Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fyrrverandi forstjóri segir Íslendinga í byltingu gegn efnishyggju

„Þetta gerir ekk­ert fyrir mann,“ segir Þórarinn Ævarsson, fyrr­ver­andi for­stjóri, um föt, bíla og önnur efn­is­leg gæði, sem hann hefur snúið bak­inu við.

Fyrrverandi forstjóri segir Íslendinga í byltingu gegn efnishyggju
Þórarinn Ævarsson Var ein­beittur á að kom­ast í efn­is­leg gæði.

Þórarinn Ævarsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Ikea, Dominos og pít­sa­stað­ar­ins Spaðans, var metn­að­ar­fullur sem ungur maður og hugs­aði bara um „monní, monní, monní.“ Hann vildi kom­ast í „efn­is­leg gæði“ en sneri við blað­inu. Hann telur að sama eigi við um íslensku þjóð­ina.

„Ég eign­að­ist fyrsta bens­inn minn þegar ég var bara tutt­ugu og eitt­hvað ára gam­all. Og síðan hef ég verið bíla­sjúkur. Og þetta gerir ekk­ert fyrir mann. Ekki neitt,“ segir hann og bætir við: „Sama á við um föt. Það flæða föt út úr skáp­unum heima hjá manni og maður á aldrei nóg af fötum. Maður á aldrei nóg af öllu,“ segir hann í við­tali í nýjasta hlað­varps­þætti Sölva Tryggva­sonar.

Óhamingjusöm og að kafna úr streitu

Þórarinn talar þar um umbreyt­ingu sína, sem hann segir að speglist í hæg­látri bylt­ingu meðal Íslend­inga.

„Það má segja það sama um mig og íslensku þjóð­ina að ég kem úr fátækt, það var lítið um efn­is­leg gæði þegar ég var að alast upp og eðli­lega setti maður þess vegna fók­us­inn á að eign­ast pen­inga. Ég var ofboðs­lega metn­að­ar­gjarn og þetta gekk bara út á ,,monní, monní, monní”, en svo þegar maður horfir til baka gerði það ekki mikið fyrir mig að eign­ast nýja bíla og fleiri ver­ald­lega hluti. Ég þurfti að klessa harka­lega á vegg til að skipta alveg um takt. Stundum finnst mér eins og það sama sé að ger­ast með þjóð­ina í heild. Ísland var fátæk­ari en Albanía og í raun fátæk­asta land í allri Evrópu og við þurftum á 50 árum að bæta upp fyrir það for­skot sem aðrar þjóðir höfðu náð á árhund­ruðum.“

Hann lítur svo á að Íslend­ingar greiði fórn­ar­kostnað fyrir meiri efn­is­leg gæði.

„Þessi ofboðs­lega efn­is­hyggja og sam­ban­burður hefur ein­kennt okkur. Það er auð­vitað mjög jákvætt og gott að hafa kom­ist úr mold­ar­kofum í allt þetta ríki­dæmi á svona skömmum tíma, en það fylgir þessu fórn­ar­kostn­aður og við erum að horfa upp á hann núna. Það sést í því að við virð­umst orðin býsna óham­ingju­söm og að kafna úr streitu og lífs­stíls­sjúk­dómum. Hraðinn er orð­inn gengd­ar­laus og á end­anum tekur það toll á tauga­kerfið og bæði and­lega og lík­am­lega heilsu,” segir Þórarinn.

Íslend­ingar mæl­ast þó gjarnan í fremstu röð í mæl­ingum á ham­ingju og svo þegar kemur að ævi­lengd.

,,Við erum orðin svo aftengd án þess að gera okkur grein fyrir því“
Þórarinn Ævarsson

Þórarinn segir að streit­unni fylgi afteng­ing og firr­ing. ,,Við erum orðin svo aftengd án þess að gera okkur grein fyrir því og höfum oft og tíðum misst sjónar af því sem raun­veru­lega skiptir máli í líf­inu. Að vera með fjöl­skyldu og vinum, geta gefið af sér, staldrað við og komið vel fram við náung­ann. Það eru meira en 70 þús­und manns á SSRI-lyfjum [geð­deyfð­ar­lyfjum] á Íslandi og bara sú stað­reynd er svaka­leg og eitt­hvað sem ætti að fá okkur til að hugsa um hvað sé í gangi.“

Vill taka umræðu um hugvíkkandi efni

Sjálfur hefur Þórarinn talað fyrir notkun hug­víkk­andi efna. Það gerir hann líka í við­tal­inu við Sölva Tryggva­son.

„Svo er mikið magn af fólki að glíma við króníska verki og lausnin við því er að dæla opíóðum í fólk. Ríkið hefur ákveðið að opíóðar séu í lagi og að áfengi sé hið við­ur­kennda efni sem fólk notar. En það hafa verið teknar saman fjöl­margar rann­sóknir á alls konar efnum með til­liti til þess í hvaða mæli þau geta skaðað ann­ars vegar sjálfan þig og hins vegar aðra. Áfengi skorar þar langefst á báðum listum og er í raun bara vont fyrir allt og alla. Sveppir og LSD og önnur hug­víkk­andi efni eru langneðst á þessum listum. Þú getur skaðað sjálfan þig á þeim efnum, en þú skaðar nán­ast aldrei aðra. Það er löngu tíma­bært að taka þessa umræðu úr skot­gröf­unum og horfa á stað­reyndir.”

Þórarinn hefur meðal ann­ars notað kanna­bis­olíu til þess að slá á verki og hjálpa við svefn og hvíld. Hann seg­ist ekki skilja að það komi rík­inu við í hvaða með­vit­und­ar­á­standi hann kýs að vera heima hjá sér:

„Ég er búinn að glíma við króníska verki í tals­verðan tíma og hef leitað allra leiða til að finna lausnir. Það er ekk­ert sem læknar þetta alveg, en kanna­bis hefur reynst mér frá­bær­lega til að slá á verki og hjálpa við svefn og hvíld. Ég hef verið að nota kanna­bis-olíu áður en ég sofna, af því að ég er ekki að leita eftir því að vera undir neinum áhrifum. Ég var orð­inn lífs­hættu­lega háður ópíóðum og það er ekki val­kostur fyrir mig að fara aftur þá leið, þó að það sé lög­lega leiðin sam­kvæmt kerf­inu. Skaðinn sem þau efni valda og dauðs­föllin eru löngu orðin óum­deild. Ég get ekki séð hvað það komi yfir­völdum við í hvaða með­vit­und­ar­á­standi ég, sex­tugur mað­ur­inn, ákveð að vera í heima hjá mér. Það er almennt sam­þykkt að heil­inn þroskast ekki að fullu fyrr en eftir ákveð­inn aldur og það er ekki gott að nota kanna­bis fyrir þann tíma, en eftir að ákveðnum aldri er náð virð­ist það geta haft frá­bær áhrif á alls kyns kvilla, bætt svefn, aukið mat­ar­lyst og fleira þar fram eftir götum,” segir Þórarinn, sem segir tíma til kom­inn að taka þessa umræðu af alvöru og horfa á stað­reyndir for­dóma­laust.

Talar fyrir lögleiðingi kannabis

Fjöldi rann­sókna hefur sýnt fram á skað­semi kanna­bis-efna, en Þórarinn kveðst ekki kom­inn í við­tal hjá Sölva til að upp­hefja efnið.

,,Ég er ekki kom­inn hingað til þess að ,,glorify-a” kanna­bis eitt­hvað sér­stak­lega, en það er búið að koma ótrú­legu óorði á kanna­bis og margt af því er ekki á rökum reist. Meira að segja mestu reglu­þjóðir Evrópu eins og Þýska­land hafa farið í að lög­leiða kanna­bis. Smá­glæpum hefur fækkað þar mikið eftir þetta og afleið­ing­arnar eru mjög jákvæðar. ,,War on drugs” er löngu tapað og það er löngu tíma­bært að taka þetta upp á yfir­borðið og byrja lög­leið­ingu, ekki síst á þeim efnum sem hafa jákvæð áhrif á alls kyns kvilla sem fólk er að þjást af. Ríkið getur haft af þessu mikla skatt­pen­inga og það er auð­veld­ara að tak­marka aðgengi gagn­vart ungu fólki ef þetta verður tekið af göt­unni og gert lög­legt. Það er framundan stór ráð­stefna þar sem margir af helstu sér­fræð­ingum í heimi á þessu sviði munu koma fram og ég skora á fólk að mæta þangað og kynna sér þetta betur.”

Þórarinn opn­aði sig fyrir rúmum tveimur árum um það hvernig hug­víkk­andi efni björg­uðu lífi hans, þegar hann var kom­inn algjör­lega á botn­inn í þung­lyndi og van­líðan. Hann segir það hafa verið gott að losa sig við skömm­ina og fannst sið­ferði­lega rétt að deila sinni sögu opin­ber­lega.

„Ég veit að þetta var mik­il­væg­asta verk­efnið í lífi mínu. Að kom­ast út úr þung­lynd­inu og lyfjafíkn­inni“
Þórarinn Ævarsson

„Ég fór í við­talið á Vísi og kom líka í podcastið til þín ein­fald­lega af því að mér fannst ég ekki geta þagað um þetta. Ég var svo þakk­látur yfir því að hafa fengið betra líf að ég fann mig knú­inn til að tjá mig um það hvað hefði hjálpað mér. Síðan þá hef ég fengið gríð­ar­lega mikil við­brögð og stað­fest­ingu á því hve margir eru illa haldnir af van­líðan og hafa ekki fundið neinar lausnir inni í kerf­inu. Ég er búinn að þurfa að vinna mikið í sjálfum mér eftir þetta og líf mitt hefur breyst mikið. En ég veit að þetta var mik­il­væg­asta verk­efnið í lífi mínu. Að kom­ast út úr þung­lynd­inu og lyfjafíkn­inni, þannig að ég gæti verið til staðar fyrir kon­una mína og börnin mín. Þó að ég hafi lagt nær öll mín leynd­ar­mál á borðið þarna er ég í grunn­inn mjög prí­vat maður. En ég vissi ein­hvern veg­inn að ég gæti lík­lega hjálpað ein­hverjum með því að opna mig, af því að ég vissi að ég væri ekki einn á þeim stað sem ég var á. Það er mjög mikið af fólki að glíma við stans­lausa verki og enn fleiri að glíma við alvar­legt þung­lyndi eins og ég var fastur í. Ef að maður finnur lausnir sem gætu hjálpað öðrum er það bein­línis sið­ferði­lega rétt að tala um það opin­ber­lega.”

Þórarinn seg­ist sann­færður um að mjög stór hópur Íslend­inga sé að skipta um takt og heims­mynd og það sé í raun hæg­lát bylt­ing í gangi sem eigi eftir að hafa mjög jákvæð áhrif.

,,Ég er sann­færður um að það sé hæg­lát bylt­ing í gangi þar sem stór hópur fólks er að skipta um takt og tengj­ast sjálfu sér og öðrum. Hug­víkk­andi efni spila þar stórt hlut­verk og þeir sem hafa tekið þau í þeim til­gangi að bæta líf sitt telj­ast lík­lega í tugum þús­unda á Íslandi. Það kemur eng­inn samur út úr því að fara þá veg­ferð. Þessum efnum var haldið niðri í 50 ár, en nú er lokið komið af pott­inum og þeirri þróun verður ekki snúið við.“

Þannig fór Þórarinn úr of mik­illi efn­is­hyggju yfir í efni sem breytir hug­anum, til hins betra að hans mati.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina