Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Michael Douglas varar við hnignandi lýðræði

„Banda­ríkin daðra við ein­ræði“

Michael Douglas varar við hnignandi lýðræði
Michael Douglas Douglas stendur ekki á skoð­unum sínum Mynd: MICHAL CIZEK / AFP

Stór­leik­ar­inn Michael Douglas lét til sín taka á kvik­mynda­há­tíð­inni í Karlovy Vary í Tékk­landi þar sem hann heiðr­aði 50 ára afmæli kvik­mynd­ar­innar One Flew Over the Cuckoo’s Nest. Þar nýtti hann tæki­færið til að vara við stöðu lýð­ræðis, bæði í Banda­ríkj­unum og á heims­vísu.

„Lýðræði er dýr­mætt og við­kvæmt og það þarf stöðugt að verja það,“ sagði Douglas og bætti við að Banda­ríkin væru þessa dag­ana að „daðra við ein­ræði, líkt og fleiri vest­rænar lýð­ræð­is­þjóðir“.

Douglas kom einnig inn á per­sónu­leg mál­efni og sagði meðal ann­ars frá bar­áttu sinni við hálskrabba­mein. Hann greindi frá því að hann hafi verið greindur með stig 4 krabba­mein og hefði þurft geisla­með­ferð sem heppn­að­ist, en aðgerðir hefðu getað þýtt að hann missti málið og hluta af kjálk­anum. „Það hefði tak­markað mig sem leik­ara, en ég átti í raun ekki margar leiðir,“ sagði hann.

Douglas, sem er orð­inn 80 ára, sagði að hann hefði hætt störfum árið 2022 og hafi ekki mik­inn áhuga á að snúa aftur. „Ég segi ekki að ég sé hættur, en það þyrfti eitt­hvað mjög sér­stakt til að ég myndi leika aftur. Ég er sáttur við að fylgj­ast með kon­unni minni vinna,“ sagði hann og átti þar við Catherine Zeta-Jones.

Ásamt Douglas tók Paul Zaentz, frændi fram­leið­and­ans Saul Zaentz, einnig til máls og lagði áherslu á mik­il­vægi ein­stak­lings­frelsis og and­ófs, lyk­il­þemu í verkum leik­stjór­ans Miloš Forman. Hann rifj­aði upp að árið 1983 hefði tékk­neska leyni­þjón­ustan komið í heim­sókn eftir að hann sýndi One Flew Over the Cuckoo’s Nest í Prag, þar sem myndin var bönnuð.

„Það er kald­hæðn­is­legt að 42 árum síðar sé myndin heiðruð hér, á meðan bókin sem hún byggir á gæti jafn­vel verið bönnuð í Banda­ríkj­unum,“ sagði Zaentz. Hann gagn­rýndi einnig Donald Trump harð­lega og vís­aði til nýrrar lög­gjafar sem for­set­inn skrif­aði undir 4. júlí, sem hann sagði „gera ríka rík­ari og svipta fátækt fólk mat og heil­brigð­is­þjón­ustu“.

Zaentz lauk með ákalli: „Gefist ekki upp á Ameríku.“ Hann minnti á slag­orðið frá Víetnam-stríð­inu, „We shall overcome“, og bætti við: „Við munum sigr­ast á þessu spillta, sið­lausa og föð­ur­lands­svikna fyr­ir­bæri. Ég er viss um að Miloš væri sam­mála mér að Trump sé blettur á okkar þjóð.“

Að lokum opin­ber­aði Zaentz að hann væri í sam­starfi við fjöl­skyldu rit­höf­und­ar­ins Ken Kesey um að þróa sjón­varps­þátta­röð byggða á bók­inni, þar sem sögu­sviðið yrði út frá sjón­ar­horni sögu­manns­ins Chief Bromden. Þar myndi per­sóna Jack Nicholsons deyja í lok fyrstu þáttar­aðar, en önnur færi svo í kjöl­farið með sögu Bromdens.

„Aldrei end­ur­gerð á mynd­inni, en þessi nálgun er í lagi,“ sagði Zaentz.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina