Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Bergsveinn Birgisson rithöfundur varð trillukarl 17 ára: ,,Ef Guð er dauður er allt leyfilegt“.

Bergsveinn Birgisson rithöfundur varð trillukarl 17 ára: ,,Ef Guð er dauður er allt leyfilegt“.

Gestur Mann­lífs­ins að þessu sinni er Berg­sveinn Birg­is­son rit­höf­undur og pró­fessor sem er meöal ann­ars þekktur fyrir að hafa skrifað bók­ina Svar við Bréfi Helgu. Kvikmynd var gerð eftir bók­inni. Berg­sveinn á ættir sínar að rekja vestur á Strandir en er fæddur og upp­al­inn á Álf­hóls­veg­inum í Kópavogi, ekki fjarri hinum fræga Álfhól. Þá voru þar ekk­ert nema móar og mýrar, bónda­bær í slakk­anum og hestar víða.

Í kringum 1980 hófst upp­bygg­ing Engi­hjall­anna og þá þótti drengj­unum sem þarna bjuggu til­valið að taka timbur ófrjálsri hendi og byggja sér kofa. Í augum ungra drengja voru þessir salir sem nýbygg­ing­arnar voru ævin­týra­heimar.

Það var eng­inn mikið að skipta sér af drengj­unum. Þeir stálu til að mynda eitt sinn bunka af timbri frá bónd­anum og byggðu kofa. Hann kom þá rölt­andi í hægðum sínum og tók að hrósa þeim fyrir kof­ann. Hann væri fal­legur og gólfið, maður lif­andi, þarna væri hægt að halda dansi­ball. Hann tók svo í nefið, snýtti sér og sagði að end­ingu „jæja strákar, þið kannski skilið þessu við tæki­færi.“

Hann fór svo í fót­bolt­ann eins og margir gerðu og þá var þarna íþrótta­fé­lag sem seinna varð gjald­þrota; ÍK, Íþrótta­banda­lag Kópavogs. Hann var þar í góðum hópi drengja, m.a. Helgi Kolviðar, sem seinna varð atvinnu­maður, Hörður Magn­ús­son, Valdimar Hugi Sæv­ars­son og Einar Hansen. Hann minn­ist þess helst hversu fljótur hann var að hlaupa. Menn sendu þá á hann ban­ana­bolta á meðan hann hljóp af sér vörn­ina og setti inn.

Það var ekki svo margt annað en knatt­spyrna í boði á þessum tíma fyrir dreng­ina og spurður að því hvort hann hafi ekki sett sér það mark­mið að ger­ast atvinnu maður, jánkar hann því en hann hafi vaxið upp úr þessu og farið að gera ein­hvern annan óskunda eins og lesa bækur.

Berg­sveinn fékk svo að fara í veit til ömmu sinnar og afa sem voru með bæinn Bakka­gerði norðan við Drangs­nes. Hann var svo sextán ára þegar hann leigði fyrst trillu af frænda sínum á Hólmavík og fór að róa á skaki en hann bjó að því að hafa farið á grá­sleppu með pabba sínum. Fyrir vikið var hann á Drangs­nesi flest sumur þangað til að hann fékk stúd­ents­próf.

Að stúd­ents­prófi loknu ákvað hann að bregða sér í átta mán­aða heims­reisu. Hann heim­sótti 15 lönd í Afríku, Indland og Nepal. Þetta var lær­dóms­ríkur tími og hann vann meðal ann­ars sem sjálf­boða­liði um tveggja mán­aða skeið í Bahá‘í must­eri í Nýju Delí sem lítur út eins og risa­stórt lótus­blóm. Þangað kom fólk af öllum trú­ar­brögðum og frá öllum heims­hornum.

Þeir kaþ­ólikkar sem heim­sóttu must­erið spurðu nán­ast allir sömu spurn­ing­ar­innar: hvar fenguð þið pen­inga til að byggja þetta must­eri?

Berg­sveinn lítur gjarnan á lífið sem litla mann­fræði­til­raun og oft með svo­lítið óvæntum nið­ur­stöðum en á þessu ferða­lagi telur hann að hann hafi áttað sig á hvaða braut hann vildi feta í líf­inu. Hann hafði jú lokið stúd­ents­prófi frá Fjöl­brauta­skól­anum í Garðabæ og hafi gaman að bók­menntum en hann var ekki viss hvert leiðin myndi liggja við upp­haf ferða­lags­ins en þarna eftir ferð­ina hafði hann séð fram­andi menn­ing­ar­heima og fyrir vikið lang­aði hann að fræð­ast um sína eigin menn­ingu; sína eigin, gömlu nor­rænu menn­ingu og því lá leiðin í íslensku­nám og svo þaðan til Noregs til að nema nor­ræn fræði og trú­ar­bragða­sögu.

Í hans huga er aðal sorgin eftir að hann hætti í aka­dem­í­unni sem fræð­ingur á sviði nor­rænna fræða sú að sögu­leg vit­und fólks sé að fjara út. Hann tekur dæmi um að áður en plast­bátar komu var gríð­ar­legu púðri eytt í tré­báta og hugur sam­tíma­fólks okkar rekur sífellt meira frá tré­bátnum.

Hann harmar að hann verði gjarnan var við það að þegar hann fylgir eftir sinni bóka­út­gáfu víða og hittir þá fyrir fólk úr aka­demíu fái hann veður af því að sífellt sé verið að leggja niður gömul fög á borð við nor­ræn fræði, grísku o.þ.h. en með því tap­ast bæði gildi og við­mið auk þess sögu­lega við­miðs sem sagan veitir okkur.

Hann vitnar í Dostoev­sky:

„Ef guð er dauður er allt leyfi­legt“ og bætir svo við að ef sögu­leg vit­und hverfur get­urðu gert hvað sem er við mann­eskj­una.

Berg­sveinn lauk dokt­ors­prófi í nor­rænum fræðum í Bergen í Noregi árið 2008. Í dokt­ors­rit­gerð sinni fjall­aði hann um elstu drótt­kvæði sem til eru. Hann telur að þetta séu gríð­ar­lega merkar heim­ildir því það bendi allt til þess að þær séu raun­veru­lega frá heiðnum tíma. Í kvæð­unum kemur fram lífs­sýn for­feðra okkar og við erum eins og geim­verur gagn­vart henni.

Hann lítur svo á að þessi 500 síðna dokt­ors­rit­gerð sín sé það besta sem hann hefur skrifað en hún hafi alls verið lesin af þremur mann­eskjum, þ.e. þeim þremur sem sátu í nefnd­inni sem veitti honum gráðuna. Fyrir vikið komst hann að því að aka­dem­ían ætti ekki við sig. Hann komst að því að grúskið ætti við hann en stofn­unin ekki og því fór hann að skrifa bækur fyrir almenn­ing. Hann vildi heldur skrifa í eins­konar undr­andi stíl þar sem hann gat verið í senn fræði­maður og rit­höf­undur en ekki bara stífur fræði­maður.

Berg­sveinn ræðir svo um það hvernig vera hans í sveit­inni á ströndum og sjó­mennskan vestra hefur haft áhrif á per­sónu­sköpun hans fyrir sögur sínar. Hann hefur oft verið spurður hvort per­sónur hans eigi sér hlið­stæðu í raun­veru­leik­anum og svar hans við því að senni­lega séu margar per­sónur hans sam­settar úr 4-5 per­sónum. Hann segir að fólkið sem hann hafi hitt í sveit­inni sé oft bráð­greint en ekk­ert endi­lega búið að lesa of margar bækur. Það sé fólk sem þú getur ekki búið til, ekki frekar en blóm.

„Það er svo mikið af góðu fólki á Íslandi, það er auð­ur­inn í þessu landi. Það er stærsti auð­ur­inn þegar allt kemur til alls“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu