Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hagnast um 70% meira

Á sama tíma og matur og drykkj­ar­vara hækka umfram almenna verð­bólgu ná Hagar að auka hagnað sinn veru­lega.

Hagnast um 70% meira
For­stjóri Haga Finnur Oddsson hefur efast um að mat­ar­verð sé hátt á Íslandi. Hann boðar enn meiri hagnað á næsta ári. Mynd: Hagar

Félagið Hagar, sem rekur Bónus, Hagkaup og fleiri versl­anir, jók hagnað sinn veru­lega í fyrra. Hagn­að­ur­inn fer hratt hækk­andi. Á síð­asta árs­fjórð­ungi í fyrra einum og sér jókst hagn­aður um 70%, úr 1,2 millj­örðum króna í 3,1 millj­arða króna fyrir skatta.

Hagnaður af starf­semi Haga jókst um 18,7% frá árinu 2023 til 2024, fyrir utan mats­breyt­ingar sem auka hagn­að­inn langt umfram það. Framlegð hækk­aði um 23% í 41 millj­arð króna. Í heild­ina var hagn­aður Haga í fyrra eftir skatta 7 millj­arðar króna, sam­kvæmt óend­ur­skoð­uðu upp­gjöri.

Tvö­földun hagn­að­ar­hlut­falls

Á alla helstu mæli­kvarða eru Hagar að styrkja stöðu sína af við­skiptum sínum við neyt­endur. Arðsemi eigin fjár fer úr 18% í rúm 24%, en var aðeins 10% árið 2020. Hagn­að­ar­hlut­fall er 3,9%, hærra en síð­ustu fimm ár og næstum tvö­falt meira en árið 2020. Þannig segir að und­an­farin ár hafi verið „góð veltu­aukn­ing, drifin áfram af auknum umsvifum í rekstri og áhrifum verð­bólgu“. Þá er fram­legð­ar­hlut­fall að aukast veru­lega og fer úr 19,1% árið 2022 í tæp 23% í fyrra.

Slæmu frétt­irnar eru þær að verð­bólga hækkar vegna þess að verð á mat­vörum rís umfram almenna verð­lags­þróun.

Við­skipta­vinir borga meira en fá færri „stykki“

Í stjórn­enda­upp­gjöri Haga kemur fram að við­skipta­vinir borga meira en kaupa hins vegar minna, þar sem „seldum stykkjum“ fækkar um 2,6%. Þannig greiddu við­skipta­vinir Bónus 3,1% meira til versl­an­anna, en þó er „lít­ils­háttar fækkun stykkja sem rata í hverja körfu“.

Í stjórn­enda­kynn­ing­unni segir um Bónus að „rekstur árs­ins gekk vel, þar sem við­skipta­vinum fjölg­aði og afkoma styrkt­ist umtals­vert frá fyrra ári – góður með­byr inn í nýtt ár“.

Stjórn­endur Haga lýsa mik­illi ánægju með árang­ur­inn. „Arðsemi eig­in­fjár er og hefur verið vel yfir mark­miðum stjórnar og upp­safn­aður hagn­aður á hlut, án ein­skipt­is­á­hrifa frá SMS, hefur auk­ist um 21% á síð­ustu 12 mán­uðum og nán­ast þre­fald­ast á fjórum árum,“ segir í ávarpi Finns Odds­sonar for­stjóra.

Verð á hluta­bréfum Haga, leið­rétt fyrir arð­greiðslu, hækk­aði um 38% á árinu. Er það með allra mestri hækkun félaga í Kaup­höll­inni, en annar dag­vörurisi, Festi, sem rekur meðal ann­ars Krónuna, hefur hækkað mest.

Matur og drykkur hækka verð­bólg­una

Síðustu tólf mán­uði hafa matur og drykkj­ar­vara hækkað í verði um 4,9%, sem er langt umfram 2,5% verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands og vel umfram almennar verð­lags­hækk­anir, sem eru 3,9%. Verð­hækk­anir og verð­bólga hafa þau áhrif að vextir af hús­næð­is­lánum hald­ast lengur hærri.

Árið 2023 efað­ist Finnur Oddsson for­stjóri um að matur væri raun­veru­lega dýr á Íslandi, enda hefði verð­bólga verið meiri ann­ars staðar í Evrópu. Það hefur nú breyst og er verð­bólga á evru­svæð­inu 2,7%.

Hagar gera út á öfl­uga sjálf­bærni­stefnu.

„Öll fyr­ir­tæki Haga hafa það mark­mið að veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu selja gæða vörur á sann­gjörnu verði og hafa um leið eins jákvæð áhrif á umhverfi og sam­fé­lag og mögu­legt er,“ segir á vef félags­ins.

Þá segir í stjórn­enda­upp­gjör­inu: „Hagar leggja áherslu á sjálf­bærni í allri sinni starf­semi og taka virkan þátt í sam­fé­lags­legum verk­efnum. Starfs­fólk og stjórn­endur Haga trúa því að það sé ekk­ert „plan B“ og nálg­umst við því öll verk­efni með það fyrir augum að þau hafi jákvæð áhrif á umhverfi og sam­fé­lag.“

Hagar hafa lækkað losun koltví­oxíðs um 6,9% á tveimur árum og aukið hlut­fall end­ur­heimts úrgangs úr 55% í 94% frá 2019, auk þess sem ánægja starfs­fólks er sögð hafa auk­ist.

Uppgjör árs­ins lit­ast að hluta af kaupum á SMS í Færeyjum, sem rekur þar Bón­usversl­anir og veit­inga­staði.

Sam­herj­a­fjöl­skyldan helsti einka­eig­andi

Líf­eyr­is­sjóðir eiga ríf­legan meiri­hluta í Högum, en stærsti einka­fjár­festir­inn er Kald­bakur, félag tengt Samherja, sem er í fjórð­ungseigu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, en aðrir helstu eig­endur eru fyrr­ver­andi eig­in­kona Þor­steins og afkom­endur Krist­jáns Vil­helms­sonar, ann­ars stofn­anda Samherja.

Hagar gera ráð fyrir að hagn­aður fyrir skatta á yfir­stand­andi ári verði 16 til 16,5 millj­arðar króna, eða allt að 1,8 millj­örðum króna meiri en í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Peningar

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
  • Peningar

    Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega