Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Leigir út 56 stúdíóíbúðir og hagnast vel: „Davíð Oddsson úthlutaði mér lóð“

Viðar Guðjohn­sen er athafna­maður, fyrr­ver­andi fram­bjóð­andi og á fast­eign í Mörkinni þar sem hann leigir út stúd­íó­í­búðir og hefur hagn­ast vel

Leigir út 56 stúdíóíbúðir og hagnast vel: „Davíð Oddsson úthlutaði mér lóð“
Viðar Guðjohn­sen er athafna­maður Hefur átt fast­eign í ára­tugi í Mörkinni er hann leigir út með góðum hagn­aði Mynd: X-D

Viðar Guðjohn­sen, athafna­maður og fyrr­ver­andi fram­bjóð­andi, á fast­eign í Mörkinni þar sem hann leigir út stúd­íó­í­búðir. Eignina hefur hann átt í yfir þrjá ára­tugi og hefur hagn­ast vel. Hann ræðir um leigu­mark­að­inn og her­bergja­hótel í við­tali við blaða­mann­inn Inga Frey Vil­hjálms­son í frétta­skýr­inga­þætt­inum Þetta helst.

Viðar Guðjohn­sen var ekki þekktur er hann bauð sig fram í leið­toga­próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fyrir sjö árum síðan.

Hann hefur verið ansi hreint stór­tækur leigu­sali lít­illa íbúða núna í meira en þrjá­tíu ár:

„Ég hafði sam­band við Davíð Oddsson sem úthlut­aði mér lóð. Davíð Oddsson borg­ar­stjóri. Af því ég ætl­aði að leigja efna­m­inna fólki. Hann hafði trú á mér og ég hafði trú á honum,“ segir Viðar sem á og rekur fast­eign í Mörkinni í Reykja­vík. Þar er hann með heilar 56 leigu­ein­ingar: Stúd­íó­í­búðir og líka „skonsur“ eins og hann orðar það sjálfur, í útleigu.

Mikil umræða hefur verið varð­andi útleigu á litlum íbúðum og her­bergjum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sem og aðstæður erlends verka­fólks á leigu­mark­aði eftir mann­skæðan elds­voða á Hjarð­ar­haga fyrir stuttu síðan.

Í ein­hverjum til­fellum er búið að breyta hús­næð­inu án þess að afla til­skil­inna leyfa, þannig að bruna­vörnum er ábóta­vant í slíku hús­næði, eins og slökki­vliðs­stjór­inn í Reykja­vík, Jón Viðar Matth­í­as­son, benti meðal ann­ars á fyrir skömmu og hefur áður gert.

Formaður leigj­enda­sam­tak­anna, Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, hefur kallað eftir að settar verði ein­hverjar skorður á eign­ar­hald til­tek­inna ein­stak­linga og eign­ar­halds­fé­laga á íbúðum.

Þá aftur að Viðari.

Í árs­reikn­ingi fyr­ir­tækis hans er heldur utan um fast­eign­ina í Mörkinni og útleigu hennar, kemur það fram að félagið var með rúm­lega 90 millj­óna króna tekjur árið 2023 og hagn­að­ur­inn var ríf­lega 33 millj­ónir. Fyr­ir­tækið var með 79 millj­óna króna tekjur árið 2022, rúm­lega 30 millj­óna hagnað það árið.

Kemur fram í máli Inga Freys að fast­eigna­matið á þessu 56 leigu­ein­inga húsi Viðars er 880 millj­ónir króna. Bruna­bóta­matið er 1260 millj­ónir. Skuldir félags Viðars á móti þessum eignum eru tæp­lega 53 millj­ónir króna og því óhætt að segja að leigu­fyr­ir­tæki Viðars sé afskap­lega vel statt fjár­hags­lega.

Viðar segir að hann okri ekki á leigu­verð­inu, en að hann hagn­ist engu að síður ágæt­lega og segir að sumir sem leigi hjá honum hafi búið lengi í Mörkinni, jafn­vel í ein­hver 30 ár:

„Já, já. Ég hagn­ast en hagn­að­ur­inn fer í að byggja nýtt hús­næði. Ég er á bíl sem er 25 ára gam­all, þú sérð hvernig útgang­ur­inn á mér er, ég passa upp á hluti, mér líður ekk­ert illa þó að ég sé ekki á fancy bíl, ég spara úti um allt. Ég er ekk­ert að gera út af því að ég vilji gefa pen­inga. Hvað hef ég á móti? Ég hef leigu­taka sem mér líkar vel og þykir vænt um“ segir Viðar sem vill meina að búseta Íslend­inga og erlendra rík­is­borg­ara í her­bergja­hót­elum sé ekki vanda­mál á leigu­mark­aði.

Viðar segir að þessi þróun sé svar við miklum inn­flutn­ingi fólks frá öðrum löndum til Íslands:

„Þetta er í raun inn­rás; Þetta er bara stríð sem við erum komin í,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Peningar

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
  • Peningar

    Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega