Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sonur Önnu hrekkti tengdaföður sinn á Tenerife

„Ég er ánægð með dreng­inn, loks­ins far­inn að sýna af sér eðli­lega hegðun ætt­ar­innar þótt kom­inn sé hátt á fimm­tugs­ald­ur­inn.“

Sonur Önnu hrekkti tengdaföður sinn á Tenerife
Anna Krist­jáns­dóttir Sonur Önnu er far­inn að sverja sig í ætt­ina.

Anna Krist­jáns­dóttir segir son sinn vera orð­inn lygn­ari er hún í nýrri dag­bók­ar­færslu á Facebook.

Húmorist­inn og vél­stjór­inn Anna Krist­jáns­dóttir segir frá skemmti­legum hrekk sem sonur hennar gerði tengda­föður sínum á Tenerife í gær. Segir hún að sonur hennar sé orð­inn álíka lyg­inn og sumir ætt­ingjar hans.

„Dagur 2126 – Ég heppin.

Ég nefndi hér um dag­inn að sonur minn væri far­inn að sverja sig í ætt­ina og orð­inn jafn­lýg­inn og sumir ætt­ingjar hans þó að mér und­an­skil­inni sem hefi ávallt sann­leik­ann í hávegum, alla­vega þegar það hentar mér.“

Segir Anna að sonur hennar sé nú í heim­sókn á Tenerife auk barna sinna og tengda­for­eldrum. Sonurinn reyndi hvað hann gat til að fá móður sína til að koma með fjöl­skyld­unni út að borða, án árang­urs, þar sem Anna er lítið fyrir það að ferð­ast mikið til þess eins að borða.

„Umræddur sonur minn sem staddur er hér á eyj­unni ásamt þremur barna sinna og tengda­for­eldrum fór fram á það að ég borð­aði með þeim á Hvítu myll­unni, veit­inga­stað úti í Adeje. Ég sá öll tor­merki þess að mæta, enda nenni ég yfir­leitt ekki að þvæl­ast yfir í aðra hreppa til þess eins og borða kvöld­mat og færð­ist undan mæt­ingu og að lokum héldu þau öll á veit­inga­stað­inn án mín.“

Og þá kemur að hrekknum:

„Að sögn ein­hverra við­staddra laum­aði sonur minn því að yfir­þjón­inum að einn í hópnum, nánar til­tekið tengda­fað­ir­inn, ætti afmæli. Svo komu þjón­arnir og sungu fyrir „afmæl­is­barnið“ og „afmæl­is­barnið“ tók undir. Svo var honum færð afmæliskaka og þá fór að kárna gam­anið því tengdapabb­inn vildi ekki kann­ast við að eiga afmæli, en allt fór vel að lokum og sonur minn neydd­ist að lokum til að játa að hann hefði skrökvað til um afmæli tengda­föð­urs­ins, en sem betur fer er tengdapabb­inn ljúf­lingur hinn mesti og tók lýgi tengda­son­ar­ins með jafn­að­ar­geði.“

Anna er þakk­lát fyrir að hafa neitað að mæta í mat­inn þar sem hún hefði þá lík­lega orðið fyrir hrekknum.

„Ég þakka fyrir að hafa ekki mætt á stað­inn því þá hefði dreng­ur­inn logið upp á mig afmæli eða ein­hverju enn verru, en á sama tíma sat ég blá­edrú heima við að afsaka pistil dags­ins á undan.“

Að lokum seg­ist Anna vera ánægð með að son­ur­inn sé far­inn að sverja sig í ætt­ina hvað lyg­ina varðar:

„Ég hefi sagt það áður að dreng­ur­inn er orð­inn lýgn­ari en ég og er þá mikið sagt, senni­lega far­inn að líkj­ast bróður mínum í skrök­sögum svo ekki sé talað um föður minn og föð­ur­bróður sem báðir þóttu miklir sagna­menn. Ég er ánægð með dreng­inn, loks­ins far­inn að sýna af sér eðli­lega hegðun ætt­ar­innar þótt kom­inn sé hátt á fimm­tugs­ald­ur­inn. Um leið er ég heppin að tengda­faðir hans kann að meta svona grín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una