Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Pussy Riot og Páll Óskar koma fram á tónlistarhátíð til stuðnings flóttafólki

„Opið hug­ar­far – ekki lokuð landa­mæri!“

Pussy Riot og Páll Óskar koma fram á tónlistarhátíð til stuðnings flóttafólki
Diana Burkot Pussy Riot koma fram á hátíð­inni. Mynd: Aðsend

No Borders Iceland bjóða upp á tón­list­ar­veislu í júlí til stuðn­ings flótta­fólki. Mörg af stærstu nöfnum í íslenskri tón­list stíga á svið auk aðgerða­sinna­hóp­ur­inn rúss­neski Pussy Riot sem þekktur er um heim allan.

Þann 11. júlí blæs No Borders Iceland til hátíðar sem kall­ast Hátíð gegn landa­mærum, sem fram fer í Iðnó. Meðal tón­list­ar­fólks sem fram koma á hátíð­inni má nefna Pál Óskar Hjálmtýrs­son, Pussy Riot, Inspector Spacetime, Alex­ander Jarl og sig­ur­veg­arar Mús­íktil­rauna í ár, Geð­brigði. Þá þeytir Dj. Óli Dóri skífum.

Í frétta­til­kynn­ingu frá No Borders Iceland segir meðal ann­ars: „Markmið hátíð­ar­innar er að skapa vit­und­ar­vakn­ingu um rétt­inda­bar­áttu fólks á flótta og þeirri erf­iðu stöðu sem það býr við, bæði á Íslandi og um allan heim. Fólk á flótta eru mann­eskjur með rödd, líf og rétt til ferða­frelsis og öryggis.“

Miðasala hefst á morgun, 13. maí klukkan 10:00 en eins og segir í frétta­til­kynn­ing­unni er ljóst að færri kom­ast að vilja. „Þú vilt ekki missa af þessu magn­aða kvöldi, þar sem tón­list og aktí­vismi mæt­ast í dúndr­andi og ógleym­an­legri stemn­ingu.“

Páll Óskar og Diana Burkot úr Pussy Riot sendu bréf með frétta­til­kynn­ing­unni sem má lesa hér að neðan:

Bréf Páls Óskars:

Við erum öll komin af sömu öpunum,

úr sömu sköp­unum á móður jörð.

Í útlöndum, þeir elska alveg eins og þú,

af því þeir finna það nákvæm­lega sama.

Hvítt eða svart, um það er engin leið að fást,

því hrein og heil­brigð ást

sér engan mun.

Þú veist það vel að ástin spyr aldrei um lit,

þegar við finnum það nákvæm­lega sama.

Te quiero, meine Liebe, my love

Je t´aime, mi amora

Þú finnur að ástin

Er international.

Engin mann­eskja er ólög­leg.

Páll Óskar

Bréf Diönu Burkot:

Það er mér sannur heiður að fá að taka þátt í við­burði No Borders Iceland. Sér­stak­lega í ljósi þess að mál­efnið er mér hjart­ans mál þar sem ég er núna póli­tísk flótta­kona og inn­flytj­andi.

Ég get ekki snúið aftur til heima­lands míns þar sem saka­mál var höfðað gegn mér á grund­velli 207.3 greinar rúss­neskra hegn­inga­laga – „Opinber dreif­ing rangra upp­lýs­inga um starf­semi rúss­neska hers­ins“ – sem getur varðað allt að 15 ára fang­elsi.

Ég hef búið á Íslandi í um það bil þrjú ár – unnið, stundað nám, greitt skatta – og svo varð ég allt í einu ást­fangin af vík­ingi :)

Fyrst um sinn gat ég varla áttað mig á því hvernig far­síma­þjón­ustan eða almenn­ings­sam­göngur virk­uðu í Reykja­vík – strætó er mér ennþá hulin ráð­gáta :)

Það sem veldur mér þó þungum áhyggjum er aukin andúð gagn­vart inn­flytj­endum og flótta­fólki. Áróður og popúl­ísk umfjöllun af hálfu íhalds­samra og öfga­hægri stjórn­mála­sam­taka í land­inu.

Til dæmis sýna opin­berar tölur að glæpa­tíðni meðal inn­flytj­enda er mjög lág, en almenn­ingi er sífellt talið í trú um að flótta­fólk og inn­flytj­endur séu rót vanda­mála lands­ins – þegar hið rétta er að við tökum í raun oft að okkur erf­ið­ustu og lág­laun­uð­ustu störfin.

Ég tel að með þessum við­burði fáum við öll tæki­færi til að læra eitt­hvað nýtt hvert um annað – og það er virki­lega hvetj­andi. Skila­boðin eru skýr: Opið hug­ar­far – ekki lokuð landa­mæri!

- Diana Burkot, með­limur Pussy Riot

Í frétta­til­kynnig­unni er sagt frá því hvað kveikti neist­ann um að koma No Borders-hreyf­ing­unni í gang hér á landi:

„Nú eru tæp 17 ár liðin frá því að síðan hópur aðgerða­sinna hljóp út á flug­braut­ina í Keflavík til að stöðva brott­vísun flótta­manns­ins Paul Ramses árið 2008. Það var neist­inn sem kom No Borders-hreyf­ing­unni af
stað – og bar­áttan er langt frá því að vera búin.

Vertu með þann 11. júlí, þegar við komum saman til að fagna frels­inu sem felst í virku and­ófi, til að minna á að bar­áttan heldur áfram og til að fræða fólk um aðstæður flótta­fólks.

Lengi lifi bar­átta þeirra villtu og frjálsu!
Engin mann­eskja er ólög­leg!

Hægt er að nálg­ast frek­ari upp­lýs­ingar um hátíð­ina á sam­fé­lags­miðlum No Borders Iceland (Facebook  og Instagram).“

Hér má svo sjá dag­skrá hátíð­ar­innar:

DAGSKRÁ:

19:00 – Gróa
19:40 – Kusk & Óviti
20:20 – Geð­brigði
21:00 – Flesh Machine
21:40 – Izleifur
22:20 – Inspector Spacetime
23:00 – Alex­ander Jarl
23:40 – Páll Óskar
00:20 – Pussy Riot
01:00 – DJ Óli Dóri

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar