Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

,,Þú ferð til New Orleans til að læra blús en til Íslands til að læra á íslenska hestinn“

,,Þú ferð til New Orleans til að læra blús en til Íslands til að læra á íslenska hestinn“

Herbert Óskar Ólafsson, gjarnan þekktur sem Kóki, er gestur Spjall­vina Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni. Kóki á og rekur hesta­bú­garð­inn Hrafns­holt norður af Hannover í Þýska­landi, hefur flutt út þús­undir hrossa auk þess að hafa stofnað fyr­ir­tækið Top Reiter árið 1989 sem fram­leiðir enn reið­tygi og fatnað fyrir hesta­fólk.

Spurður að því hvort Þjóð­verjarnir séu ekki orðnir magn­aðir í að rækta íslenskan hest segir hann: „Jú, en þetta er eins og með blús­inn, maður fer til New Orleans til að læra blús en þú ferð til Íslands til að læra um íslenska hesta­mennsku og ræktun.“

Kóki telur að það þurfi meira ungt hesta­fólk til Evrópu því það verður að selja íslenska hest­inn með kennslu „Okkur vantar meira ungt fólk til Evrópu sem þorir að leggja land undir fót og koma út og taka þátt í gleð­inni og þess­ari upp­bygg­ingu. Á besta tím­anum vorum við sautján eða átján Íslend­ingar en þeim hefur fækkað tölu­vert mikið og það er ekki gott því við þurfum að vera með boð­bera þarna úti og það er nóg að gera fyrir alla. Við erum að ríða erf­ið­asta hesti í heimi vegna þess að þessar fimm gang­teg­undir geta verið rugl­ings­legar ef maður kann ekki á það. Þess vegna vantar okkur þetta unga fólk út. Það er nóg af stöðum til að fara á og það myndi lyfta þessu ennþá hærra. Þetta er að ske alls­staðar í kringum okkur, þessir frá­bæru menn sem eru í Danmörku og Svíþjóð; allt í kringum þessa Íslend­inga er líf og fjör og það er annað mat á hest­unum og rækt­un­inni.“

Kóki hefur átt magnað lífs­hlaup. Ólst upp í vest­ur­bænum sem KR-ingur, stofn­aði hljóm­sveit með Berta Möller í Gaggó Vest, var í sveit í Vatns­dalnum hvar hann kynnt­ist hesta­mennsku, gerð­ist hús­gagna­smiður og var síð­asti for­stjóri hús­gagna­verk­stæð­is­ins Val­bjargar á Akureyri áður en hann flutti svo til Þýska­lands.

Þegar Kóki ferð­að­ist fyrst til Þýska­lands sem 17 ára piltur flaug hann með Loft­leiðum til Lúx­em­borgar en þaðan þurfti hann að taka lest til Kölnar. Minnstu mun­aði að hann hefði misst af skipti­stöð­inni og þá endað austan við járn­tjald og fyrir vikið ákvað hann að sitja sem fast­ast á braut­ar­pall­inum og fylgj­ast vel með lestar­ferð­unum svo hann tæki ekki ranga lest.

„Það komu margar lestir en ég fer ekki í neinar lestir fyrr en að ég sé lest sem á stendur Köln. Ég sit þarna allan dag­inn með tösk­una en svo­lítið í burtu frá mér situr maður sem sýni­lega er fóta­laus og blindur og er að betla. Ég er búinn að taka eftir honum allan dag­inn og hann er búinn að fá mikil í doll­una því margir stoppa. En svo fer að líða á kvöldið og ég er ekki búinn að sjá neina lest sem á stendur bara Köln. Svo erum við bara eig­in­lega orðnir tveir eftir en þá lítur hann svona snöggt í kringum sig, tekur af sér gler­augun og hleypur í burtu. Þá var hann hvorki blindur né lamaður!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar