Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimildarmynd um Julian Assange frumsýnd á Cannes

„Við erum að stefna fram af hengiflugi ómennsku“

Heimildarmynd um Julian Assange frumsýnd á Cannes
Cannes í gær. Kristinn með vinum sínum, Assange-hjón­unum. Mynd: AFP

Kristinn Hrafns­son gekk á rauða dregl­inum á Cannes-kvik­mynda­há­tíð­inni í gær, í fylgd vinar síns og sam­starfs­manns, Julian Assange og eig­in­konu hans, Stellu. Tilefnið var frum­sýn­ing heim­ild­ar­mynd­ar­innar Six Dollar Man sem fjallar um 15 ára bar­áttu Julian Assange og Wikileaks við yfir­völd í Bret­landi og Banda­ríkj­unum.

Kristinn skrif­aði færslu um gær­kvöldið og segir það sjald­gæft að heim­ild­ar­mynd sé boðið á Cannes.

„Rauði dreg­ill­inn í Cannes er frægur fyrir að vera und­ir­lag fólks sem hrær­ist í sýnd­ar­heimi sögu­gerðar í hreyfi­myndum, þar sem oftar en ekki er ýtt undir glamúr og glans, form fremur en inni­hald. Það er sjaldan sem heim­ild­ar­myndum er boðið á kvik­mynda­há­tíð­ina í Cannes að slást í hóp skáld­aðra afurða á hvíta tjald­inu. Á rauða dregl­inum eru karl­menn skikk­aðir til að mæta í form­legum bún­ingi en kon­urnar fá flesta ljós­blossa frá mynda­töku­mönn­unum og oftar en ekki er meira flass, því efn­is­minni sem umbún­að­ur­inn er.“

Segir Kristinn það hafa verið súra­el­ískt að ganga á rauða dregl­inum í gær­kvöldi:

„Það var súr­eal­ískt að ganga þennan rauða dregi í gær­kvöld við frum­sýn­ingu á heim­ild­ar­mynd­inni Six Billion Dollar Man eftir leik­stjór­ann Eugene Jarecki en hún reynir að fanga 15 ára slag Julian Assange og WikiLeaks gegn ægi­valdi afla sem reyndu allt til að kæfa sann­leik­ann og slátra sendi­boð­anum. Það tóks ekki, vegna þess að spyrnt var við fótum, millj­ónir manna stigu upp til stuðn­ings mann­inum sem var lát­inn rotna frels­is­sviptur í á annan ára­tug.“

Þá segir Kristinn frá því að Julian hafi í mynda­töku í fyrra­dag ákveðið að minn­ast drep­inna ung­barna á Gaza með því að klæð­ast bol með nöfnum þús­unda barna sem Ísra­els­her hefur drepið. Þá hafi eig­in­kona Julians, Stella, mætt á rauða dreg­il­inn í kjól frá Vivienne Westwood heit­inni með ein­föld en skýr skila­boð fasta á kjólnum.

Julian og Stella Assange.Stella hengdi sterk skila­boð á kjól­inn.

„Mitt í fögn­uð­inum yfir frelsi Julians og þess­ari frum­sýn­ingu varð þó að minn­ast þess að órétt­lætið í heim­inum hefur ekk­ert minnkað, þvert á móti erum við að stefna framaf hengiflugi ómennsku, grimmdar og sið­rofs. Í fyrra­dag mætti Julian í mynda­töku í bol með nöfnum þús­unda barna undir fimm ára sem Ísra­els­menn hafa slátrað á Gaza á einu og hálfu ári og áletr­un­inni „Stop Israel“. Í gær­kvöld mætti Stella vin­kona mín, eig­in­kona Julians ,á rauða dreg­il­inn í kjól frá Vivienne Westwood sem studdi Julian allt fram í and­látið en í anda pönk­drottn­ing­ar­innar var
áfest á kjól­inn mynd af henni og skila­boð hennar til heims­ins „Stop kill­ing“.“

Kristinn segir næst frá því að heim­ild­ar­mynd­inni hafi verið vel tekið á kvik­mynda­há­tíð­inni og að hann hafi verið hissa á góðum dómi Guardian sem dag­blaðið beri stóran hluta ábyrgð­ar­innar á því hvernig farið var með Julian.

„Heim­ild­ar­myndin sjálf reynir að skila stórri sögu sem er vita­skuld ekki auð­vellt enda ekki smá­saga heldur margar þykkar bækur. Henni var tekið vel á frum­sýn­ing­unni og nú þegar hafa birtst jákvæðir dómar. Áhuga­vert fannst mér að Guardian gaf henni 4 stjörnur af 5 svona í ljósi þess að dag­blaðið og sér­stak­lega fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­rit­stjóri þess, bera drjúgan hlut af ábyrgð­inni á ömur­legum köflum í örlaga­sögu Julians og WL og um það er fjallað í mynd­inni.“

Að end­ingu segir Kristinn að stig­mögnun sé í gangi í „stríð­inu gegn sann­leik­anum“ og það sé okkar að stöðva þá vit­firr­inu sem í gangi er.

„En stríðið gegn sann­leik­anum er í stig­mögnun og stríðið gegn þunnu lagi sið­menn­ing­ar­innar heldur áfram með ógeðs­legum drápum. 38 myrtir á Gaza í morgun. Tveir ísra­elskir diplómatar myrtir í Banda­ríkjnum í gær­kvöld. Það er okkar mál að stöðva þessa vit­firr­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar