Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Uppgjör Frosta Logasonar: Skipulögð árás

Frosti Logason var gestur Reynis Trausta­sonar í þætt­inum Mann­lífið þar sem hann lýsir sinni hlið á þeim málum sem komu upp í hans fyrra sam­bandi sem seinna urðu til þess að hann varð fyrir því sem hann kallar slauf­un­ar­árás sem hófst þegar fyrr­ver­andi kærasta hans kom fram í þætti Eddu Falak þar sem hún sak­aði Frosta um að hafa hótað því að birta af sér myndir í kjöl­far sam­bands­slita þeirra fyrir rúmum ára­tug.

Frosti seg­ist hafa gert sér grein fyrir því að árásin á sig hafi verið skipu­lögð í þaula og við hvað væri að eiga þegar hann sá að á milli fjöl­margra Twitter færsla frá Eddu Falak, dag­inn sem við­talið við fyrr­ver­andi kær­ustu Frosta birt­ist, þar sem hún beinir spjótum sínum að Frosta hafi Edda birt skjá­skot af nafn­lausum sam­skiptum í skila­boða­formi sem lýsir nauðg­un­ar­sögu.

Frosti vill meina að nauðg­un­ar­sagan sé í fyrsta lagi fölsun og hins vegar hafi hún ætlað að fá þá sem fylgd­ust með henni á Twitter þann dag­inn til að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að Frosti væri nauð­gari í ofaná­lag.

„Þegar hún setur út þessa nauðg­un­ar­sögu þá fatt­aði ég einmitt að þessi mann­eskja sem var verið að lyfta upp til vegs og virð­ingar í sam­fé­lag­inu og það var bara korter í að hún fengi Fálka­orðu að þetta væri gríð­ar­lega óheið­ar­leg og óvönduð mann­eskja.“

„Það kemur bara þetta sem maður hefur heyrt í gegnum tíð­ina að nars­issistar geta náð langt, geta náð upp í topp fyr­ir­tækja o.s.fr. því þeir víla ekk­ert fyrir sér, svífast einskis og vaða áfram. Það er eins og það sem þessi mann­eskja hefur gert og kom í ljós að hún hafi komið fram í við­tölum og logið því blákalt að hún hafi starfað í fjár­fest­inga­bönkum og stóru lyfja­fyr­ir­tæki. Síðar þá sagði hún að þetta hafi verið mis­sögn og ýjaði að því að hún hafi verið í starfs­námi í gegnum skól­ann en það er heldur ekki rétt, hún hefur aldrei stigið fæti inn í Nova Nordisk.“

„Ég gerði mér bara grein fyrir því að eins og ég segi að það væri eitt­hvað veru­lega bogið þarna af því að eftir allar mínar sátta­til­raunir og útrétta sátt­ar­hönd, skil­yrð­is­lausa afsök­un­ar­beiðni og svo fram­vegis þá sé ég bara að það er eitt­hvað meira að ger­ast þarna heldur en bara eitt­hvað heið­ar­legt upp­gjör.“

„Þegar ég fer að kanna þetta út frá því að ég upp­lifði það að Edda Falak er mann­eskja sem hikar ekki við það að ljúga upp á mig nauðgun þá kemur upp úr kaf­inu að í for­sögu hennar eru ljót til­felli og þetta með lygarnar um starfs­vett­vang­inn í Kaup­manna­höfn er bara brota­brot af því. Inni á rit­stjórnum allra fjöl­miðla hafa allir heyrt þessar sögur, sem ég hef fengið stað­festar, að hún hefur hótað fyrr­ver­andi kærasta eftir að hún hafi haldið fram hjá honum að ef hann myndi segja frá fram­hjá­hald­inu myndi hún skrifa um það að hún hafi beitt sig ofbeldi og hún laug að einum fyrr­ver­andi kærasta sínum að hún væri með krabba­mein.“

„Það gróf­asta í þessu fannst mér þegar ég átt­aði mig á að hún hafi verið í öllum þessum fjöl­miðlum … þá sat hún fyrir framan hljóð­nem­ann og kamer­urnar og sagði að hún hafi orðið fyrir kyn­bundnu áreiti inni á vinnu­stöðum sem hún hafði aldrei starfað á. Hún sagði síðar þetta hafi verið mis­sögn, hún hafi verið þar í starfs­námi, en það er hauga­lygi líka.“

Upp­ljóstr­an­irnar hafa haft afleið­ingar fyrir Eddu Falak sem Frosti segir eðli­legt.

„Já, eðli­lega. Ef þú ætlar að starfa í fjöl­miðlum þá er eig­in­lega það eina sem þú mátt ekki gera það er að segja ósatt. Blaða­maður sem hefur verið stað­inn að því að vera ósann­sög­ull ítrekað og sagt ósatt bæði í fjöl­miðlum og ann­ars­staðar, hann á mjög erfitt upp­dráttar í þessu fagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar