Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Rima Apótek ódýrast, samkvæmt ASÍ

Borgar apó­tek og Lyfja­búrið neit­uðu þátt­töku.

Rima Apótek ódýrast, samkvæmt ASÍ
Garðs­apó­tek Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: gardsapotek.is

Í nýjum sam­an­burði verð­lags­eft­ir­liti ASÍ kemur fram að Rima Apótek er ódýrasta apó­tekið á land­inu. Til skoð­unar vru aðrar vörur en lyf eða þær vörur sem finna má frammi í versl­un­inni.

Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá ASÍ að Borgar apó­tek og Lyfja­búrið hafi hafnað þátt­töku í verð­lags­eft­ir­lit­inu, en á grund­velli þeirra ganga sem þar var aflað eru þau annað og þriðja dýrasta apó­tek Íslands.

Þó nokkru getur munað á verði eftir því hvaða vörur eru skoð­aðar að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ing­unni. Sem dæmi má nefna að Lyfjaval er að með­al­tali með 15 pró­sent dýr­ara en ódýr­asti kost­ur­inn, en Better You-fæðu­bót­ar­efni kosta að með­al­tali 35 pró­sent meira í Lyfjaval en þar sem þau eru ódýr­ust, sem er iðu­lega í Rima Apóteki. Hins vegar voru New Nordic-vörur að jafn­aði ódýrastar í Lyfja­vali. 

Borgar sig oft að bera saman verð

Ýmsar vörur sem seldar eru í apó­tekum má einnig finna í lág­vöru­verðs­versl­unum. Svo dæmi séu tekin: 

  • Nivea augn­hreinsir (x-gentle, 125ml) kost­aði 2.281kr í Borgar apó­teki en 479kr í Bónus, næstum fimm­faldur munur. Varan kost­aði einni krónu meira í Krónunni en Bónus. 
  • By My Beard skeggsjampó kost­aði 1.990kr í Íslands­Apó­teki en 349kr í Nettó, næstum sexfaldur munur. 
  • Gillette Cool Wave svita­lykt­areyðir kost­aði tæpar 1.400kr í flestum apó­tekum, en aðeins 598kr í Bónus og 599kr í Krónunni. 
  • Carefree flexi inn­legg kost­uðu 286kr í Bónus, 287kr í Krónunni, 288kr í Nettó og 585kr í Farmasíu.

Í ein­hverjum til­fellum geta apó­tek verið ódýr­ari en lág­vöru­verðs­versl­anir, þó að mun­ur­inn í þá átt sé oft­ast minni. Hér eru nokkur dæmi: 

  • Haf­kalktöflur, 60stk, kost­uðu 2.790kr í Krónunni (og kosta enn) en voru (og eru) ódýr­ari í öllum apó­tekum sem skoðuð voru, fyrir utan Lyfjaval. Ódýrastar voru töfl­urnar í Lyfja­veri á 2.180kr en dýrastar í Lyfja­vali á 2.855kr. 
  • Solaray Once Daily Active Man fjölvítamín kost­aði 3.061kr í Lyfja­veri og hefur verið á því verði síðan í haust, ef ekki lengur. Á megni könn­un­ar­tíma­bils­ins kost­aði vítamín­stauk­ur­inn 3.599kr í Krónunni, eða tæpum 18 pór­sentum meira, og hefur síðan hækkað í 3.799kr, sem er 24 pró­sentum dýr­ara en í Lyfja­veri. 
  • Veet Sensitive háreyð­ing­ar­krem með aloe vera kost­aði 2.339kr í Nettó en aðeins 1.560kr í Apóteki Vest­ur­lands í Ólafsvík. 
  • Better You 5mg járn­munn­úði kostar 2.021kr í Rima Apóteki en 2.399kr í Krónunni. Flestir aðrir BetterYou munn­úðar eru hins vegar ódýr­ari í Krónunni. 

Aug­lýs­ingar apó­teka gjarnan vill­andi 

Oft hvetja íslenskar versl­anir til kaupa með afsláttum. Ein­hverjar reglur gilda um þá afslætti, til dæmis segir á vef Neyt­enda­stofu að útsala megi „ekki standa lengur en í sex vikur því þá er útsölu­verðið orðið að venju­legu verði“. 

Samkvæmt ASÍ fæst ekki betur séð en að í ein­hverjum til­fellum en að lengri tími hafi liðið frá verð­lækkun í ein­hverjum apó­tekum. Til dæmis: 

  • New Nordic Apple Cider hlaup í vef­verslun Lyfja­vals var selt á 2.621kr til 3. febr­úar. Svo var það selt á „-20%“, eða 2.097kr, til 4. apríl, eða á hálfa níundu viku. Samhliða því var bætt við „Nýtt“ merk­ingu á vör­una sem er þar enn. 
  • Siglu­fjarð­ar­apó­tek hefur haft CeraVe Renewing fótakrem á 20% afslætti frá því í jan­úar síð­ast­liðnum hið minnsta, en þá hóf verð­lags­eft­ir­litið skoðun á vef­verslun apó­teks­ins. 
  • Rima Apótek hefur selt Nutri­lenk Active, 30 hylki, og Nutri­Lenk Gel, 100ml, á 25% afslætti frá því í jan­úar síð­ast­liðnum hið minnsta, en þá hóf verð­lags­eft­ir­litið skoðun á vef­verslun apó­teks­ins. 

Dæmin eru fleiri.  

Verðlag í Apóteki Vest­ur­lands ekki alltaf sam­stíga 

Verðlag á Apóteki Vest­ur­lands virð­ist ekki hafa verið alfarið hið sama í úti­bú­unum þremur í Borg­ar­nesi, Akranesi og Ólafsvík, að því er fram kemur í frétttil­kynn­ingu ASÍ. Til að mynda var Better You D-Lúx 1000iu 15ml munn­sprey selt á 1.493kr í Borg­ar­nesi þann 13. mars en á 2.045kr í Ólafsvík. Better You Mag­nes­ium Relax flögur kost­uðu 2.413kr í Ólafsvík en 1.530kr í Borg­ar­nesi. Í aðra rönd­ina kost­aði Eylíf Smoother Skin & Hair 3.419kr í Ólafsvík en 4.850kr í Borg­ar­nesi. Haf­kraftur kost­aði 2.650kr í Ólafsvík en 3.543kr í Borg­ar­nesi. 

Af 148 vörum sem bornar voru saman í Borg­ar­nesi og Ólafsvík þann 13. mars voru 76 dýr­ari í Borg­ar­nesi, 33 dýr­ari í Ólafsvík, og 39 á sama verði. Að með­al­tali var versl­unin í Borg­ar­nesi 1,2 pró­sentum dýr­ari en í Ólafsvík. 

Hvaða aðferða­fræði not­ast ASÍ við? 

Bornar voru saman vörur sem finna mátti í minnst níu apó­tekum. Aðeins var farið í apó­tek sem eru án aðgangs­gjalds. Sam­an­burð­ur­inn fór fram frá miðjum febr­úar til miðs mars. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Peningar

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
  • Peningar

    Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega