Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þúsundir með ótilgreinda búsetu í þjóðskrá

Fólk getur almennt ekki haft heim­il­is­fangt sitt dulið

Þúsundir með ótilgreinda búsetu í þjóðskrá
Þjóðskrá Íslands nefnir þrjár ástæður 88 beiðnum var hafnað á 12 mán­aða tíma­bili Mynd: Þjóðaskrá Íslands

Alls voru 6049 ein­stak­lingar skráðir með ótil­greinda búsetu í þjóð­skrá þann 1. apríl sam­kvæmt Þjóðskrá Íslands en kom þetta fram í svari við fyr­ir­spurn sem Mannlíf sendi á stofn­un­ina.

„Ein­stak­lingar sem búsettir eru í atvinnu­hús­næði eða hús­næði sem ekki er skráð sem íbúð­ar­hús­næði eru jafnan skráðir með ótil­greint lög­heim­ili í því sveit­ar­fé­lagi sem búsetan er,“ segir Þjóðskrá í svari sínu um málið. Þá segir að þegar ein­stak­lingur óskar eftir að vera skráður með ótil­greint lög­heim­ili í til­teknu sveit­ar­fé­lagi þurfi ávallt að leggja fram full­nægj­andi gögn sem stað­festa raun­bú­setu í hús­næði sem ekki upp­fyllir skil­yrði laga til að skrá lög­heim­ili í.

Þrjár aðalástæður

Algeng­asta ástæða fyrir ótil­greindri skrán­ingu segir Þjóðskrá að sé vegna til­kynn­ingar þriðja aðila um ranga skrán­ingu lög­heim­ilis.

„Slíkar til­kynn­ingar koma yfir­leitt frá þing­lýstum eig­anda fast­eignar sem upp­lýsir Þjóðskrá Íslands um ein­stak­linga sem hafa ekki fasta búsetu í hús­næði í þeirra eigu, en eru engu að síður með skráð lög­heim­ili þar. Samkvæmt 3. mgr. 12. gr. lög­heim­il­is­laga bera þing­lýstir eig­endur fast­eigna skyldu til að upp­lýsa Þjóðskrá Íslands um ein­stak­linga sem eru rang­lega skráðir með lög­heim­ili í þeirra fast­eign. Máls­með­ferð í þannig málum hefst ávallt á að upp­lýsa máls­að­ila og honum gefið tæki­færi til að bregð­ast við og upp­lýsa Þjóðskrá um rétt heim­il­is­fang. Ef ein­stak­lingur bregst ekki við erindi Þjóð­skrár Íslands verður hann skráður með ótil­greint lög­heim­ili í sama sveit­ar­fé­lagi og síð­asta skráða lög­heim­ili eða erlendis ef búseta er talin vera erlendis.“

Það sé þó ekki eina ástæðan sam­kvæmt Þjóðskrá. „Ein­stak­lingar sem eru búsettir í hús­næði sem ekki er heim­ilt að skrá lög­heim­ili í geta óskað eftir að vera skráðir með ótil­greint lög­heim­ili í búsetu sveit­ar­fé­lagi. Nauð­syn­legt er að stað­fest­ing á búsetu sé lögð fram til Þjóð­skrár Íslands til að hægt sé að sam­þykkja slíka beiðni. Algeng­ast er að í slíkum til­vikum sé um búsetu í atvinnu­hús­næði eða frí­stunda­byggð að ræða en ein­stak­lingar án hús­næðis falla einnig undir þennan flokk.“

Einnig bendir Þjóðskrá á nýskrán­ingu erlendra rík­is­borg­ara á þjóð­skrá en Þjóðskrá Íslands er ekki heim­ilt að tefja umsókn um skrán­ingu lög­heim­ilis á Íslandi og úthlutun kenni­tölu ef öll skil­yrði hafa verið upp­fyllt. „Umsækj­endur í þessum hópi eru þá skráðir með ótil­greint lög­heim­ili ef búseta er ekki í íbúð­ar­hús­næði eða þeir hafa ekki fundið var­an­legt íbúð­ar­hús­næði þegar umsókn er unn­inn.“

Lögreglan þarf að staðfesta

Hversu margir hafa sótt um slíka skrán­ingu á und­an­förnum 12 mán­uðum, hversu mörgum hefur verið hafnað og hversu margar beiðnir hafa verið sam­þykktar á þeim 12 mán­uðum?

„Á tíma­bil­inu 1. apríl 2024 til 1. apríl 2025 voru 420 beiðnir um skrán­ingu á ótil­greindu lög­heim­ili sam­þykktar og 88 beiðnum á sama tíma­bili var hafnað.“

Þá segir Þjóðskrá að ein­stak­lingar geti óskað eftir því að lög­heim­ili þeirra sé dulið í þjóð­skrá en það er ein­göngu hægt ef stað­fest­ing frá lög­reglu­stjóra liggur fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti