Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum

Nær­ing­ar­fræð­ingar telja að börn þurfi ekki á drykknum að halda

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum
Varan er aug­lýst sér­stak­lega fyrir börn Nær­ing­ar­fræð­ingar telja vör­una ekki henta heilsu­hraustum börnum. Mynd: Happy Hydrate

Nokkur umræða hefur ríkt á sam­fé­lags­miðlum, sér­stak­lega hjá nær­ing­ar­fræð­ingum, um drykk­inn Hydration Xpress Kids frá íslenska fyr­ir­tæk­inu Happy Haydrate en sumum þykir óvið­eig­andi að mark­aðs­setja slíka vöru fyrir börn. Fyr­ir­tækið leggur áherslu a salt- og stein­efni á drykkjum sínum.

Meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt drykk­inn á sam­fé­lags­miðlum er nær­ing­ar­fræð­ing­ur­inn Guðrún Nanna Egils­dóttir.

Af hverju finnst þér rangt að það sé verið mark­aðs­setja þessa vöru fyrir börn?

„Vegna þess að um er að ræða við­kvæman hóp og það er ekki æski­legt að ýta undir salt­neyslu hjá börnum því rétt eins og við þá borða þau almennt of mikið af salti nú þegar. Þau þurfa þar að auki mun minna salt en við, en fyrir börn frá 2 til 9 ára aldri ætti salt­neysla að vera tak­mörkuð við 3–4 grömm á dag. Það er líka aukið álag á nýru barna að losa sig við umfram magn natr­íums úr blóð­inu,“ sagði Guðrún um málið við Mannlíf.

Í aug­lýs­ingu frá fyr­ir­tæk­inu segir að 1 árs og eldri megi drekka drykk­inn

„Þar að auki inni­heldur varan dextrósa, sem er sykur, og sítrónu­sýru svo þetta er ekki tann­vænn drykkur,“ heldur nær­ing­ar­fræð­ing­ur­inn áfram. „Varan inni­heldur líka háa skammta af vítamínum sem er þó ekki endi­lega jákvætt því lík­am­inn getur bara nýtt ákveðið mikið magn. Rann­sóknir sýna þar að auki ekki ávinn­ing þess að drekka eða taka inn ein­hvers konar fjölvítamín svona almennt, það styður ekki við betri heilsu­farsút­komur,“ og segir Guðrún að börn ættu ekki að þurfa fjölvítamín og ættu að fá nóg af nær­ing­ar­efnum úr mat, almennt séð.

En er drykk­ur­inn hættu­legur?

„Varðandi börn þá er eins og ég sagði aukið álag á nýru barna að losa sig við umfram magn natr­íums úr blóð­inu. Of mikið salt almennt getur líka hækkað blóð­þrýst­ing sem eykur líkur á hjarta- og æða­sjúk­dómum og eykur líka hættu á krabba­meini í maga. En svo er þetta þá líka í raun bara óþarfa pen­inga­sóun og meira er ekki alltaf betra. Íslend­ingar neyta almennt meira af salti en mælt er með og margir vita ekki af því, en mest af salt­inu leyn­ist í til­búnum mat­vælum sem við borðum,“ útskýrir Guðrún.

„Með­al­neysla karla á salti er að minnsta kosti 9 grömm og kvenna 7 grömm á dag. Ráð­legg­ingar mæla með að full­orðnir neyti ekki meira en 6 grömm af salti á dag. Hægt er að nota sem við­mið að vara sé salt­rík ef hún inni­heldur 1,25 grömm af salti eða meira í 100 grömmum vöru. Það er mik­ill heilsu­fars­legur ávinn­ingur fyrir okkur af því að minnka salt­neyslu því þannig má draga úr hækkun blóð­þrýst­ings, en háþrýst­ingur er einn af áhættu­þáttum hjarta- og æða­sjúk­dóma.“

Guðrún Nanna Egils­dóttir nær­ing­ar­fræð­ingurEr einn þekkt­asti nær­ing­ar­fræð­ingur lands­ins.

Guðrún telur að það mætti mögu­lega auka eft­ir­lit með vörum sem þessum og þá sér­stak­lega mark­aðs­setn­ing­unni og þá sé tekið skýrt fram fyrir hvaða hóp slíkir drykkir henta.

„Flestum dugir að drekka vatn fyrir vökva­jafn­vægi í dag­legu lífi og við hóf­lega hreyf­ingu. Þörf á stein­efna­drykkjum er bara við mikið vökva­tap. Ef æfing er minni en ein klukku­stund og í sval­ara umhverfi dugar vatn yfir­leitt. Ef æfing er yfir 90 mín­útur, sér­stak­lega í miklum hita, eða við end­ur­teknar lotur á dag þá ætti að fara að huga að því að taka inn stein­efni. Í mjög mik­illi svita­myndun eins og t.d. hjá afrek­s­í­þrótta­fólki þá eru stein­efna­drykkir æski­legir. En eins og með svo margt annað þá er þó mjög ein­stak­lings­bundið hvað við svitnum mikið og þarf því hver og einn að meta fyrir sig. Varðandi vör­una fyrir börn þá geta drykkirnir hentað við sér­stakt ástand eins og eftir upp­köst og nið­ur­gang, eða við mjög mik­inn svita eins og áður sagði.“

Guðrún er þó ekki endi­lega á því að það þurfi að taka vör­una af mark­aði.

„Ég væri til í að sjá það tekið skýrt fram fyrir hvaða ástand varan hentar eins og við upp­köst eða nið­ur­gang og mjög mikla svita­myndun. Það þarf að fara mjög var­lega þegar mark­aðs­setn­ingin snýr að börnum.“

Inni­halds­lýs­ing á vör­unni
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti