inni kannski í tvo daga og svo var ég að selja í Aust­ur­stræti. Í pönk­inu.“

Lifði hún bara fyrir dag­inn í dag?

„Ég var svo­lítið svo­leiðis og það hefur alltaf verið í mér að njóta dags­ins og vera ekk­ert að pæla í morg­un­deg­inum. En það hefur smátt og smátt droppað inn í sam­bandi við eins og að eiga pen­ing á morgun.“

Ellý hefur líka hæfi­leika á mynd­list­ar­svið­inu. Það er aug­ljóst.

Ég þarf að fara að halda sýn­ingu.

„Ég er svo­lítið ósýni­leg. Ég er svo­lítið mikið að mála. Ég þarf að fara að halda sýn­ingu og ein­hvern veg­inn kem ég mér ekki í það að gera það. Mér finnst mjög erfitt allt svona publicity.“

Hún segir að hún þyrfti umboðs­mann.

Hvað segir Ellý um fram­tíð­ina?

„Hún er bara björt. Við eigum 20 ár eftir; ég er byrjuð að telja. Ef maður er hepp­inn. Þetta er að verða búið þannig að maður verður að lifa og njóta.“

Er lista­konan trúuð?

„Nei. Inni í mér myndi ég vilja óska þess að ég væri trúuð af því að það er dálítið gott. Þá hefði lífið svo­lít­inn til­gang og þá myndi ég hlakka svo til næsta lífs af því að það yrði svo frá­bært út af því að ég er búin að gera svo mikið af leið­in­legum hlutum; þannig að í næsta lífi væri ég hætt að drekka, hætt að reykja og hætt þessu og hætt hinu.“

Hverju sér pönk­drottn­ingin mest eftir? Eða sér hún ekki eftir neinu?

„Það er ekki hægt að segja svona. Þetta er bara svona. Það er ekki hægt að sjá eftir af því að maður lærir alltaf af mis­tök­unum. Þá værir þú ekki þar sem þú ert akkúrat núna; hefði þetta ekki skeð þá hefði ég ekki lært það. Þannig að ég get ekki séð eftir neinu en auð­vitað sé ég eftir fullt af hlutum. Ég er alla­vega ánægð með hvar ég er í dag. Ég er glöð í vinn­unni minni og mér finnst ég eiga bara nokkuð gott líf. Ég er glöð með börnin mín. Þau eru mitt líf og yndi, börnin og barna­börnin og hin börnin mín sem ég á í vinn­unni minni. Mér finnst ég rík. Ég á æðis­legt sam­starfs­fólk alls staðar. Ég á bara rosa­lega gott fólk í kringum mig. Góða fjöl­skyldu. Mér finnst það vera númer eitt, tvö og þrjú.“

Hverjir eru stærstu sigr­arnir?

„Ég á lag sem heitir Sigurinn. Ég get ekki svarað þessu. Er þetta ekki allt einn stór sigur bara að vera komin hingað? Ég er orðin sex­tíu ára. Veistu hvernig merki við vorum með? „Don’t trust anyone over 30.“ Ég ætl­aði ekk­ert að verða svona gömul. 30 ára. Mér fannst þetta eld­gam­alt fólk sem var á leið­inni í gröf­ina. Ég verð 60 ára eftir nokkra daga. Það er í apríl. Edrúafmælið og sex­tugs­af­mælið.

Þegar ég var orðin þrí­tug þá breytt­ist ég.

Mér fannst ég vera á leið­inni í gröf­ina á þessum árum, 25-27 ára. Þegar ég var orðin þrí­tug þá breytt­ist ég. Og þá fór ég að njóta þess að vera orðin eldri. Svo sá ég að það var hund­leið­in­legt að vera svona ungur. Ekkert nema vanda­mál. Maður er alltaf að læra það meira og meira hvað það er gott að eld­ast og nenna ekki þessu. Hlutir sem skiptu máli skipta ekki máli.“

Svo varð Ellý dóm­ari í sjón­varps­þátt­unum X-Factor á Stöð 2. Hvað kom til að hún fór í það?

„Það var hringt í mig og svo fékk ég þetta.“

Hvað hefði pönk­ar­inn Ellý sagt um þessa ósköp?

„Þér er rosa stýrt í svona þætti þannig að ég fékk ekki alveg að vera ég. En ég var þá miklu grimmari. Ég er miklu meira líbó í dag. Ég er ekki lengur að hlusta á gamla pönk­tón­list. Ég hlusta á main str­eam.“

Sextug. Ellý í Q4U sex­tug. Hún á án efa eftir að gera skemmti­lega hluti á næstu 20 árum.

„10. Svo er ég hætt. Þá er maður bara far­inn á sól­ar­strönd. Á maður ekki að kaupa sér hús á Spáni?“

Þetta á að vera skemmti­legt.

„Þetta er skemmti­legt. Ég skemmti mér alltaf manna best og ég get alltaf sagt öllum hvernig skemmt­unin var út af því að það eru ekki allir sem muna eftir því. Ég þarf ekk­ert vín til að verða klikkuð. Ég er það bara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu