Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bubbi segir frá því þegar Gylfi var á bakvið sturtutjaldið

„Heið­ríkja“ og „skuggar“ í lífi Gylfa Ægis­sonar, sem varð bráð­kvaddur í gær.

Bubbi segir frá því þegar Gylfi var á bakvið sturtutjaldið
Bubbi Morthens Hitti Gylfa Ægisson 1974 á ver­tíð í Höfn í Horna­firði.

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens kveður söngvaskáldið Gylfa Ægisson í hjart­næmri lýs­ingu á Facebook í kvöld. Bubbi rekur bæði rót­ina að „skugg­anum“ í lífi Gylfa og segir svo af honum skemmti­sögu.

Hlátur bakvið sturtutjaldið

„Einu sinni vildi hann hrekkja mig. Við vorum að ferð­ast með Pöpunum og hann faldi sig bak­við sturtu­hengið á bað­inu í her­berg­inu mínu til að bregða mér. Ég var búinn að vera að ves­en­ast í her­berg­inu þegar ég heyri nið­ur­bældan hlátur ber­ast til mín,“ segir Bubbi.

Stór­fættum tón­list­ar­mann­inum gekk ekki vel að fela sig.

„Ég opna dyrnar á bað­inu, sé svarta skó - og skó­númer Gylfa var stórt - standa útundan tjald­inu, og þegar ég svipti því frá var hann í sviðs­bún­ingnum með húf­una góðu lek­andi ofaní sturtu­botn­inn, vein­andi af hlátri. Nú spring ég líka, hann stynj­andi milli hvið­anna, ég var svo spenntur að ég sprakk, nú sturl­að­ist ég af hlátri og hrundi í gólfið og þarna lágum við vein­andi af hlátri,“ segir Bubbi og klykkir út með: „Svona vil ég minn­ast hans. Við komum og við förum.“

Gylfi ÆgissonSamdi lagið Í sól og sum­aryl.

Skugginn

Bubbi og Gylfi hitt­ust fyrst vet­ur­inn 1974 á ver­tíð á Höfn í Horna­firði.

„Hann sat við skemmt­ara sem hót­elið skart­aði og spil­aði lag sem var fárán­lega gott, allt við það virk­aði, meló­dían og text­inn, hvort tveggja geggjað. Úti var harður vetur en lagið var um sól og yl,“ segir hann. „Gylfi var þéttur yfir herð­arnar, hend­urnar með þykka lófa, svert bak og döpur augu af drykkju. Hann virk­aði gler­harður en reynd­ist ljúfur sem lamb. Rödd hans virk­aði væmin vegna drykkj­unnar og draf­andi. Við tókum kvöldið saman, ég spil­aði og söng og hann gerði það sama. Eftir þetta átti ég eftir að vera með honum í Eyjum um sum­arið og kynnt­ist þá líka bróður hans, Lýður hét hann, sprúðlandi mús­ík­maður líka. Í gegnum árin hitt­umst við öðru hverju, þá var bjart yfir honum, hann mál­aði skip og seldi skip­stjórum og útgerð­ar­mönnum og gerði það gott. Það var ein­hver heið­ríkja yfir honum, jafn­vel bernska.“

„Það var ein­hver heið­ríkja yfir honum, jafn­vel bernska.“
Bubbi Morthens um Gylfa Ægissoon

Eitt umdeilt skeið í lífi Gylfa var það sem hann sjálfur kall­aði „homma­stríðið“ og sner­ist um and­stöðu hans við gleði­göngu sam­kyn­hneigðra og ýmis­legt sem tengd­ist bar­áttu þeirra fyrir sýni­leika og með­tekn­ingu.

„Hann hafði samt sína skugga og einn af þeim var að þegar hann var í kringum ung­lings­árin reyndi maður að brjóta á honum kyn­ferð­is­lega á Siglu­firði,“ segir Bubbi. „Sá atburður mót­aði sýn hans á sam­kyn­heigða og hann fór að stíga fram reiður og setti allt sem tengd­ist regn­bog­anum á barn­a­níð af ein­hverju tagi. Ég hringdi í hann og við töl­uðum saman, ég hvatti hann til að finna sér góða mann­eskju og gera upp þetta áfall. Hann hélt nú ekki og þar við sat. Við Sóli Hólm sættum okkur við það. Gylfi var góður drengur, snjall laga­smiður, frá­bær texta­smiður og hlát­ur­mildur prakk­ari.“

Gylfi Ægisson varð bráð­kvaddur á heim­ili sínu í fyrr­inótt. Hann var á 79. ald­ursári.

Gylfi hóf tón­list­ar­feril sinn með hljóm­sveitum á borð við Berki frá Bol­ung­ar­vík og Eymönnum frá Vest­manna­eyjum. Fyrsta lag hans sem var gefið út á plötu var „Í sól og sum­aryl“, sem hann samdi í Lysti­garð­inum á Akureyri og var gefið út af hljóm­sveit Ingimars Eydal árið 1972.

Á ferli sínum samdi Gylfi fjölda sígildra laga, þar á meðal „Jibbý jei“ sem hljóm­sveitin Svan­fríður flutti, og „Minning um mann“, sem Logar frá Vest­manna­eyjum komu á fram­færi. Hann samdi einnig þjóð­há­tíð­ar­lag Vest­manna­eyja árið 1974, „Eyjan mín bjarta“, þegar hátíðin var haldin í tvö­hund­rað­asta sinn.

Árið 1980 stofn­aði Gylfi ásamt Rúnari Júl­í­us­syni og fleiri þekktum lista­mönnum hljóm­sveit­ina Áhöfnina á Hala­stjörn­unni. Vinsælt lag hans, „Stolt siglir fleyið mitt“, kom út sama ár á plöt­unni Meira salt.

Gylfi lagði einnig mikla rækt við tón­list fyrir börn og gaf út fjölda svo­kall­aðra Sön­gæv­in­týra, þar sem hann vann með sígild ævin­týri í lag­formi.

Samkvæmt tón­list­ar­safn­inu Glatkistan gaf Gylfi út hátt í fjöru­tíu sóló­plötur, auk fjöl­margra ann­arra útgáfa með hljóm­sveitum og á safn­plötum. Lög hans lifa áfram sem hluti af íslenskri tón­list­ar­arfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una