Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Heiftarleg árás“ á Ásthildi Lóu

Stjórn­sýslu­fræð­ingur segir að logið hafi verið upp á Ásthildi Lóu í umfjöll­unum.

„Heiftarleg árás“ á Ásthildi Lóu
Stjórn­sýslu­fræð­ingur Haukur starfar við Reykja­vík­ur­Aka­dem­í­una og sinnir rann­sóknum á sviði félags­vís­inda. Mynd: Haukur Arnþórsson

„Ég hef ekki áður séð eins skipu­lega og heift­ar­lega póli­tíska árás fram­kvæmda á Íslandi og þá sem staðið hefur yfir frá fimmtu­dags­kvöld­inu 20. mars 2025 og bein­ist að Ásthildi Lóu,“ segir stjórn­sýslu­fræð­ing­ur­inn Haukur Arn­þórs­son um mál og afsögn mennta- og barna­mála­ráð­herra. Hann kemst að þeirri nið­ur­stöðu að frétta­menn hafi logið upp á Ásthildi Lóu Þórs­dóttur.

„Í ljós hefur komið að flestar ásak­an­irnar sem lagt var af stað með voru álygar,“ segir Haukur. Hann tekur dæmi sem hann telur áfell­is­dóm yfir störfum frétta­manna.

Umfjöllun um Ásthildi Lóu var fyrst birt hjá Rík­is­út­varp­inu á fimmtu­dags­kvöldi. Í henni voru lyk­il­at­riðin að Ást­hildur Lóa hefði leitt ung­linga­starf, sem pilt­ur­inn tók þátt í, með til­heyr­andi aðstöðumun. Hún var 22 ára og hann 15 ára þegar sam­bandið hófst, að hennar sögn vegna ágengni pilts­ins. Sömu­leiðis að hún hefði tálmað umgengni, sem hún hefur hafnað sjálf með til­vísun í upp­haf­legt áhuga­leysi barns­föður. „Hún kynnt­ist pilt­inum þegar hún leiddi ung­linga­starf í trú­ar­söfn­uði í Kópavogi, þangað sem hann leit­aði vegna erf­iðra aðstæðna heima­fyrir. Barns­faðir Ást­hildar Lóu segir hana hafa tálmað umgengni hans við son þeirra en á sama tíma krafið hann um með­lag í 18 ár,“ sagði í umfjöllun RÚV, sem leiddi til afsagnar Ást­hildar Lóu.

„Ég er ekki dóm­ari í þeirra sök en myndi byrja á full­yrð­ing­unni um að Ást­hildur Lóa hefði verið leið­bein­andi pilts­ins sem hún svaf hjá eða á ein­hvern hátt borið ábyrgð á vel­ferð hans,“ segir Haukur. „Þessi full­yrð­ing um ábyrgð hennar kom mál­inu af stað – hljóm­aði illa bæði hér heima og erlendis – en var hel­ber upp­spuni. Þau höfðu jafna stöðu innan safn­að­ar­ins og bæði höfðu þau kyn­ferð­is­legt sjálf­ræði þegar þetta gerð­ist og gátu sofið saman eins mikið og þau vildu. Og þetta leið­rétta frétta­menn­irnir ekki þótt þeir hafi skyldur til þess. Unga fólkið mátti ein­fald­lega sofa saman!“

Þrátt fyrir að segj­ast ekki dæma verk blaða­manna færir Haukur fram nokkrar ásak­anir. „En nú hefur hægst um, hníf­arnir verið dregnir úr sár­inu, en standa alblóð­ugir í höndum timbraðra árás­armann­anna sem vita ekki lengur hvað þeir eiga að gera. Þeir hafa lík­lega farið út að skemmta sér á föstu­dags­kvöldi – nú eða bara farið af vakt eftir langan vinnu­dag. Þeir eru auð­vitað með óbragð í munn­inum, því þeir vita að máls­at­vik voru ekki nógu alvar­leg, þau voru ekki nógu krassandi fyrir allt til­standið – þegar upp er staðið þurfa menn að hafa eitt­hvað til síns máls – og þeir eiga á hættu að vera dæmdir á siða­reglum Blaða­manna­fé­lags Íslands eða Siða­reglum Rík­is­út­varps­ins fyrir til­bún­ing, ein­hliða frá­sagnir, beinar árásir og fals. Og þeir geta ekki leið­rétt sig um helg­ina – þá þá koma þeir upp um hvað mála­til­bún­ingur þeirra var hrak­legur – það væri að dæma sig sjálfan. Þeir geta annað hvort ham­ast á lygi og hálf­sann­leika – eða þagað þunnu hljóði.“

Þá segir hann að umræður um hugs­an­legan trún­að­ar­brest for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, þegar nafn til­kynn­and­ans Ólafar Björns­dóttur var kynnt Ásthildi Lóu, sem fór síðar á heim­ili hennar, vera marklausan. „En ég trúi enn á heið­ar­leika frétta­mann­anna og bíð eftir því að þeir leið­rétti sig í einu og öllu og taki meðal ann­ars upp orð mín um að for­sæt­is­ráðu­neytið braut ekki trúnað – hvað sem tengda­mamman segir – sú kona gaf ráðu­neyt­inu heim­ild til að upp­lýsa um hver hún er með því að ráðu­neytið mátti bjóða Ásthildi Lóu á fund­inn. Hvernig var hægt að boða ÁL á fund öðru vísi en að gefa upp nöfn fund­ar­manna. Öðru vísi get­urðu ekki boðið til fundar hjá því opin­bera. Þá mega frétta­menn taka upp 2. mgr. 41. gr. stjórn­sýslu­lag­anna þar sem segir: „Undir þagn­ar­skyldu falla ekki upp­lýs­ingar um ámæl­is­verða hátt­semi starfs­manna stjórn­valda.“ Það gildir því ekki og hefur aldrei gild nein þagn­ar­skylda um málið. Hvaða frétta­maður ætlar að taka þetta upp – annað hvort frá mér nema hann lesi stjórn­sýslu­lögin sjálfur (sem hann á að hafa á skrif­borð­inu sínu).“

Haukur leggur til að Ást­hildur Lóa fari að for­dæmi Bjarna Bene­dikts­sonar og skipti ein­fald­lega um ráðu­neyti. Bjarni fór úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu í utan­rík­is­ráðu­neytið eftir að hafa sagt af sér í skugga nið­ur­stöðu um van­hæfi hans við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka.

„Mín til­laga er sú að Ást­hildur Lóa og Inga Sæland skipti um ráðu­neyti (Ást­hildur Lóa getur ekki verið barna­mála­ráð­herra fyrr en ásök­unin um tálmun hefur verið dregin til baka eða afsönnuð). Þá er málið dautt.“

Þannig yrði Ást­hildur Lóa félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Hún komst hins vegar nýverið í frétt­irnar þegar hún tap­aði dóms­mál vegna fast­eigna­við­skipta sinna og kastaði rýrð á rétt­ar­kerfið á Íslandi. „Við erum löngu hætt að gera ráð fyrir rétt­læti hjá íslenskum dóm­stólum,” sagði hún og baðst síðar afsök­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum