Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Það er miklu betra að kyssa þig þegar við erum öruggar“

Sigríður Eir Zophoníasardóttir upp­lifir sig oft óör­ugga með unn­ustu sinni á almanna­færi

„Það er miklu betra að kyssa þig þegar við erum öruggar“
Sigríður Eir Zophoníasardóttir og Hildur Þor­steins­dóttir Í til­efni hinsegin daga deilir Sigríður reynslu sinni Mynd: Facebook/ Sigríður Eir Zophoníasardóttir

Sigríður Eir Zophoníasardóttir, söng­kona í hljóm­sveit­inni Eva, vill öryggi fyrir hinsegin fólk alls staðar. Hún deildi reynslu sinni í færslu á Facebook. Sigríður lýsir hvernig hún og unnusta hennar þurfa að vera með­vit­aðar um umhverfið sitt þegar þær eru úti á almanna­færi. Oft eru þær ekki öruggar ef þær leið­ast. „Allt er allt í lagi - verum bara vin­konu­legar, við erum báðar með snúð í hár­inu, við gætum verið systur,“ skrifar Sigríður um hvernig hún og unnusta hennar þurfa að breyta hegðun sinni í óör­uggu umhverfi.

Sigríður lýsir því hvernig stundum geta þær verið hug­rakkar og leiðst þrátt fyrir að þær finni að það sé ekki öruggt en stundum þor þær því ekki. „Stundum löbbum við hönd í hönd en sleppum allt í einu báðar. Einhver augu sem ögra, ein­hver orka sem stingur, eitt­hvað óáþreif­an­legt en samt svo ótrú­lega skýrt,“ skrifar Sigríður í færsl­unni.

„Við höfum kysst í lest.
Við höfum kysst í flug­vél.
Við höfum kysst í alls okkar ókunnum borgum, löndum og sveitum.
Við höfum kysst og fundið að það er ekki vel­komið, ekki vel séð.
Við höfum kysst og fundið að það er ekki öruggt.
En það er svo miklu betra að kyssa þig þegar við erum öruggar,“ skrifar Sigríður.

Sigríður seg­ist vera heppin því hún hefur mikil for­rétt­indi þrátt fyrir að vera lesbía. „Ég passa vel inn í het­erón­orma­tív­una, ég á börn og hús og við erum báðar með nógu kven­læga kyntján­ingu svo hún telst ekki veru­leg ógn,“ við­ur­kennir Sigríður. Þrátt fyrir að til­vist hennar sé nokkuð auð­melt­an­leg fyrir flesta seg­ist hún upp­lifa örygg­is­leysi og ótta mörgum sinnum í mán­uði, jafn­vel hér á landi. „Óttan um að við sem par gætum skapað ein­hvern usla eða óþæg­indi sem gætu komið niður á okkar öryggi í þessum heimi. Að mér sé áætluð gagn­kyn­hneigð og þurfi að koma út úr skápnum í hví­vetna, að ég sleppi tak­inu af hendi kon­unnar minnar á götu því ég vil ekki lenda í aðkasti,“ skrifar Sigríður. Hún segir að for­dómar og nið­ur­læg­ing út af hinseg­in­leika hennar sé eitt­hvað sem hún hefur lært að bera.

Sigríður segir sög­una hins vegar aðra þegar kemur að barni sínu en hán er kynsegin og passar ekki í hefð­bundna kyntján­ingu. „Ég get ekki til þess hugsað að hán þurfi að herða sig, verja sig, láta sér vaxa hreðjar eða hvað það er sem hán þarf að gera til þess að kom­ast af á ferða­lagi sínu í þessum heimi,“ skrifar Sigríður.

„Ég vil fá að leið­ast niður allar heims­ins götur án þess að verða hrædd og ég vil að barnið mitt geti val­hoppað í gegnum þetta líf í hverri þeirri kyntján­ingu, kyni og kyn­hneigð sem háni þókn­ast án þess að fólki sjái sig knúið til að hafa eina ein­ustu skoðun á því,“ segir Sigríður í færslu sinni. Hún seg­ist ekki vilja þurfa að vera þakk­lát fyrir að fólk leyfi þeim að vera. Það ætti að vera sjálf­sagt að allt hinsegin fólk sé öruggt alls staðar og alltaf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina